Æskan

Volume

Æskan - 01.04.1969, Page 28

Æskan - 01.04.1969, Page 28
|y|eSan börn eru að þroskast til 10 ára aldurs, er skóla- lærdómur alls ekkert aðalatriði. Það er svo margt ann- að, sem börnunum er nauðsyn að læra, svo sem reglusemi, hreinlæti, kurteisi og góðar umgengnisvenjur. Ef ekki er byrjað að ala börnin upp við þetta snemma, þá er lítil von að þau læri það nokkurn tíma og oft reynist þeim lífið erfitt seinna meir, ef það er aðeins bókvitið, sem öll áherzla hefur verið lögð á, meðan þau voru á bernsku- og æsku- skeiði. Til 10 ára aldurs ættu börn ekki að læra annað til bókar en lestur og vera þá allæs, einnig undirstöðu í reikningi og skrift. Þá ættu þau einnig að vera búin að læra að hirða líkama sinn og nauðsynlega reglusemi og háttvísi í umgengni við aðra. Til þess að kenna börnum allt þetta fer mikill tími og fyrirhöfn og sérstaklega þolin- mæði. Ekki er of mikið sagt, að þetta sé nóg verkefni til 10 ára aldurs. Því þau verða líka að hafa tíma til að vera börn, leika sér og vera glöð. Það þarf snemma að byrja að kenna börnunum hreinlæti. Móðirin eða fóstran þarf vitaskuld að hjálpa barninu með það dálítið fram eftir aldri, en það kemur fljótt, að það hjálpi sér sjálft, ef ekki er alltaf verið að flýta sér og reka á eftir því. Börn þurfa að hafa nógan tima og þolimæði með þeim er aðalatriðið. Það ætti að vera sjálfsagður hlut- ur að 10 ára börn, hvort heldur eru stúlkur eða drengir, ættu að geta hirt líkama sinn sjálf — þau sem eru heil- brigð líkamlega og andlega. Lengur ætti móðirin eða fóstran ekki að þurfa að baða þau eða hjálpa þeirn,, nema ef vera skyldi að Ifta eftir, að þau þvoi sér vel um hárið eða veita þeim smá hjálp til þess. Það þarf mjög snemma að byrja með reglusemina. Meðan börnin eru mjög ung hafa þau áhuga á að hjálpa til með ýmislegt, sem þau geta ekki né valda. Þennan áhuga má ekki deyða með óþolinmæði, sem því miður er alltof oft gert. Móðurinni finnst þá oft, að börnin séu of lengi og kannski skemmi það, sem þau hafi í höndum sér. Það er hægt að venja snemma hvert heilbrigt barn á reglu- semi, en þolinmæði er aðalatriði. Börn eru ekki gömul, þegar þau byrja að segja: „Þetta er mitt, ég á þetta.“ Látum þau hafa sína eigin snaga í forstofu til að hengja upp fötin sín, eins í baðherbergi sitt eigið handklæði og vitanlega verða þeirra snagar að vera í hæð við börnin, svo að þau nái auðveldlega til þeirra. Þá er nauðsynlegt, að þau hafi sfna eigin hillu undir hreinlætistæki sín í bað- herberginu og þá vitanlega í sinni hæð. Þá þarf ekki alltaf að vera að hjálpa þeim, og þau verða fyrr en varir meira sjálfbjarga og með því móti er auðveldara að kenna þeim reglusemi. Börnin þurfa líka að læra snemma að hirða skóna sína og þá er gott að búa til litlar hlífðarsvuntur handa hverju fyrir sig. Góðir litir á þeim eru dökkblátt eða grátt. Þetta er ósköp einfalt og verður meira leikur fyrir börn- in. Byrjið snemma á að láta börnin raða hlutum sínum og leikföngum og láta þau hafa stað og hillur fyrir allt í herbergjum sínum. Ef þeim er kennt mjög ungum að ganga vel frá fötunum sinum á kvöldin verður það að vana, sem fylgir þeim alltaf, en við þetta þarf mikla þolinmæði og tíma, en það borgar sig og er ómetanlegt þegar fram í sækir. Byrjið snemma að láta börnin borða sjálf og vera við borðið með þeim fullorðnu, þótt þau í byrjun ati út allt i kringum sig, þá má ekki missa móðinn, það er ótrú- legt hvað þetta kemur fljótt ef þau fá að vera sjálfstæð og ekki er alltaf verið að hjálpa þeim og taka af þeim völdin. Barn, sem ekki hefur lært sæmilega borðsiði 7 ára, lærir þá seint og hefur ósjaldan minnimáttarkennd út af því í lífinu. Kennið þeim að heilsa með handabandi og þakka fyrir sig meðan þau eru ung, það verður góður og sjálf- sagður vani, sem fylgir þeim allt lífið. Látið þau skilja fljótt, að ekki komi neitt fyrirhafnarlaust og að allir verða að hjálpa til. Það er vísirinn til þess að þau taki tillit til annarra, en verði ekki eigingjarnar leiðindaskjóður, sem öllum leiðist og ómögulegt er að umgangast. Þegar börn eru orðin 10 ára ættu þau að vera orðin Lærdómur. - Hreinlæti.-Reglusemi. 204

x

Æskan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.