Æskan

Árgangur

Æskan - 01.12.1973, Síða 84

Æskan - 01.12.1973, Síða 84
MARGT BÝR í SJÓNUM ag einn þegar hinn ungi vélfræðingur Alberto Pinheiro fór sina daglegu morgungöngu, gerðist nokkuð heldur óvanalegt. Hann gekk eins og venjulega eftir hreinni og hvitri strandlengjunni við Areia Branca í Salvador í Bahia (borginni, sem var fyrsta höfuðborg Braziliu). Allt í einu kom Pinheiro auga á undarlegt dýr, sem lá á sfröndinni einmitt á þeim stað, þar sem bylgjurnar teygðu sig lengst upp á ströndina. Þetta undarlega dýr gaf frá sér smáskræki um leið og það sló með stuttum uggunum i sandinn. i fyrstu hélt Pinheiro að þetta væri litill hvalsungi, en sá fljótlega, að það gat ekki átt sér stað. Hann gat ekki gert upp við sig, hvaða dýrategund þetta væri. Þó minntl það bæði á rostung og sel. Pinheiro nálg- aðist dýrið varlega, greip snögglega í stutta uggana, en gættl þess um leið að koma ekki nálægt kjafti dýrsins, hvorki með hendur né likama. Hann sneri dýrinu við, grandskoðaði það, en var engu nær. Hann hafði hvorki heyrt um né séð slikt dýr fyrr. Það hafði athugul augu, er fylgdust með öllu, sem fram fór. Þegar Pinheiro gekk nokkur skref aftur á bak á ströndinni, hreyfði dýrið uggana ótt og títt og reyndi að elta hann, næstum eins og hundur. Pinhelro skildist fljótlega, að þetta undarlega dýr var friðsamt og vingjarnlegt, hann hafði einnig tekið eftir því, að það hafði engar tennur. Með hjálp tveggja vina sinna, sem hann náðl í, kom hann þessari undarlegu veru upp á vörubíl. Á leiðinni heim tók hann eftir því, að dýrinu leið illa f sólinni og líkami þess varð alveg þurr. Pinheiro dó ekki ráðalaus. Hjá vini sínum fékk hann lánaðan vatnstank, sem hann fyllti af sjó. Hjálpuðust siðan vinlrnir við að koma dýrinu varlega fyrir í tanknum. Dýrið tók undir eins við sér. Því leið augsýnilega vel I vatninu og leit þakklátum augum á Pinheiro og vlni hans. Það var eins og það skildi, að þelr vildu því aðelns vel, og það buslaði ánægt í vatninu. En ein gáta var óleyst. Hvers konar dýr var þetta? Var þetta einhvers konar fisktegund eða gæludýr — hvaða fyrlrbrigði var þetta? Sérfræðingar frá dýragarðinum I bænum voru fengnir til að rannsaka dýrlð, siðan sérfræðlngar alls staðar að, frá öllu landinu — það þar engan árangur. Þegar meira en 20 viðurkenndir sérfræðingar hófðu rann- sakað dýrið, voru að .lokum tveir möguleikar: — Pinheiro hafði annað hvort fundið afkvæmi sels eða rostungs, eða þá að þetta var vanskapningur. Ekki einn einasti sérfræðingur getur sagt um það með vissu af hvaða dýrategund þessi vera er. Það eina, sem vitað er, er það, að dýrið er ekki af neinni þekktri fiska- eða dýrategund. Bobo, en svo er dýrið kallað, nærist á mjög óvanalega samsettri fæðu. Eftirlætisdrykkur hans er mjólk, en aðal- rétturinn er bananar. Við og við borðar Bobo fisk, en hann fer ekki dult með það, að fiskur er enginn uppáhaldsmatur hans. Nei, sykur, konfekt, kartöflur, kál og, eins og áðan var nefnt, bananar, er eitthvað annað en fiskur. Bobo borðar um það bil 60 banana á dag, sem skiptast niður á tvær máltiðir. Hann innbyrðir tíu kiló af káli og álika mikið af kartöflum á dag, og öllu þessu skolar hann niður með 20 lítrum af mjólk. Sérfræðingar segja, að þeir þekki ekki til neinnar veru með kalt blóð, sem nærist á hverju sem er, eins og Bobo. Niðurstaðan varð nefnilega sú, að Bobo væri með kalt blóð, þó að mikið meira verði ekki um hann sagt. Bobo er svartur að lit, vegur 234 kilö og hefur hvorki hreistur né hár. Hann hefur tvo stutta en kraftalega ugga. Andlitið likist sel eða rostungi. Þetta dularfulla dýr þrífst mjög vel á landi, ef það fær sturtu við og við. En það' kann því líka vel að fá að stinga sér vlð og við í sjóvatn. Þetta er vingjarnlegt og furðulega gáfað dýr. Plnheiro, sem áður vann sem vélfræðingur, hefur nú sett upp búr fyrir Bobo. Þar hefur hann allt, sem hann þarf með, vatnstankinn með sjóvatni i, sand o. s. frv. Lifir Pin- heiro nú á því að sýna Bobo, og hvaðanæva að frá allri Brazilíu streymir fólk til að sjá þetta undarlega dýr. Bobo nýtur þess að vera miðpunkturinn og fylgist vel með þvi, sem fram fer í kringum hann. Auk þess nýtur hann þess að borða allan þann mat, sem til hans berst með hinum misllta hópi manna, sem kemur að skoða hann — og Bobo borð- ar allt. Pinheiro, sem áður hafði stritað fyrir hverjum brauðbita, býr nú f stórri villu og ekur um á nýjum bíl. í framtiðinni mun hann ekki þurfa að hafa neinar fjárhagsáhyggjur. — Það er Bobo, sem hefur fært mér gleði, segir hann ánægð- ur. — Ég hugsa að sjálfsögðu vel um hann og gæti hans eins og sjáaldurs auga míns. Ég vildi aðeins, að ég gæti náð í kvendýr handa honum, segir Pinheiro, þá gæti ég fyrst farið að græða. En þetta gengur vel. Síðan ég byrjaði að halda sýningu á honum, hef ég fengið að meðaltali 70 til 90 þúsund krónur I aðgangseyri á dag. Ég vona bara, að hann verði frískur, svo að þetta geti haldið áfram. Á hverjum degi stendur fólk I biðröð til að sjá þetta undarlega fyrirbrigði. Er Bobo fiskur eða vanskapningur? Kannskl finna sérfræðingar svar við þvi einn daginn. Það vitum við ekkl, en eitt er víst, að lukkuhjólið snerist Albert Pinheiro í hag þennan morgun, þegar hann gekk eftir ströndinnl. Hann er nefnilega á góðri leið með að verða margfaldur milljónamæringur. Lukkudvrið óbekkta í Bahia 82
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92

x

Æskan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.