Æskan

Årgang

Æskan - 01.12.1973, Side 49

Æskan - 01.12.1973, Side 49
— I næstu viku á að vera barnabókavika í sambandi við hið alþjóðlega ár bókarinnar. Finnst þér það jákvætt fram- tak? — Já, mér finnst mjög mikilvægt að benda foreldrum á góðar barnabækur og benda þeim á, hvað á að kaupa handa börnunum. Því að bækur eiga ekki að vera aðeins afmælis- eða jólagjafir, heldur hluti af lífi þeirra. Menningarráðið hefur gefið út bókaskrá, sem bóksalar útbýta ókeypis, og á hún að vera til ráðleggingar fyrir foreldra. I þessari skrá eru um 250 gamlar og nýjar barnabækur, sem enn eru fá- anlegar. Hann réttir mér laglegan pésa (umbrot og kápumynd eftir Þorbjörn Egner — það líkai). — Mér finnst, að eitthvað það markverðasta, sem for- eldrar geta gert fyrir lítil börn, er að lesa upphátt fyrir þau á hverju kvöldi. Þessar kvöldstundir með bókalestri geta grundvallað trúnað og traust samband foreldra og barna, sem endist unglingsárin og allt lífið. — Áhugi barna á leikjum og leik getur oft vaknað við lestur eða leiksýningar eins og t. d. á „Dýrunum í Hálsa- skógi“. — Það er auðvitað kostur, ef lítil börn vilja aukna leiki og fá fjörugra imyndunarafl við lestur smábarnabóka og þau vilja leika þá, sem þau sjá eða lesa um — vera dýrin eða persónurnar, sem þau eru farin að þekkja. En það er sérstaklega áríðandi, að börnin fái að þroskast og tjá sig frjálslega — þó að það sé þröngt heima fyrir. Það er frjálslegt að koma til ungra foreldra, þar sem allt ber þess merki, að það sé barn á heimilinu — á veggjunum eru lita- glaðar barnateikningar, notaðar barnabækur á borðum og stólum — bílar, lestir, brúður og kubbar í hornunum. Þar hugsa foreldrarnir minna um að hafa allt snyrtilegt og hvern hlut á sinum stað en að leyfa börnunum að vera börn. Á slíku heimili hlýtur barninu að finnast, að þar eigi það öruggt hæli og þá verður það eðlilegt athvarf þess — líka þegar það verður unglingur. — Barnabækur núna eru eitthvað svo þrungnar raun- veruleikanum. Hvaða álit hefur þú á því? Við hugsum flest mikið um það, sem gerist umhverfis okkur — um óréttlæti og ofbeldi — og mörgum rithöfund- um finnst eðlilegt að segja börnunum frá þessu strax til að venja þau við, en það ætti aðeins að eiga sér stað I bókum fyrir eldri börnin. Mér veitist eðlilegast að umrita raunveruleikann og flétta hann I ævintýramynd. „Hálsa- skógurinn" er t. d. ævintýraheimur, sem minnir að mörgu leyti á veröldina. Þar er þrá eftir friði og öryggi og að allir virði aðra. Morten skógarmús segir t. d.: „Okkur liði öllum vel hérna I skóginum, ef stóru dýrin létu litlu dýrin I friði og allir væru góðir vinir. Þá gætu þeir stóru hjálpað þeim litlu og þeir litlu hjálpað þeim stóru, því að það er margt, sem. þeir litlu geta, en þeir stóru ekki...“ Þetta sagði Morten, og það var gáfulega mælt af lítilli mús! Ég vil helzt skrifa um gott fólk I bækur fyrir yngstu lesendurna, því að sllkt fólk er auðveldast að eiga við — bæði í bókum og raunveruleikanum. Ég vil llka helzt, að endirinn sé góður — bæði fyrir refi og ræningja. I kennslubókunum hef ég reynt að efla umburðarlyndi og vlrðingu fyrir skoðunum annarra og frjálsum umræðum eins og I „Aldarrómur". — Ég vildi gjarnan fá að vita meira um kennslubækurnar. Það veit víst öll norska þjóðin, að Þorbjörn Egner ber ábyrgðina á sextán stórum bókum, sem kenna á frá öðrum Til vinstri: Það sést greinilega, að Þorbjörn Egner unir sér hjá barnabörnum sinum, sem eru frá vinstri: Haraldur 4Vi árs, Halvor 6, Eysteinn 4, Berit 6V2 og Marit V/2. Auk þess- ara fimm barnabarna er einnig Esben, bróðir Eysteins, en hann er ekki nógu stór til að fá að taka þátt í skemmtuninni. bekk I grunnskóla og að níunda bekk I æskulýðsskólum. Margir þekktir menn hafa látið álit sitt I Ijós á verki þessu, og kemur þar bezt í Ijós, hvilíkt álit menn hafa á því. Mig Iþngar til að vitna I ummæli fáeinna rithöfunda, sem getið er um I bókunum: Þegar Cora Sandel hafði fengið sjöunda og áttunda bindi, skrifaði hún: „Það er mér sönn gleði að fá að vera með I þessum bókum ...“ og seinna I bréfinu: „... úrvalið er svo hrlf- andi, að það þarf ekki barn til að gleyma sér við lesturinn. Þetta eru góðar bækur, sem öllum börnum hlýtur að þykja skemmtilegar." Herman Wildewey skrifaði: „ ... Ég leyfi yður að gera hvað sem yður lystir við verk mln.“ Og Arnulf Överland ritaði til útgáfufyrirtækisins: „Börnin lögðu bækur Egners undir sig um leið og ég fékk þær. Ég verð víst að bíða, þangað til þau hátta, hugs- aði ég. En þau fóru með bækurnar I rúmið. Þetta eru kennslubækur, sem börnin lesa ekki tilneydd heldur af löngun. Já, ég er búinn að lesa þær. Þær eru frábærar." Loks athugasemd Johans Borgens um bókina „Heims- snillingar" fyrir áttunda skólabekk: ,,... Ég hélt alltaf, að það væri mikilvægara að lesa um Picasso og Cervantes en um Napóleon og Filippus 2., en sögukennararnir voru ekki sammála. Það er gott, að við eignuðumst Egner, snilldar- ræningjann frá Kardimommubæ. Mér finnst, að bókmennta- kaflinn I „Heimssnillingar" hljóti að vera stökkbretti fyrir unglingana á sextánda ári. Á þeim aldri eru þau að taka stökkið út I þá birtu, sem við leyfum okkur enn að kalla menningu. Bókin er ýtarleg, voguð og eðlileg. Eins og svo oft áður, þegar Þorbjörn Egner á I hiut, segjum við: hvers vegna kom engum þetta til hugar fyrr?" Auk þess sem Egner hefur svo fjölþætta hæfileika hiýtur hann að hafa sérhæfileika á sviði kennslubókagerðar. Hann hefur sagt það sjálfur, að mörgum hljóti að finnast það frekt af honum, sem hvorkl er bókmenntafræðingur né kennari, að taka saman bækur fyrir aimenna skóla I Noregi. — En mér farinst það svo einfalt, segir hann blátt áfram og bætir við: — Mér finnst eins og allt, sem ég hef unnið að og öll mín áhugamál hafi verið undirbúningsvinna að þessu mikla takmarki — að semja kennslubækur. 47

x

Æskan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.