Æskan - 01.12.1973, Qupperneq 64
HVAÐ SMÍÐA ÞEIR
f BARNA-
SKÓLUNUM?
Skólarnir hérna í Reykjavík og úti um
land eru nú byrjaðir af fullum krafti. Dreng-
Irnir, 9—12 ára, koma ( smíðastofurnar,
bekkur eftir bekk, 5 daga vikunnar, og
smíða þar svo sem 2 tíma á viku ( 8 eða
9 mánuði. Og hvað er það þá, sem þeir
leggja gjörva hönd að? — Jú, margs konar
hlutir eru það, og þó mest smáhlutir úr tré.
Stundum er þó handavinnan leirmótun,
smelti-vinna eða þá leðurvinna. Þeir láta
hendur standa fram úr ermum, drengirnir,
ekki vantar það, enda þarf kennarinn stund-
um að draga úr vinnuhraðanum hjá þeim
og áminna þá um vandvirkni. — Að vorinu,
f lok skólans, eru svo oft haldnar sýningar
á þv(, sem unnizt hefur yfir veturinn. Má
gera ráð fyrir að svo verði næsta vor, því
aö þá er þjóðhátíðin í nánd, 1100 ára af-
mæli byggðar íslands.
Einn barnaskólinn í Reykjavík heitir
Breiðagerðisskóli og smíðakennarinn þar
heitir Vignir Árnason, ungur maður og
ágætur smiður. Myndirnar, sem hér fylgja,
eru úr þessum skóla, og sýna þær: 1.
Kertastjaka (tekk), 2. Borðlampa (fura), 3.
Jeppabíl með kerru og 4. Borðlampa
(tekk).
KASTLEIKUR
Kast, sem ekki skeikar — hringurinn fellur niður yfir
vinninginn, og þá átt þú hann. Úrval ýmissa eftirsóknar-
verðra smámuna er lagt á gólfið. Þátttakendur taka sér
stöðu í nálægt tveggja metra fjarlægð og fá afhenta í röð
þrjá hringi sams konar og notaðir eru I hringspili — til
að freista með gæfunnar.
62