Æskan - 01.12.1973, Blaðsíða 70
inu sinni voru karl og kerllng.
Þau áttu fimm sini, sinn á hverju
ári. Ekki var fleira manna I kotinu en
þau hjónin og synir þeirra. Einu sinnl
sem oftar fóru hjóni'n út á engjar að
siá, en skildu bræðurna eftir heima,
þvl þeir voru þá svo stálpaðir orðnir,
að óhætt var að fara frá þeim. Veður
var gott um daginn, og voru bræðurnir
að leika sér úti I kringum bæinn. Þá
kom til þeirra gömul og hrum kerling.
Hún bað sveinana að gefa sér að
drekka. Þeir gerðu það. Þegar kerling
var búin að svaia sér, þakkaði hún
þeim kærlega fyrir sig og spurði, hvað
þeir hétu. Bræðurnir segjast ekkl heita
neitt.
Þá segir kerling: „Fegin varð ég að
fá að drekka hjá ykkur, þvi ég var að
þrotum komin af þorsta, en nú er ég svo
fátæk, að ég get ekki launað ykkur sem
skyldi. Þó ætla ég að gefa ykkur sitt
nafnið hverjum, og skal hinn elzti heita
Velvakandi, sá annar Velhaldandi, sá
þriðji Velhöggvandi, sá fjórði Velspor-
rekjandi og sá fimmti Velbergklífandl.
Heiti þessi gef ég ykkur fyrir svaladrykk-
inn, og vona ég, að renta fylgi nafni."
Síðan kvaddi kerling bræðurna og
bað þá muna vel nöfnin. Fór hún svo
leiðar sinnar. Um kvöldið, er foreldrar
bræðranna komu heim, spurðu þau þá,
hvort nokkur hefði komið um daginn.
Þeir sögðu eins og var og svo um nöfn-
in, sem keriing hafði gefið þeim. Þau
létu vel yfir því, karlinn og kerlingin.
Uxu nú bræðurnir upp hjá foreldrum
sinum, þangað til þeir voru uppkomnir.
Þá sögðust þeir vilja fara burt úr kotinu
og reyna til að framast á öðrum stöðum.
Foreldrar þeirra leyfðu þeim það. Lögðu
þeir nú af stað, og segir ekki af ferðum
þeirra, fyrr en þeir komu til kóngsins.
Þeir biðja kónginn veturvistar, en segj-
ast vilja fá hana annaðhvort allir eða
enginn. Kóngur sagði, að þeir skyldu
fá að vera hjá sór um veturinn, ef þeir
vilji vaka yfir og gæta dætra sinna á
jólanóttlna.
En svo stóð á, að kóngur hafði átt
fimm dætur. En tvær seinustu jólanæt-
urnar höfðu tvær þeirra horfið, sín
hvora nótt, úr meyjaskemmunni, og var
þó vakað yfir þeim. Enginn vissi, hvern-
ig þær hefðu horfið, hvergi fundust þær
þrátt fyrir allar leitir og rannsóknir, sem
kóngur hafði látið gera. Þegar bræðurn-
ir vissu, hvernig ástatt var, létu þeir
konung láta smíða nýja meyjaskemmu,
einstaka sér og mjög rammgera.
Velvakandi
og
bræður
hans
Nú komu jólin. Fóru þá kóngsdæt-
urnar þrjár, sem eftir voru, f skemmuna
og bræðurnir allir fimm. Ætluðu þeir nú
að vaka á jólanóttina yfir kóngsdætrun-
um. En þeir sofnuðu allir nema hann
Velvakandi. Ljós var I skemmunni og
hún harðlæst. Fyrri part nætur sér Vel-
vakandi, að skugga ber á einn skemmu-
gluggann, og því næst seilist inn hönd,
ógurlega stór og hrikaleg, og yfir rúm
einnar kóngsdótturinnar. Þá vekur Vel-
vakandi bræður sina í snatri, og þrífur
Velhaldandi í loppuna, sem inn seilist,
svo sá gat ekki dregið hana að sér, sem
átti, þótt hann streittist við. Kom þá
Velhöggvandi og hjó af höndina við
gluggann.
Hljóp þá sá frá, sem úti var, og eltu
bræðurnir hann. Gat Velsporrekjandi
rakið förin. Komu þeir loks að afar
bröttum hömrum, sem enginn komst uþp
nema Velklifrandi. Hann klifraði upp
hamarinn og kastaði festi niður til
bræðranna. Dró hann þá svo upp alla.
Voru þeir þá staddir við hellismunna
stóran. Þeir gengu inn I hann. Þar sáu
þeir skessu, — hún var grátandi. Þeir
spurðu, hvað að henni gengi. Hún var
treg til að segja þeim það, en þó gerði
hún það á endanum. Sagði hún, að
karlinn sinn hefði I nótt misst aðra hönd-
ina, og því lægi svo illa á sér. Þeir báðu
hana að huggast og bera sig vel, þvi
þeir gætu læknað karlinn.
„En það má enginn horfa á okkur,“
segja þeir, „á meðan við erum að lækna,
og erum við svo varkárir með leyndar-
dóm okkar, að við bindum alla, sem
nærri eru, svo enginn geti komið að
okkur, á meðan á iækningunni stendur.
— því þar liggur mikið við.“
Buðu þeir nú skessunni að' lækna karl
hennar undir eins, ef hún leyfði þeim
að binda sig. Ekki var henni um það,
en lét þó til leiðast á endanum. Bundu
þeir skessuna nú rammlega og gengu
svo inn I hellinn til karlsins. Var hann
hið ferlegasta tröll, og höfðu þeir engar
sveiflur á því, nema drápu hann undir
eins. Að því búnu fóru þeir til skessunn-
ar og drápu hana. Síðan rannsökuðu
þeir heliinn og fundu þar ekkert fémætt,
sem þeir vildu hafa á burt með sér.
Ekki urðu þeir þar heldur fleiri trölla
varir. En þegar þeir voru að rannsaka
hellinn, komu þeir að afhelli dáiitlum,
og þegar þeir komu inn I hann, sáu þeir
þar báðar hinar týndu kóngsdætur. Voru
þær þar fjötraðar inni. Var önnur þeirra
dável feit, en hin skinhoruð. Voru þær
að barma sér yfir forlögum sínum og
sagðist sú feitari eiga að deyja I dag,
því það ætti að hafa sig til jólanna.
En I þessu gengu bræðurnir inn til
þeirra, leystu þær og sögðu þeim, hvar
komið var. Glaðnaði þá yfir systrunum,
sem von var, og höfðu bræðurnir þær
heim með sór til hallarinnar og létu þær
fara inn I skemmuna til systra sinna.
Var þá enn ekki kominn dagur.
En með degi kemur kóngur út þang-
að til að vita, hvernig þeim bræðrum hafi
tekizt að gæta systranna. En þegar hann
heyrði allt, sem við hafði borið um
nóttina, og sá allar dætur sínar þar sam-
an komnar, varð hann svo glaður, að
hann réð sér varla fyrir fögnuði. Efndi
hann til stóreflis veizlu og lauk henni
með því, að bræðurnir drukku brúð-
kaup sitt til sinnar kóngsdótturinnar
hver. Urðu þeir bræður síðan allir hinir
mestu menn og lifðu bæði vel og lengi
I bezta gengi.
Og nú er þessi saga úti.