Menntamál - 01.04.1969, Blaðsíða 103
MBNNTAMÁL
97
Mikill fjöldi þess fólks, sem útskrifast árlega úr Kennara-
skóla íslands leitar í önnur störf að loknu námi í von um
betri lífsafkomu.
Þrjú síðustu skólaár var fjöldi réttindalausra kennara
við barnaskóla þessi: 1966-‘67 15,58%, 1967-‘68 14,24 %,
1968-’69 12,5%. Prósentutalan hefur lækkað, en þó er langt í
land.
Við gagnfræðaskóla voru árið 1963 25,25% sem ekki
höfðu kennararéttindi á því stigi og árið 1969 29,62%.
Hér er hlutfallið enn óhagstæðara en við barnaskólana.
Þrátt fyrir ýmsar umbætur, sem átt liafa sér stað í íslenzk-
um skólamálum hin síðari ár, þá erum við enn á eftir tím-
anum. Stórra átaka þarf við og í því efni berum við fullt
traust til Skólarannsókna.
Nauðsyn ber til, að útgjöld til skólamála verði ekki skor-
in við nögl þrátt fyrir kreppu í landi.
Það er bezta gjöfin til þjóðarinnar á 25 ára afmæli lýð-
veldisins.
Menntun æskunnar er bezta fjárfestingin.
Alþjóðaþing Sameinuðu þjóðanna hefur samþykkt, að
árið 1970 skuli kallað alþjóða menntaár og að næsti áratugur
skuli helgaður menntun og uppeldi eins og UNESCO hefur
lagt til. Allsherjarþingið skoraði á allar aðildarþjóðir sam-
takanna að rannsaka menntunarástand í löndum sínum og
hefja markvissa sókn í skóla- og uppeldismálum.
Við Islendingar megum ekki sofa á verði. Hefjum því
sókn.
Samtök íslenzkra barnakennara eiga fimmtíu ára afmæli
árið 1971. Nú þegar er hafinn undirbúningur að því að
minnast afmælisins á verðugan hátt og hvetja til nýrrar
öflugrar sóknar í skólamálum. íslenzkir kennarar á öllum
skólastigum og samtök þeirra mega ekki láta sinn hlut eftir
iiggja.
Megin tilgangur allrar fræðslu er að vekja virðingu fyrir
friðhelgi mannlegs lífs, fyrir verðleikum einstaklingsins, fyr-
7