Æskan

Árgangur

Æskan - 01.12.1973, Síða 11

Æskan - 01.12.1973, Síða 11
bróðir Helgu, náði i kragann á treyjunni hans og lumbraði duglega á honum. „Heyrðu, Helgal" sagði Óli á heim- leiðinni. „Hvers vegna lætur þú svona bjánalega? Segist vilja verða engill og ferð að skæla, svo allir sjá, svo að maður dauðskammast sín fyrir þig, frammi fyrir öllum bekknum." Helga varð ógn sneypuleg. „Ég gat ekki að því gert,“ sagði hún, og tárin komu aftur fram í augu hennar. „Þó að þú hefðir sagt, að þig langaði til að eignast flugvól, þá hefði það verið mikiu skynsamlegra," hólt Óli áfram, „því að auðvitað hefur það verið af því að þig langaði til að fljúga, að þú vildir verða engill. En bráðum geta mennirnir flogið engu síður en englarnir, ef engl- ar eru þá nokkrir til.“ „Mér þætti gaman að vita, hvernig vængirnir eru festir á þá,“ sagði Páll litli, hálfbróðir Helgu og Óla. Hann hafði gengið þegjandi og ekki tekið þátt í samtaiinu. „Ef ég fengi að sjá almennilegan engil, þá skyldi ég gæta vel að því og búa mér svo til vængi sjálfur," bætti hann við. „Nei,“ sagði Helga, „mig langar ekk- ert til þess að fljúga. En ég held, að það hljóti að vera svo gaman fyrir englana. Þeir eru alltaf góðir, og svo eru þeir sífellt að hjálpa öðrum og gleðja þá.“ „Var það þess vegna, að þig langaði til þess að verða engill?“ sagði Óli hálfvandræðalegur. „Mér finnst nú samt,“ bætti hann við, þegar þau höfðu gengið þegjandi litla stund, „að það vera reglulega vitlaust, að englarnir skuli vera ósýnilegir. Ef maður bara sæi þá standa hjá sér, svona mjallhvíta og fallega og hrista höfuðin, einmitt þegar maður ætlaði að gera eitthvað Ijótt, þá er ég viss um, að maður hætti við það.“ „Þeir gætu að minnsta kosti hvíslað," sagði Páii. „Ef ég heyrði rödd hvísla i eyrað á mér: „Láttu þetta vera“ — þeg- ar ég ætlaði að fara að ná mér í epli eða sykurmola, þá er ég viss um, að ég yrði svo hræddur, að ég hætti við það og hlypi í burtu.“ Helga heyrði varla, hvað bræðurnir sögðu. Hún var að veita því fyrir sér, sem svo oft hafði vakið umhugsun hjá henni: „Hvers vegna var það svo erfitt að vera alltaf góður?“ Hún vildi svo fegin verða ein af þessum góðu manneskjum, sem kennslukonan hafði verið að tala um. En það var svo að segja ómögulegt fyrir hana að láta það vera að reiðast og verða óþolinmóð, þó að hún ásetti sér, hvað eftir annað, að vera bæði stillt og góð. Nú var það þannig, að hin rétta mamma Helgu var dáin. Stjúpmóðir hennar var að vísu bezta kona, en hún var býsna hörð við Helgu. Hún heimtaði miklu meira af henni en bræðrunum, af því að hún var telpa. Hún varð að vinna alls konar verk á heimilinu, meðan bræðurnir voru úti að leika sér, og oftast var það hún, sem varð fyrir ávítum, ef eitthvað fór aflaga hjá systkinunum, hvort sem það var nú henni að kenna eða ekki. Stjúpa henn- ar áleit auðvitað, að þetta væri henni fyrir beztu, því að hún vildi gjarnan gera hana að dugandi manneskju. Hún hugsaði ekkert út í það, að gott hefði það verið fyrir Helgu að fá við og við uppörvunarorð og hrósyrði, þegar hún hafði gert eitthvað eins vel og hún gat. Hún hafði heldur enga hugmynd um, að Helgu vantaði hlýju, og að hún vætti oft svæfilinn sinn með tárum á kvöldin, af þrá eftir sinni réttu móður. Þegar Helga lagðist út af þetta kvöld, sem fyrr er frá sagt, spennti hún greip- ar og bað: „Kæri, góði guð! Lofaðu mór að verða sem fyrst að engli.“ Hún þóttist vera engill og sitja á stóru, björtu skýi og horfa niður til jarð- arinnar. Það var sumar. Allt var svo bjart og fagurt, og hún var ákaflega hamingjusöm. Nú sigldi stórt guliský fram hjá henni. Fjöldi hlæjandi englabarna sat á ský- inu: „Við höfum fengið leyfi til að mála sólarlagið í kvöld," hrópuðu þau. „Við ætlum að gera það svo fagurt, að menn- irnir hljóti að gleyma öllu Ijótu og leið- inlegu, er þeir horfa á það.“ „Mennirnir," hugsaði Helga. „Eru þeir ekki alltaf glaðir eins og við?“ Hún hafði alveg gleymt því, hvernig var að vera ( mannheimi. Nú mætti hún blýgráu skýi með hvft- um jöðrum. Það fór mjög hratt og sveif hátt yfir. Nokkrir englar sátu einnig á því. „Við erum á ieið langt burt. Við ætl- um að koma af stað þrumuveðri," sögðu þeir. „Það verður gaman að sjá elding- arnar leiftra." „Þetta voru áreiðanlega engladreng- ir," hugsaði Helga og brosti. Nú Ijómuðu í vestri hinir yndislegustu Enn er viS Iý8i sá siSur á sænskum heimilum, a8 ein af dætrunum gerist Lúsía og færi heimilisfólkinu Lúsíu-kaffi snemma morguns um miðjan desember. geislar. Fegurra sólsetur var ekki unnt að hugsa sér. „Ég ætla að fara og sjá, hvort menn- irnir verða ekki glaðir yfir þessum lita- Ijóma," hugsaði Helga. [ sama vetfangi sé skýið, sem hún sat á, svo að hún færðist nær jörðunni. Hún horfði nú niður á þjóðveg. Gam- all maður, tötrum búinn, gekk eftir veg- inum. Hann bar þungan poka á baki. Þegar birtan frá sólarlaginu skein I augu hans, setti hann pokann frá sér, rétti úr sér og stóð stundarkorn og starði á hina Ijómandi litadýrð. Helga sá, að það birti yfir hrukkótta andlitinu hans, og augun Ijómuðu. Helgu sýnd- ist gamii maðurinn allt í einu verða svo fallegur, að hana sárlangaði til þess að faðma hann að sér. En allt I einu andvarpaði öldungurinn, tók aftur pokann á bak sér og labbaði áfram leiðar sinnar, gamall og grár. Ljósið, sem eitt andartak leiftraði í aug- um hans, var horfið. Fyrir utan hús eitt, sem stóð við veg- inn, var lítil stúlka. Hún bar mjólkur- könnu f annarri hendi. Hún hafði auð- sjáanlega verið send eftir mjólk ( mjólkurbúðina og var nú á heimleið. Nú hafði hún veitt sólarlaginu eftir- tekt. Hún starði á það, full aðdáunar, og gleymdi öllu öðru. 9
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92

x

Æskan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.