Æskan - 01.02.1974, Page 10
Það var greinilegt, að ungfrú Jónsson var eitthvað
taugaslöpp og óróleg, og hún talaði og talaði og bað
Tim enn um ráð. — Fannst ungfrú Barkman, að hún
ætti að fá sér annan kjól? Til dæmis væri svartur kjóll
líklega góður, dökkt er alltaf virðulegt og fegrandi. En
Tim var með hálfan hugann við það, sem ungfrú Jóns-
son hafði sagt um mömmu, svo að hún átti bágt með að
festa hugann við þetta hjal hennar. Og báðar voru á
nálum um, að þeirra yrði saknað frammi f búðinni.
„Ég hef aldrei haft trú á, að heppilegt sé að vera ein-
lægur og hreinskilinn við viðskiptavinina; ég á ekki við,
að maður eigi .að smjaðra. Ég hef alltaf litið svo á, að
höfuðatriðið væri að selja, og selja sem mest af því dýr-
asta. En mér hefur kannski skjátlazt. Jæja, við sjáum nú
til. En gott væri að sleppa frá þessu áður en maður er rek-
inn á dyr vegna elli,“ sagði ungfrú Jónsson.
Þegar Tim var komin á kaf í annríkið frammi í búð-
inni, mundi hún fyrst eftir því, að hún hafði ekki beðið
ungfrú Jónsson um fararleyfi, og þó hafði alveg einstakt
tækifæri verið lagt þarna upp í hendurnar á henni. Og
nú eirði hugurinn hvergi nema hjá mömmu.
Stelpurnar í hattadeildinni hnipptu hver í aðra allan
daginn og kreistu kjúkur og gerðu í laumi gabb að ung-
frú Jónsson. Þær híuðu og hermdu eftir henni, svo að
hún sá ekki til, og reyrídu að veiða upp úr Tim. Ein
þóttist vera sanngjörn og sagði:
„O, mér finnst nú, að þú þurfir ekki að gera þig breiða,
Stína litla, þú sem ert búin að lita lubbann á þér eld-
rauðan. Allan mánuðinn sem leið varstu með platínu-
Ijóst hár, en í næsta mánuði verður það víst orðið hrafn-
svart. Ég held, að þú megir þakka fyrir, ef þrjú ýlustrá
verða eftir á skallanum á þér, þegar þú ert komin á ald-
urinn hennar ungfrú Jónsson."
„Biðið þið rólegar, hver veit nema andlitin detti bráð-
um af ykkur,“ skauzt út úr Tim, en í sama svip sá hún,
að ungfrú Jónsson benti henni að finna sig. Ja, það var
nú svona, að hún var búin að fara með nokkra kjóla inn
í eitt hliðarherbergið til þess að máta þá þar. Og hana
langaði til að hafa hana með í ráðum, henni fannst það
öruggara.
„Ég vildi bara, að ég gæti gert yður einhvern greiða
fyrir þetta allt,“ sagði ungfrú Jónsson, þegar Tim var
búin að hjálpa henni til að velja sér nýjan og fallegan
kjól. „Eitthvað, sem yður þætti reglulega mikið varið i-
Ungfrú Jónsson var eins og endurfædd og ólík sjálfr1
sér. Nú þurfti ekki mikinn kjark til að bera fram bænina-
„Auðvitað getið þér fengið frí,“ sagði hún. „Við hðf'
um ekki opið nema nokkrar klukkustundir á aðfangadag'
inn,“ sagði hún alúðlega, og svo var það í lagi.
SJÖUNDI KAFLI
„Jæja, leystu nú frá skjóðunni, Timma mín,“ sag®1
Anna kvöldið sem Tim kom úr Norðurlandsferðinni °S
þær sátu tvær einar í dagstofunni.
Hún hafði ekki komið á járnbrautarstöðina til þess a<5
taka á móti Tim, og hún var dálítið hissa. Hún hafði fast'
lega vænzt þess. En þegar hún kom heim að hliðinu, skild1
hún hvers vegna Anna kom ekki Ljósastikurnar, sero
þær voru vanar að kveikja á aðeins á jólunum, glóðu
tendraðar í gluggunum, og hún sá í gegnum rúðurnar,
að jólatré stóð á gólfinu skreytt og Ijósum prýtt. Og indæfr
jólamatur beið á borðinu.
„Segðu mér nú alveg eins og er, hvernig mömmu þinn1
Iíður,“ sagði Anna kvíðin.
„Hún var eiginlega ekki sjálfri sér lík, Anna mín, og
það er nú varla von, eins veik og hún hefur verið. Áreiö'
anlega miklu veikari en hún hefur viljað láta okkur vita-
En hún var einhvern veginn miklu fallegri og indælli en
áður, ég veit ekki, hvernig ég á að lýsa því, Anna. "
Kannski var það silfurhvíta hárið hennar, sem olli breyt'
ingunum, en það var svo sárt að sjá hana og þungb^rt
að fara frá henni. Mér fannst það vera svo óendanleg3
margt, sem ég þurfti að segja henni, — láta hana finna,
hve vænt mér þykir um hana, — en ég kom mér ekki a<5
því.“
„Svo-o, já, var hún orðin hvít fyrir hærum — ojæja, °8
auminginn . . ."
„Ég veit það, Anna, en mamma veit ekki, að ég ved
það. Magga ekki heldur, en ég sé eftir, að ég sagði henn1
það ekki, því að hún heldur, að mamma hafi feng1®
þetta upp úr veikindunum. Nei, það var ungfrú Jónsson,
sem sagði mér þetta, Anna. — Nei, það var ekki þannig.
8