Æskan

Árgangur

Æskan - 01.02.1974, Blaðsíða 26

Æskan - 01.02.1974, Blaðsíða 26
Þennan sólbjarta sunnudag var mjög fagurt við Troliháttan. svart/hvítar myndir, og það var mik- ið ljósmyndað og smellt af í allar áttir. Eftir drykklanga stund og góða hvíld þarna í sólskininu var setzt upp í Volvoinn að nýju og ekið áfram í áttina til bæjarins Ström. Sveinn vissi, að þegar komið væri inn í bæinn, ætti að aka aðalgötu til hægri og yfir ána, Gautelfina. Allt gekk þetta eftir áætlun. Þeir komu til Ström og stönz- uðu á torgi. Þarna var lítil verzlun, sem seldi ís og svaladrykki og fleira góðgæti. Grímur og drengirnir fengu sér ís. Skammt frá var fallegur garð- ur með gosbrunni. Eftir nokkra við- dvöl jjarna I sólskininu og hitanum héldu þeir áfram og komu brátt að vegamótum. Allir vegir I Suður-Sví- þjóð eru merktir og númeraðir, og nú sáu þeir á vegaskiltum, að þeir voru komnir að þjóðvegi númer 45 og voru því á réttri leið. Mikil umferð var eftir þjóðveginum, enda helgidagur. Þeir biðu meðan bílalestin fór fram hjá, en síðan smeygði Sveinn Volvon- um inn á aðalbrautina, og nú var heldur betur gefið í. Þarna var ekið með yfir 90 km hraða, og umferðin var jöfn og örugg. Umhverfið var hlý- legt og skemmtilegt sem fyrr. Óskar hafði orð á því, að nú væri gaman að komast í sundlaug, svo heitt var úti. Þei'r stilltu útvarpið á Stokkhólm og hlustuðu á fréttir. Það var meira um árekstra á íslandsmiðum. Kvöldið áð- ur höfðu þeir heyrt stuttar fregnir um, að brezk freigáta hefði siglt á varð- skipið Óðin. Nú var sagt betur frá þessu og í aðalatriðum, hvernig þetta gerðist. Það vakti athygli, að frétta- þulurinn sagði fyrst frá atvikum eftir fréttum, sem bárust frá íslandi. Á eftir hvernig málin voru túlkuð í London. Nú var stutt eftir til Trollháttan, og þeir beygðu til vinstri út af þjóð- veginum. RAFORKUVERIN MIKLU Enginn þeirra hafði komið til Trollháttan fyrr, en auðvelt var að rata vegna þess, hve allt var vel merkt. Þeir óku inn á aðalgötu bæjarins, og þar var stórt torg til hægri en húsa- röð, sennilega opinberar byggingar og verzlanir, til vinstri. Þarna voru líka rnerki, sem sýndu, hvernig ætti að komast að rafstöðvunum og að skipa' stigunum. Þeir óku sem leið lá geg*1' um bæinn og út úr honum hinum megin, þar sem leiðin lá niður að raf' stöðvunum. Þarna stöðvaði Sveinn bílinn í skugga hárra trjáa, því það var allt anriað en þægilegt að setjast inn í hann sjóðheitan í glampandi sólskininu. Síðan gengu Jaeir niður að ánni- Áin hefur verið leidd í stokka, og sjálfur árfarvegurinn var næstutn þurr. Þetta er klettadalur, frábærlega fallegur, og drengirnir voru hrifnir af trjágróðrinum. Á einum stað stóð ártalið 1909, og þeir gerðu sér í hug' arlund hvilíkt verkfræðilegt afrek það hefur verið að byggja þessar raf- stöðvar með þeirri tækni, sem þá þekktist. Víða hafði verið fleygað úr klettunum, og för eftir langa stálbor- ana sáust mjög greinilega. Menn gengu Jtarna léttklæddir, enda var mjög heitt niðri í gilinu. Þeir fóru Jtessu næst að bílnum og óku á öðrum stað niður í gilið, niður að hárri stíflu. Þarna voru Jreir raun- verulega við lilið eins elzta raforku- versins. Enn var eftir að skoða sjálfan skipastigann. Þeir héldu sem leið lá til baka og inn í bæinn. Eftir að hafa farið yfir brú var snúið til hægri og ekið niður eftir. Þeir sáu, hvar skip komu sigl- andi, og j>að var frá bílnum að sjá eins og skipin sigldu á þurru landi. Vegna trjágróðursins sást áin ilia frá veginum. Þormar, Óskar og Sveinn viS Volvoinn. Grímur tók þessa mynd, er þeir lögSu at staS frá Marstrand. 24
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Æskan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.