Æskan

Árgangur

Æskan - 01.12.1973, Síða 61

Æskan - 01.12.1973, Síða 61
Rósin rósin gul Talið er, að gríska skáldkonan Sapphó (uppi á 6. öld f. Kr.) hafi gefið rósinni nafnið „drottning blómanna". Það heiðursnafn ber hún enn í dag. Rósarækt er ævaforn. Sagt er, að skáldskapur Persa hinna fornu ilmi af rósum. Þeir ortu mikið um rósir og næturgala og gátu rímað þau orð saman á sínu máli (gul og bulbui). Soldáninn svaf á rósablöðum og þurfti ærnar birgðir frá rósagarðinum mikla (Gulistan), sem ævintýra- legar frásagnir gengu af. Persar fluttu rósavatn til Evrópu á miðöldum, og hafa Evrópumenn ef til vill lært rósarækt af þeim. Grikkir fluttu rósir til Italiu, og var jafnvel kornökrum breytt [ rósagarða. Rómverjar komu rósarunnum í blóm í desember f eins kon- ar gróðurhúsum. Veizluborð Rómverja voru skreytt rósa- blöðum, og rósablöð flutu i víninu. Stúlkurnar notuðu feikn af rósaolíu, sem varð afar dýr munaðarvara. Neró keisari keypti rósir fyrir 200 þúsund krónur til elnnar stórveizlul Margir kannast við máltækið að segja eitthvað „undir rós". Voru Rómverjar vanir að hafa mynd af rós I loftinu á matsölum sínum sem merki þagmælsku um það, er hjalað var undir borðum. Með Germönum var rósin tákn og ímynd ástarinnar. Unga stúlkan gaf unnusta sínum rósagrein sem tryggðapant. Síðar tók kaþólska kirkjan rósina I þjónustu trúar og listar. Flestar munu hlnar fornfrægu rósir hafa verið rauðar eða hvítar. En svo komu Tyrkir til sögunnar. Þeir ræktuðu gular rósir um aldamótin 1600, og breiddust þær út um Evrópu á 17. öld. Nú eru ræktaðar allmargar tegundir villirósa og geysi- legur fjöldi kynbættra tegunda eða bastarða. Algengasta INGÓLFUR DAVlÐSSON. garðrósin á íslandi er ígulrósin (Rosa rugosa), sem þrifst hér prýðilega, þótt komin sé alla leið frá Norður-Kína, Kóreu og Japan. Hin skemmtilega rauðblaðarós er ættuð frá fjöllum Mið- og Suður-Evrópu. Meyjarrósin (Rosa Moy- esii) vex villt I Kina, skammt frá landamærum Tíbets, I 2000—3000 metra hæð yfir sjó. Samt blómgast hún ágæt- lega I Reykjavík og á Akureyri og verður 2—3 m há alsett rauðum blómum. Margar fleiri rósategundlr vaxa vel I görðum hér á landi. En eru til islenzkar rósir? Já, meira að segja tvær teg- undir: glitrós og þymirós. Glitrósin vex aðeins hjá Kvi- skerjum í Öræfum og á þar í vök að verjast í skriðurunninnl brekku. Eggert Ólafsson nefnir hana ( ferðabók sinnl. Þyrnirósin vex aftur á móti á allmörgum stöðum (sbr. Flóru fslands). Um miðjan ágúst s.l. var t. d. allstórt svæði við Hestakleifagil (við Arnarstapahlíð) í (safirði vestra hvítt af rósablómum að sögn bæjarfógetans í (safjarðarkaupstað. Þyrnirós vex á talsverðu svæði að Klungurbrekkum i Dala- sýslu. Staðarnafnið er merkilegt og eflaust fornt. Klungur- er nefnilega gamalt nafn á rós (og lifir enn í Noregl). „Að hlaupa um kletta og klungur" merkir upprunalega að hlaupa um grjót og rósarunna, sem jafnan eru ærið þyrnóttir og erfiðir yfirferðar. Ræktaðar eru rósir á (slandi [ görðum, gróðurhúsum og stofum. Rósin er jafn vinsæl og dáð og fyrlr þúsundum ára. NÝR ÞÁTTUR — sæktu ofan í kjallara messuvin, sæktu ofan I kjallara messuvín og mjöð, ég ætla að veita henni, svo hún verði glöð, ég ætla að veita henni vel um stund.“ Brátt kemur Jón á föður síns fund, brátt kemur Jón með brennivínsglas, þrífur hann staupið, þó það sé mas, þrifur hann staupið og steypir þar á; til er henni drukkið og teygar hún þá, til er henni drukkið ýmislegt öl, glösin og skálarnar skerða hennar böl, glösin og skálarnar ganga um kring, gaman er að koma á svoddan þing, — gaman er að koma þar Guðný ber Ijósið i húsið, þá húmið að fer. Ljósið i húsinu logar svo glatt, amma gefur brauðið, og er það satt, amma gefur brauðið og ostinn við; Margrét er að skemmta að söngvara sið, Margrét er að skemmta, það er henni sýnt, — þá kemur Markús og dansar svo fínt, þá kemur Markús i máldrykkjulok, leikur hann fyrir með latinusprok, leikur hann fyrir með lystugt þel. — Ljóðin eru þrotin og lifið þið vel. Kolbeinn Þorsteinsson.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92

x

Æskan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.