Vorið - 01.03.1970, Qupperneq 23
voru frá sjö löndum, en flestir Jjýzkir.
Heimsmeistari varð Þjóðverji, Heini
Hittmar. Lengstu flugin á þessu móti
voru yfir 350 km. (ibein loftlína Aikur-
eyri-—Reyikjavík er um 260 km.) Svo að
sjá má, að svifflugur hafa verið orðnar
all fullkomnar á þessum tíma.
Stuttu fyrir heimsstyrjöldina hafði
ISTUS (alþjóðl. svifflug.) gefið út tak-
niarkanir fyrir Olympiu-svifflugu. Hug-
myndin var að á heimsmeislaramótum
kepptu allir keppendur á eins svifflug-
um.
Nokkrar svifflugur voru smíðaðar
eftir þessum takmörkunum. Hlutskörp-
ust var þý^k sviffluga DFS Meise. Hún
Var framleidd eftir stríðið bæði í Þýzka-
landi og Englandi undir nafninu
Olympia.
Á stríðsárunum og fram til 1950
voru engar framfarir í svifflugsmíði.
Kæði Þjóðverjar og Bandarílkjamenn
stníðuðu þó svifflugur til hernaðarnota,
en lítið nýtt kom fram, aðeins notaðar
eldri hugmyndir. Aðallega voru þetta
stórar flutningasvifflugur, sem gátu bor-
um 20 hermenn í herklæðum. Kostur-
tnn við þær var, að þær gátu svifið
Idjóðlaust til jarðar og lent á hvaða
sléttum bletti sem var. Og gerði þá
Uiinnst til, þótt þær brotnuðu í lendingu,
hraðinn var það lítill að allir sluppu
ómeiddir og ekki ætlunin að nota svif-
fiuguna nema í eitt skipti.
Eftir stríðið hefur mikil framför orð-
'fr í svifflugusmíði. Útlitið hefur að
visu ekki breytzt mikið í aðalatriðum,
en hver fersentimetri á yfirborði þeirra
e>' flugeðlisfræðilega útreiknaður. Dr.
^ugust Raspel sýndi fram á það
K8—B, TF—SBF. Nýjasta sviffluga Svif-
flugfclags Ak. Keypt fró Þýikalandi 1966.
skömmu eftir 1950 að með því að vanda
sem bezt allan ytri frágang, mátti auka
svifflugeiginleikana mikið. í þessa átt
hefur þróunin því aðallega verið. Svif-
flugur nútímans eru spegilsléttar og
hvergi sést minnsta rifa eða smágat,
allt er eins straumlínulagað og hugsast
getur og hjól og dráttarkrókur eru upp-
dregin á flugi.
Keppnissvifflugum er skipt í tvo
flokka: Staðlaðan og Ótakmarkaðan. í
staðlaða flokknum skulu svifflugur ekki
hafa meira vænghaf en 15 metra, ekki
útbúnar með flöpum og ekki hafa upp-
draganleg hjól eða skíði o. fl. í Ótak-
markaða flo'kknum eru engin takmörk,
nema að ekki má vera hreyfill. Þær eru
því flestar með uppdraganleg hjól,
flapa, en vænghafið er þó sjaldan meira
en 18 metrar. Þær eru óskaplega dýrar,
og ekki á færi nema ríkustu einstaklinga
og klúbba að eignast þær. Svifflugur úr
staðlaða flokknum eru miklu ódýrari,
enda framleiddar í nokkurri fjöldafram-
leiðslu og mikið gert til að hafa þær
sein einfaldastar.
VORIÐ 19