Heima er bezt - 01.05.1997, Side 40
* " / .u
Peter Freuchen:
Ferð án enda
Þetta er saga óvenjulegra og stórfenglegra atburða, og þar er hver persónan
annarri eftirminnilegri, hvort heldur er Meqúsaq gamli, fóstri Navarönu, sem tók
þátt í þjóðflutningunum, barn að aldri, dansk-færeyski skipstjórinn Tómas Olsen,
sem hitti Freuchen ungan mann á Eskifirði sumarið 1906, en hættir síðar
skipstjórn, er hann missti mann í sjóinn með ægilegum atburðum og sætti ákæru
fyrir, eða Semígak gamla, sem sjálf var dauð úr öllum æðum í ástamálum, en
reyndi af fremsta megni að egna keppinauta til bardaga um aðra konu.
Hin þróttmikla og tæpitungulausa frásögn Freuchens blæs í allt þetta lífi og
íjöri, er þeir þekkja, er lesið hafa fyrri ævisögur hans.
Seint mun fyrnast:
• frásögnin um atburðina í Pilík, þegar gullþorstinn tryllti hvítu mennina,
• örlög Norðmannsins Olafs og félaga hans í einverunni á Austur-Grænlandi,
• kraftaverk heilagrar guðsmóður, þegar hún lyfti portúgölsku skútunni upp af
hafsbotni,
• þjóðflutningar eskimóanna vestan af kanadísku eyjunum, eða ferðaraunir
Grænlendingsins, er drap bandaríska vísindamanninn, sem ekki kunni að lifa
á norðurhjaranum,
• og síðast en ekki síst, lýsingin á samlífi höfundar og Navarönu, hinnar
grænlensku konu hans.
Fáir höfundar hafa jafn lifandi frásagnargáfu sem Peter Freuchen, og þessi óviðjafnanlega frásagnargleði nýtur sín ekki síst
í þessari bók. í henni er lýst björgun 5 hvalveiðimanna við N-Grænland og ferðalagi með þá suður yfir Melvilleflóann, en
inn í þá frásögn fléttast margar ógleymanlegar sögur, þar sem hæfileikar Freuchens njóta sín betur en í nokkru öðru, sem
þessi heimskunni rithöfundur hefur skrifað. Og er þá mikið sagt.
Peter Freuchen:
Laríon
Þetta er grípandi frásögn um hinar miklu óbyggðir Alaska og frumstætt líf
indíánanna, sem landið byggðu er fyrstu hvítu skinnakaupmennirnrir komu þangað
og frumbyggjarnir komust í fyrstu snertingu við menningu hvíta mannsins. Þetta
er meistaraleg frásögn hins mikla sögumanns um baráttu náttúrubarna gegn þeim,
sem þröngvuðu sér inn á landsvæði þeirra og tókst að sá því hatri, er að lokum
endaði með hinu hroðalega blóðbaði við Núlató. Lesandinn öðlast ógleymanlega
mynd af Alaska, hann heillast af hrikaleik landsins og sérstæðum töfrum hinna
upprunalegu íbúa þess, indíánunum í skógunum miklu við Yukonfljótið.
Peter Freuchen er frægur vítt um lönd
vegna þekkingar sinnar og rannsókna,
og vegna margra frábærra bóka.
Ævintýralega atburði, sem oftast
gerast í raunveruleikanum, en fæstir
kynnast af eigin raun, leitaði hann
uppi, skráði á bækur og ávann sér
hylli og aðdáun fjöldans. Þannig varð
til sagan af Laríon, síðasta mikla
indíánahöfðingjanum í Alaska.
Tilboð til óskrifenda HEB
kr. 795.
Báðar bækurnar - burðargjald innifalið
PETER FREUCHEN
ÍARION
skuggsjá
ara
1967-1997
SERSTAKUR PONTUNARSEÐILL FYLGIR BLAÐINU
Skjaddborg ehf.
Ármúla 23-108 Reykjavík - Sími 588-2400 • Fax: 588-8994
BOKAUTGAFA