Menntamál - 01.04.1969, Síða 34
MENNTAMÁL
28
Gagnfrceðastig.
Þar sem námsefni á gagnfræðastigi gerir kröfur um mun
dýpri þekkingu en á barnastigi, verður erfiðara að mennta
kennara til þessarar kennslu með stuttum námskeiðum.
Ekki verður unnt að gera þá, sem slík námskeið sækja,
jafn hæfa kennurum með B. A.-próf í eðlis- og efnafræði,
en eftir 4 vikna námskeið ætti þó að vera hægt að fela
þeim kennslu hins nýja námsefnis með aðstoð kennara-
handbóka og ráðgjafa. Yrði að b'ta á þessi námskeið sem
bráðabirgðalausn, þar til bætt verður úr kennaraskorti með
framhaldsskóla fyrir starfandi kennara eða fjölgun kennara
með B.A.-próf.
Gerir nefndin ráð fyrir, að efnt verði til tvenns konar
námskeiða. (Mynd 3.) Annars vegar yrðu námskeið fyrir
þá, sem lokið hefðu almennu kennaraprófi eða jafngildu
námi og hyggðust kenna eðlis- og efnairæði í I. og II. bekk.
Hins vegar yrðu námskeið fyrir þá, sem lokið hefðu
stúdentsprófi í raungreinum eða jafngildu námi, og stefndu
að kennslu eðlis- og efnafræði í III. og IV. bekk. Á hvoru
námskeiði yrði um 120 st. varið til þess að auka þekkingu
kennaranna, um 20 st. til þess að kynna þeim hið nýja náms-
efni unglinganna og um 20 stundum til þess að gera þær
æfingar, sem unglingunum eru ætlaðar. Lengd hvers
námskeiðs er áætluð 4 vikur. Þessi námskeið mætti reka í
tengslum við B.A.-nám eða Kennaraskólann með svipuðu
sniði og námskeið fyrir kennara á barnastigi.
Eins og áður var sagt, veita þessi námskeið aðeins úr-
lausn til bráðabirgða, og stefna verður að varanlegri lausn
með framhaldsskóla fyrir kennara, sem gæti verið fullt
nám eða kvöldskóli. I ráði liefur verið að gefa kennurum
kost á sérnámi í framhaldsdeild við Kennaraskólann. Yrði
það 2 ára nám. Gert er ráð fyrir, að kennarar sérhæfi sig
í nokkrum greinum. Kennarar, sem lokið hafa þessu sér-
námi í eðlis- og efnafræði, gætu annazt kennslu þessara
greina á gagnfræðastigi a. m. k. í I. og II. bekk. Þar sem