Æskan

Ukioqatigiit

Æskan - 01.04.1969, Qupperneq 14

Æskan - 01.04.1969, Qupperneq 14
Annie G. Schmidt: VONDAR hugsanir. „Það er nú kominn tími til íyrir þig að hugsa um hjónaband," sagði gamli konungurinn við son sinn. „En hverri á ég að kvongast?“ spurði prinsinn deyfðarlega. „Fallegri prinsessu," sagði konungurinn. „Og ekki einungis fallegri, heldur einnig góðri. Hún'má ekki eiga eina einustu vonda hugsun, alls enga.“ „Slíka manneskju finnum við aldrei,“ stundi prinsinn. En konungurinn kallaði á kammerherra sinn. Sá maður hafði þann ein- kennilega hæfileika að geta séð vondar hugsanir. Hann sá þær eins og svört skorkvikindi, fljúgandi kringum höfuð manna. „Heyrðu," sagði konungurinn við kammerherrann. „Síðdegis á rnorgun koma prinsessur til að velja úr. Sjálfur ætla ég að sjá, hver fegurst er, en þú, kæri kammerherra rninn, verður að sjá hvort þær hugsa nokkra illa hugsun." Og svo hófst athöfnin. Síðdegis sátu fyrir ellefu prinsessur. Þær sátu á ruggustólum úr plasti, þöglar og spenntar, því þær voru mjög óstyrkar á taug- um. „Nú byrjum við,“ sagði konungurinn. Kammerherrann byrjaði hjá þeirri fyrstu, sem var ljóshærð. „Ó!“ æpti hann og hörfaði aftur á bak. „Hvílíkur viðbjóður! Fullt af broddflugum kringum hana!“ Hjá annarri æpti liann: „Svartir tordýflar .... þúsundir!“ Hjá þeirri þriðju iiskraði liann og hljóp óttasleginn burtu: „Trylltar vesp- ur .... Hjálp!“ Og þannig gekk það til, eflir allri röðinni. Hann sá það voru vondar hugsanir prinsessanna. Konungurinn og prinsinn stóðu hjá. Þeir gátu ekki séð skorkvikindin, en undruðust mjög hæfni kammerherrans. En honum dvaklist lijá elleftu prinsessunni. Hann gekk kringum hana, horfði, hlustaði og þefaði af hárlokkum hennar. „Ótrúlegt", sagði hann nöldrandi. „Engin vond hugsun. Það er ekki nokkur vottur af vondri hugs- un í þessari stúlku, skal ég ábyrgjast." „ Jæja, þessu er þá lokið,“ sagð konungurinn glaðlega. Hinar prinsessurnar tíu voru svo í skyndi sendar heim í skrautvögnum. Áður en þær fóru, fengu þær allar kökubita í huggunarskyni, þær voru samt mjög móðgaðar, það gátu allir séð. Og ellefta prinsessan varð unnusta prinsins. Hún var óvenjulega fríð, það var satt. Hún var með djúpblá augu og kastaníubrúnt hár, og hvít var hún eins og postulínsbrúða. „Ágætt,“ sagði konungurinn og neri saman höndum. „Þetta er þá allt, eins og það á að vera.“ ► ♦ (Evintýri og sögur, frá ýmsum löndum. ♦ 1 EINN MIÐA Miðasölustúlkan i kvik- myndahúsinu varð undrandi, þegar maður, er hafði keypt af henni aðgöngumiða, kom aftur að vörmu spori og bað hana um annan. Undrun liennar jókst enn, er maðurinn kom i þriðja sinn, — fjórða sinn og ioks fimmta sinn. — Þcgar mað- urinn kom í sjötta sinn, sagði stúlkan: „Afsakið, herra minn. Þetta kemur mér að vísu cliki við, en mér finnst þér fara ósparlega með peninga. Þér þurfið aðeins einn miða til að komast inn.“ „Ég veit hað,“ svaraði maður- inn vandræðalegur, -— „en það er einhver maður i dyragætt- inni, sem rífur miðann i tvennt í hvert skipti.“ Allt er mest í Ameríku, var einhverntíma sagt. Ekki vitum viS, hvort það er rétt, en hér kemurmynd af norskum Banda- ríkjamanni, sem talinn er vera með lengsta skegg í heimi, og getum við vel trúað því, eða hvað haldið þið? Kannski þetta sé bara gabb? 190

x

Æskan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.