Æskan - 01.04.1969, Side 20
INGIBJÖRG ÞORBERGS:
TAL OG TÓNAR
„Velkomin vertu, Harpa með vorblóm þín.“
I þessum mánuði kemur sumarið til okkar. Það er alltaf gleði-
efni, þar sem langir og kaldir vetur ríkja.
Þið vitið, að í gamla íslenzka tímatalinu hétu mánuðirnir öðrum
nöfnum en nú. T. d. þekkið þið áreiðanlega Þorra karlinn! Oft er
hann heldur grimmur. Líka getur hún Góa verið köld. Svo kemur
Einmánuður og blæs oft biturt. — En svo kemur hún Harpa. Hún
hefst með sfðasta fimmtudegi í apríl, sem er einn langþráðasti
dagur íslendinga: Sumardagurinn fyrsti.
Apríl er komið af latneska orðinu aperire, sem þýðir að opna.
Vorið kemur, með hlýju og yl, svo að jörðin opnar sig fyrir gróðr-
inum.
Það er gaman að sjá ailt lifna og springa út. Við megum ekki
láta það fara fram hjá okkur. Þeir, sem það gera, fara mikils á
mis.
Ég las einu sinni sögu, sem hét „Raddir sumarsins." Þar var
sagt frá drottningu, sem langaði til að heyra til allra söngvara í
ríki sínu. Konungur lét boða þá alla. Þeir létu ekki á sér standa
og lögðu af stað til konungshallar. Nokkrir þeirra urðu samferða.
Einn þeirra hét Harmoníus. Hann var nokkuð ólíkur hinum. Á
meðan þeir töluðu, hlustaði hann á vindinn segja ævintýri. Hann
heyrði lækinn hjala. — Sá og veitti blómunum athygli, og hlustaði
á fuglana syngja. Hann bað samferðamenn sína að hlusta llka,
en þeir heyrðu ekkert og sáu ekkert sérstakt. — „Það er bara
fugl að syngja," sögðu þeir, o. s. frv. Þeim fannst það ekkert
sérstakt, og vildu halda áfram.
Loks komu þeir að konungsgarði. Þar var veizia mikil. Sumir
skemmtu með söngvum um bardaga, og aðrir með ástarljóðum. —
En þegar Harmoníus byrjaði að syngja og leika á hörpu sína, urðu
aliir hugfangnir. Það var sem öll náttúran syngi: Fuglar himinsins,
hafið, skógurinn, blómin .... allt!
Konungur vildi fá að vita hvar hann hefði lært þessa töfrandi,
fögru söngva. Þá sagðist hann hafa lært á leið sinni þann dag.
Þeir, sem höfðu orðið honum samferða, sögðu hann vera af
göflunum genginn, því að þeir hefðu engum manni mætt.
En drottningin sagðist kannast við þessa söngva. Hún lofaði
Brosandi drengur með kálfinn sinn.
Harmoníus og sagði; að það væru bara ekki allir, sem kynnu að
hlusta á raddir sumarsins.
Mér finnst hún hafa haft rétt fyrir sér, en það er sorglegt, að
svo skuli vera. Þið skulið reyna að tilheyra ekki þeim flokki.
Reyhið heldur að venja ykkur á að hafa augu og eyru opin og
gæta að hversu margt fallegt og skemmtilegt er allt í kring um
okkur, og alveg hjá okkur — aðeins ef við veitum því athygli.
Þið, sem eruð orðin stór og farin að lesa, vona ég að lesið ekki
bara tímarit með innantómum „hasarsögum". Lesið þið bækur eftir
góða höfunda, sem skynja „raddir sumarsins," eins og t. d. nóbels-
skáldið okkar Halidór Laxness. Mér, persónulega, finnst hann
ekki aðeins skynja raddir, sumarsins, heldur alheimsins!
Ég bað 11 ára snáða Björn Víking Skúlason, að velja Ijóð til
að fara með í fyrsta barnatímanum mínum á þessu ári. Varð ég
ánægð þegar hann valdi Ijóðið „Bráðum kemur betri t(ð“ eftir
Halldór Laxness. Honum fannst það svo skemmtilegt Ijóð. Ég var
honum sammála, og hugsaði, að rétt væri að semja lag við Ijóðið
og tileinka það Birni Víkingi. Nú hef ég gert það, og sendi ykkur
beztu sumaróskir með því, enda á það vel við nú um sumarkomuna.
Höfundi Ijóðsins sendi ég líka hamingjuóskir með öll verðlaun
— sem mér finnst að aldrei séu nógu mikil — og með afmælið,
en hann á líka afmæli í apríl, svo þið sjáið, að þetta er merkis-
mánuður!
Lagið er hvorki erfitt að spila né syngja. Ég bið ykkur þó að
athuga, að í því eru nokkrar taktbreytingar. — En þið áttið ykkur
áreiðanlega á því.
Svo þegar skólahuröin skellur aftur, getið þið hoppað kát úti,
eða verið inni og sungið og spilað. Ef þið grípið gítarinn ykkar
getið þið t. d. sungið Ijóðið hennar Margrétar Jónsdóttur „Krakkar
út kátir hoppa," sem ég læt ykkur hafa gítargrip við núna. (sjá
bls. 186).
Ég verð að játa, að ég er orðin þreytt á frosti og vetri. — En
ég er viss um, að „BRÁÐUM KEMUR BETRI TÍÐ MEÐ BLÓM í
HAGA.“
GLEÐILEGT SUMAR!
Ingibjörg.
Bráðum kemur betri tíð
& Ljóð: HALLDÓR LAXNESS
Lag: INGIBJÖRG ÞORBERGS
Bráðum kemur betri tíð með blóm í haga,
sæta langa sumardaga.
Þá er gaman að trítla um tún og tölta á engi,
einkum íyrir unga drengi.
Folöldin þá fara á sprett og fuglinn syngur,
og kýrnar leika við kvurn sinn fingur.
196