Menntamál - 01.04.1969, Blaðsíða 115
MENNTAMÁL
109
margir starfandi kennarar hafa lagt á sig mikið erfiði og tit-
gjöld við að afla sér aukinnar þekkingar, bæði hér á landi og
ekki síður erlendis, oftast af litlum efnum, en án umbunar.
Ráðstefnan fagnar yfirlýsingum menntamálaráðherra á ný-
afstöðnu uppeldismálaþingi varðandi ný fræðslulög og ný
lög um Kennaraskóla íslands, og telur eðlilegt, að samhliða
þeim komi ný lög um menntun framhaldsskólakennara.
Með tilvísun til fyrri erinda L. S. F. K. varðandi mennt-
un kennara og ályktana síðasta uppeldismálaþings er þess
krafizt, að nú þegar verði teknar upp af hálfu ríkisstjórnar-
innar viðræður við I,. S. F. K. um ákveðna framtíðarskipan
á menntunarmálum framhaldsskólakennara, svo og um leið-
ir til aukinnar menntunar og fyllstu viðurkenningu til
handa öllum starfandi framhaldsskólakennurum.
2. Ráðstefnan skorar á fræðsluyfirvöld landsins að láta hið
bráðasta fara fram rækilega endurskoðun á allri verkkennsln
í landinu og koma þar á stórbættri skipan eins fljótt og unnt
er.
3. Ráðstefnan mótmælir harðlega dómi Félagsdóms frá 8.
maí s. 1. varðandi álag á fast kaup kennara, vegna óþægi-
legs vinnutíma, og varar alvarlega við afleiðingum þess, ef
sá dómur nær fram að ganga.
Slíkur dómur er greinilegt brot á almennum reglum um
vinnutíma og gengur í berhögg við þau réttindi, sem kenn-
arastéttin, eftir áralanga baráttu, taldi sig hafa náð með á-
kvæðum Kjaradóms um daglegan vinnutíma.
4. Ráðstefnan skorar á stjórn L. S. F. K. að leita fast eftir
því við ríkisstjórnina, að kennarar, hvar sem er á landinu,
geti sótt, sér að kostnaðarlausu, þau námskeið, sem eru
viðurkennd eða haldin á vegum fræðslumálstjórnar.