Menntamál - 01.04.1969, Page 80
74
MENNTAMÁL
inleg skoðun stjórna og pmga S. í. B. og L. S. F. K. að eklii
komi til greina jyrir íslenzk kennarasamtök að skorast úr leik
við stofnun allsherjar norrænna kennarasamtaka. Við ger-
um okkur reyndar Ijóst, að þessu fylgir bæði nokkur fyrir-
höfn og kostnaður, en hinsvegar teljum við að okkur sé nauð-
syn að fylgjast vel með þróun skólamála nágranna okkar, ekki
hvað sizt launamálum, en þar erum við mörgum árum á eftir
timanum. Eins og fram kemur i lögum sambandsins, sem
liomu i íslenzkri þýðingu i 2. hefti Menntamála, hyggst það
huga að öllu, sem viðkemur skólastarfinu beint og óbeint.
Ennj)á er ekki reynt á ])að, hver árangur verður, en á þessum
fyrsta fundi ríkti mikil bjartsýni og trú á, að með þessu væri.
stigið mikilvægt skref, sem gæti leitt til samræmingar á heild-
arstefnu í skólamálum allra Norðurlandanna.
I mörg ár hafa kennarasamtölún á hinum Norðurlönd-
unum efnt til kennaranámskeiða. Þessu starfi hyggst sam-
bandið halda áfram og verða þau til skiptis í aðildarlöndun-
um. Nœsta námskeið verður i sumar i Finnlandi. L. S. F. K.
og S. I. B. liafa tvö undanfarin sumur sent. fyrirlesara á þessi
námskeið, til Noregs 1967 fór Jón Hjálmarsson, páverandi
skólastjóri að Sliógum og til Danmerkur Helgi Þorláksson,
skólastjóri. Bæði þessi námskeið sóltu nokkrir félagar úr
L. S. F. K. og hn.fa þeir allir lát.ið mjög vel af förinni. Vegna
kostnaðar er enn óvist., hvort nolikur þátttaJia verður i Finn-
landsnámskeiðinu. Mér finnst nauðsynlegt. og sjálfsagt að
ríkið leggi hér nokkuð af mörkum og œtli fé til styrktar
sliltri starfsemi. L. S. F. K. getur þvi miður ekki styrkt svona
starf svo nokkru nemi.
Að jafnaði eru mörg mál, sem L. S. F. K. fjallar um sam-
tímis og ógerlegt er að tína þau upp hvert fyrir sig. En fróð-
legt væri að heyra skoðanir formanns L.S. F. K. á nokkrum
atriðum, sem kennarar ræða tíðum. Menntun kennara er
eitt af þeim.
Ffafa skapazt nokkur ný viðhorf í þeim efnunr?
Eitt af mörgu, sem eklti er vanzalaust íslenzkum sltóla-