Æskan

Volume

Æskan - 01.02.1974, Page 12

Æskan - 01.02.1974, Page 12
Flugfreyjan fámafii lífinu JLi \/ l»inn 15. apríl, er flugvélin AN-24 var rétt nýlögS af stað í venjulega áætlunarferS frá Batuml tll Suhkumi, reis einn farþeganna úr sæti sinu, teygði sig til flugfreyjunnar Nadju Kurtsjenko, fékk henni umslag og sagði: — Færið flugstjóranum þetta. Nadja tók við umslaginu og gekk fram eftir vélinni — farþeginn fylgdi fast á eftir henni. Frá því, sem síðan gerð- ist, segir Suliko Sjavise, annar flugmaður, á þessa leið: — Nadja kom þjótandi inn í flugstjórnarklefann og hróp- aði: „Það er verið að ráðast á okkurl" og sneri sér strax að því að loka hurðinni fram. Þá kvað við skothvellur, Nadja féll og karlmaður um fimmtugt réðst inn ( klefann. f höndunum hafði hann riffil, sem sagað hafði verið framan af, og öskraði: „Tyrkland, Tyrklandl" Flugstjórinn svipti vélinni f krappa beygju. Tamara Skorzjevskja farþegi bætir við þessa frásögn: — Á eftir karlinum, sem réðist á flugfreyjuna, kom ungur maður um tvítugt, sem setið hafði í fremsta sæti. Hann sneri sér að okkur farþegunum, tók fram undan frakkanum riffil, sem sagað hafði verið framan af, og æpti að okkur: „Sitjið grafkyrr, annars sprengjum við vélina f loft upp. Og f þessum töluðum orðum svipti hann frá sér frakkanum, svo að allir gætu sóð handsprengjurnar, sem héngu við belti hans. Síðan hvarf hann líka inn í flug- stjórnarklefann og skellti á eftir sér hurðinni. Allt þetta gekk mjög fljótt fyrir sig, og margir áttuðu sig alls ekki strax á þvf, hvað væri eiginlega að gerast. Tveir farþegar, maður og kona, höfðu þó gert sér grein fyrir þvf og þustu að dyrum flugstjórnarklefans og reyndu að opna þær. Þegar f stað kvað við annað skot og kúlan, sem fór f gegnum hurðina, straukst við manninn og þaut yfir höfðum okkar hinna farþeganna. Og þá fór flugvélin að hendast til fyrst á aðra hliðina, sfðan hina, rétti sig af, og sviptingar hennar hófust aftur og voru mörgum sinnum endurteknar. Það voru ægilegar mfnútur... Sjavidse, annár flugmaður, heldur áfram frásögninni: — Þegar flugmaðurinn fór að svipta vélinni til, skaut glæpamaðurinn hiklaust á hann og særði hann svo alvar- lega, að flugmaðurinn missti meðvitund. Glæpamaðurinn hafði mjög góða aðstöðu, hann stóð fyrir aftan okkur og gat fylgzt með hverri okkar hreyfingu, og þegar vélfræðing- urinn okkar ætlaði að reyna að snúa sér við, var umsvifa- laust skotið á hann líka. Það var ekki aðeins, að hvaða skot sem væri gæti drepið einhvern okkar, heldur hefði það líka eyðilagt ómissandi stjórntæki flugvélarinnar — en með vélinni voru auk fimm manna áhafnar 46 farþegar og þar á meðal konur og börn. Við bárum fyrst og fremst ábyrgð á lífi þeirra. Eftir fyrirmælum ræningjanna lenti AN-24 f tyrkneska bænum Trabson. Tveir af áhöfninni voru alvarlega særðir, en flugfreyjan Nadezjda Kurtsjenko var látin. Líkskoðun leiddi f Jjós, að hún hafði verið skotin beint í hjartastað. Hún var tæplega tvftug. Þennan sama dag, rétfáður en hún fór f sfna sfðustu ferð, hafði Nadja trúað vinkonum sínum fyrir gleðitíðindum: Hún hafði fengið bréf frá kærastanum, og hann sagði henni þar, að hann kæmi eins og áformað hafði verið til Suhkumi — og þá ætluðu þau að gifta sig og hún síðan að fara með honum til Leningrad, þar sem hann er við nám. Nú liggur þetta bréf á borðinu f herbergi hennar, þar sem ýmsir hlutir hennar eru enn óhreyfðir, og þar ræddum við við nokkrar vinkonur hennar. — Við bjuggum saman hér [ þessu herbergi, segir Dusja Minina, vinkona Nödju, og fær ekkl varizt gráti. — Hún var alltaf svo kát og glöð. Og hana dreymdi um að verða kennari, hún var að búa sig undir inntökupróf f kennaraskólann... — ... Ég get ekki hugsað mér betri vinkonu, heldur Dusja áfram og þegir svo lengi, berst við tilfinningar sínar. — Hvenær við sáumst sfðast? Ég hafði fengið þriggja daga frf og flaug til ættingja minna f Kislovodsk. Við Nadja flug- um saman, þvf að þún átti vaktina um borð. Nú, ég veit ekki hvernig ég á að skýra það, eða hvers vegna það var — en við fórum að gráta þegar við kvöddumst. Einhver kona gekk fram hjá og spurði: „Hvað eruð þið að gráta, stúlkur?" Nadja brosti við henni og svaraði: — Okkur Ifður svo vel, sko, þess vegna erum við að vola... Svo hljóp hún af stað til flugvélarinnar. Og það var í síðasta sinn sem ég sá hana, svona hlaupandi. Dusja heldur áfram: — Það er erfitt að finna góð ilmvötn þarna hjá okkur f Suhkumi og f ferð minni leitaði ég að þeim, og að plötum. Hún elskaði tónlist. Ég ætlaði að gefa henni þetta f afmælisgjöf. Hún er að verða... hún hefði orðið tvítug. — Héma er bréf á borðinu, segir önnur vinkona Nadju, — það er frá systur hennar og kom i dag. Hún segir, að mamma þeirra sé búin að sjóða sultu og sé búin að senda hana — f afmælið ...

x

Æskan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.