Æskan

Volume

Æskan - 01.12.1973, Page 77

Æskan - 01.12.1973, Page 77
 Jón og Pétur hlupu fram í dyrnar til að taka á móti pabba sínum, sem var að koma heim til miðdegisverðar frá störfum sínum, og þegar þeir voru komnir hvor á sitt hné, þá þurfti hann endilega að segja þeim sögu. „Jæja þá, ég sá ( dag dreng, sem var svo fjarskalega ánægður, og reynið nú að geta upþ á, hvernig drengurinn var í hátt.“ Jón, sem var minni, varð fyrri til svars og sagði: „Það hefur verið ein- hver ósköp fínn drengur, með fulla vas- ana af brjóstsykri og kökum." „Ónei,“ sagði pabbi þeirra., „Hann var ekki fínn og átti hvorki brjóstsykur né kökur." „Ég held, að það hafi verið stór og sterkur drengur," sagði Pétur, hann langaði sjálfan svo mikið til að verða stór, „og svo hefur hann riðið í nýjum hnakk á hestinum hans pabba síns.“ „Langt því frá,“ sagði þabbi þeirra, „hann var ekki stór, og hann á víst eng- an hnakk, og hann var ekki á hestbaki. Þið getið víst aldrei upp á því, svo ég verð víst að segja ykkur, hvernig hann leit út, þessi ánægði drengur. Þegar ég gekk um torgið, var rekinn stór fjárhópur gegnum bæinn, og það var auðséð, að féð var langt að komið, Anægður drengur það var svo þreytt og rykugt, og svo voru allar kindurnar að deyja úr þorsta I hitanum. Rekstrarmennirnir ráku það að vatnsbólinu og fóru að brynna þeim, og allar kindurnar hlupu að jarmandi, nema ein gamalær, hún var svo upp- gefin, að hún lagðist á steinstéttina með tunguna lafandi út úr munninum. Þá kom þar að pilturinn, sem ég var að segja ykkur frá, og hann var allur saman rifinn og bættur og óhreinn, hann var þar í stórum götustrákahóp, sem var að góna á reksturinn. Þessi drengur hljóp með hattinn sinn að vatns- bólinu, fyllti hann með vatni og bar ánni að drekka. Þetta gerði hann sex sinnum, og þá var ærin orðin svo hress, að hún stóð upp og gekk inn í hópinn. En hatturinn var víst ekki meira en svo vatnsheldur, hann var svo Ijótur og gam- aldags, að ég gæti bezt trúað því, að drengurinn hefði fengið hann eftir afa sinn.“ „Sagði þá ærin ekki þakk fyrir?" spurði Nonni litli mjög alvörugefinn. „Ekki heyrði ég það,“ sagði pabbi hans, „en andlitið á drengnum varð svo dæmalaust hýrt, ég hef aldrei séð aðra eins gleði skina út úr mannsandliti, honum þótti svona vænt um að geta hjálpað skepnunni, sem átti bágt. Li

x

Æskan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.