Menntamál - 01.04.1969, Blaðsíða 19
MENNTAMÁL 13
TAFLA I
Alls að
Bekkur 10 ára 11 ára 12 ára 1. II. III. IV. IV. b
Noregur U/o li/2 u/2 2 2 3 Hl/2
0 8l/,
Svíþjóð l/o Vt V2 2 4 4 Ill/2
0 71/2
Danmörk .... 0 0 2 2 2 3 5 9
2
ísland 0 0 0 0 2 3 5
0-2 0-2 2-4
2.4. Tillögur um aukna kennslu í eðlisfræði og efnafræði.
Nefndin telur, að sá tímafjöldi, sem íslenzkir nemendur
á skyldunámsstigi fá í eðlisfræði og efnafræði, sé algjörlega
ófullnægjandi. Hún telur eðlilegt, að stundaf jöldinn verði
svipaður og nú er í Danmörku, Noregi og Svíþjóð.
Tillögur nefndarinnar eru á þessa leið:
1. Barnaskólar, sameiginleg kennsla í náttúrufræði, eðlis-
fræði og efnafræði.
11 ára bekkur 4 stundir á viku.
12 ára bekkur 4 stundir á viku.
Af þessunt 4 stundum væri um 11/j stund að jafnaði hæfi-
leg fyrir eðlis- og efnafræðileg viðfangsefni.
Æskilegt væri, að sem nánust tengsl yrðu milli náttúru-
fræði annars vegar og eðlis- og efnafræði liins vegar. Búast
má við verulegunt breytingum á námsefni og kennsluaðferð-
um í náttúrufræði á næstu árum, en ekki telur nefndin ráð-
legt að bíða með kennslu eðlis- og efnafræði á barnastigi,
þar til sún endurskoðun hefur farið fram, heldur álítur hún,
að reynsla af verklegri kennslu í eðlis- og efnafræði gæti
komið að miklum notum við þá endurskipulagningu.
í þessu sambandi má benda á, að í Bretlandi og Banda-
ríkjunum hefur nýlega verið endurskoðað námsefni í al-