Heima er bezt - 01.05.1997, Qupperneq 15
„heitt á könnunni,“ eins og á kosn-
ingaskrifstofum.
Árið 1920 var sími á tveimur bæj-
um í sveitinni, báðir í jaðri hennar.
Kaupfélagið nýja varð að komast í
símasamband og var þá lögð síma-
lína frá Miðey um Lágafell, síðan í
vestur, langa leið að Hallgeirsey. Ég
held að K.H.L. hafi þurft að leggja út
fé fyrir símanum í fyrstu.
Margar ferðir var ég sendur í kaup-
félagið og þótti mér nokkur tilbreyt-
ing í því. Þar var brjóstsykur í
stömpum. Á þá var letrað stórum
stöfum: Magnús Th. Blöndal. Fyrir
25 aura fékkst góður skammtur í
kramarhúsi. Súkkulaðikaramellur
voru meiriháttar, 5 aura stykkið.
Guðbrandur gaf út félagsblað. Það
hét Augnablikið, fjölritað á A-4 og
íjórar síður. Þótti fengur að blaðinu
þó lítið væri. Eíni þess var um það
sem efst var á baugi í félagsmálun-
um hverju sinni. í maí blaðinu 1923
segir t.d. frá verðlækkunum á ýms-
um vörum: Náttpottar kosta kr.
2.90, hrákadallar úr tré höfðu lækk-
að úr kr. 7.50 í 3 krónur.
Víða var komið við í þessu litla
blaði, ritstjóranum, fyrrum rit-
stjóra Tímans, var fátt óviðkom-
andi. Sú fræga skata í Þverá var
meðal efnis í einu blaðinu.
Kaupfélagsstjórahjónin Guðbrand-
ur og Matthildur, fluttu til Reykja-
víkur vorið 1928. Þau voru afar vin-
sæl og því saknað. Ágúst Einarsson
bóndi í Miðey var ráðinn kaupfélags-
stóri í stað Guðbrands.
Nú stóð mikið til. Stjórn félagsins
samþykkti að kaupa vörubíl. Ekki
þótti efni til að ráða bílstjóra, stjóri
sjálfur átti að aka bílnum, sem var af
Chevrolet gerð, líklega eitt og hálft
tonn.
Bíllinn kom frá Vestmannaeyjum á
fleka. Bjarni Jónsson bóndi á Forsæti
í Vestur-Landeyjum smíðaði yfir-
bygginguna. Ágúst kaupfélagsstjóri
var bilstjórinn og Oskar Jónsson í
Hallgeirsey í viðlögum. Bíllinn fékk
einkennisstafina RA-10.
Loks rann upp stóra stundin. Nýi
bíllinn kom brunandi norður Affalls-
bakka. Fólkið í hverfinu okkar, Úlfs-
staðahverfi, kallaði:
„Bíliinn kemur! Bíllinn kemur!“
Zeppelin loftfarið vakti ekki slíka
athygli þegar það sveif yfir Landeyj-
arnar.
Börn og nokkrir fullorðnir þutu út á
veg til þess að komast sem næst þess-
ari glæstu sjálfrennireið. Ágúst nam
staðar við túngarðshliðin og bauð í
bíltúr. Fylltist vörupallurinn af fagn-
andi farþegum. Vegurinn lá meðffam
ánni, sjálfgerður og allgóður. Þá tók
við svo kallaður Sprengisandur.
Hallgeirseyjar.
Ofan hans var snúið við. Ævintýrinu
lauk, eins og öllum ævintýrum.
En nú urðu vonbrigði með blessað-
an bílinn okkar Landeyinga. Hann
spólaði í lausasandi, en menn vissu
ekki um þann eiginleika bifreiða þá,
a.m.k. ekki í minni sveit. Kom brátt í
ljós að ekki var fær sú leið að flytja
vörur úr Sandi á bílnum. Var þó ekki
gefist upp baráttulaust, vélin „pínd“
til hins ítrasta, timbur og járn sett
undir hjólin og margir menn að ýta.
Um haustið þá er þvarr í staum-
vötnunum Affalli og Þverá, fór
Ágúst á bílnum til Reykjavíkur til að
sækja vörur. Var þá farið yfir Þverá,
sem var mikið vatnsfall, innarlega í
Fljótshlíð, þar sem áin var vatns-
minni og fastari árbotn.
Eitt sinn um vetur fór Óskar Jóns-
son í Hallgeirsey með bílinn til
Reykjavíkur að sækja vörur. Þverá
var á traustum ís. Þá gerði asahláku.
Þegar Óskar kemur að ánni við
Hemluvað var hnédjúpt vatn ofan á
ísnum. Farþegi mun hafa verið með
honum. Hann kannar ísinn og taldi
að halda mundi, lagði í flauminn á
góðum hraða og náði yfir, heilu og
höldnu.
Árið 1932 var Þverá brúuð og Af-
fallið. Þá breyttist margt. Kaupfélags-
bíllinn bilaði oft og bílvegir voru
öngvir. Álag á bílvélina talið of mikið.
Eitt sinn þá er bíllinn var að koma
úr „suðurferð" (frá Reykjavík), bil-
aði hann á móts við Kanastaði, um
10 km frá Hallgeirsey. Við feðgar á
Úlfsstöðum tókumst á hendur að
flytja bílinn til „heimahafnar.“ Tveir
hestar voru spenntir fyrir bílinn en
Ágúst kaupfélagsstjóri var við stýrið.
Mér þótti lítið leggjast fyrir þetta
tákn vélaaldar. Og þá komu „þörf-
ustu þjónarnir“ um aldir til bjargar.
Það man ég síðast til þessa bíls að
ég fór með Ágústi kaupfélagsstjóra
suður í Sand til að sækja nokkrar ol-
íutunnur. Þetta var um vetur, jörð
mjög frosin. Vegurinn heim að Hall-
geirsey var holóttur og harðfrosinn.
Líklega hafa verið fjórar tunnur í röð
beggja megin á bílpallinum. Stóðu
þær upp á endann og sat ég ofan á
einni þeirra. Um það bil sem við
erum að lenda við Kaupfélagið, veit
ég ekki fyrri til en ég ligg inni á tún-
blettinum sunnan við íbúðarhús
kaupfélagsstjórans, á milli fjögurra
olíutunna.
Ágúst snaraðist út úr bílnum og var
brugðið. Ég gæti hafa verið illa slas-
aður ef tunna hefði lent á mér. En ég
slapp vel, eiginlega ótrúlega vel. RÁ-
10 var þrátt fyrir allt, happabíll.
Árið 1930 var stofnað útibú frá
K.H.L. á Hvolsvelli og árið 1933 var
K.H.L. flutt til Hvolsvallar, hét þó enn
Kaupfélag Hallgeirseyjar og næstu ár
en svo Kaupfélag Rangæinga.
Nú er þar kaupfélag undir tveggja
stafa merki K.Á.
Heima er bezt 175