Æskan - 01.02.1974, Síða 19
INGÓLFUR DAVÍÐSSON:
Fugl, sem
aldrei liggur
á eggjum
Ingólfur Davíðsson.
I Ástralíu og á Indlandseyjum lifa
sérkennilega sterkfætt hænsni, sem
Tallegalla nefnast, fræg fyrir volduga
hreiöurgerð. Englendingur segir svo
frá:
„Þegar ég kom til Port Enington, rak
ég fljótt augun í marga, stóra hauga,
sem hvítir menn sögðu, að innfæddir
jörðuðu dána í. En innfæddir hlógu að.
Nei, þetta væru hreiðurdyngjur Talle-
Qallahænsnahna. Enginn hvítur maður
trúði þessu þá, og eggin, sem inn-
faeddir komu með til sannindamerkis,
voru stærri en svo, að líklegt væri, að
Tallegalla-hænsn hefðu orpið þeim.
Mér þótti þetta undarlegt og fékk inn-
feddan leiðsögumann með mér til að
tannsaka haugana. Og Irásögn hans
feyndist í alla staði rétt.
Síðan hafa margir rannsakað lifnað-
srhætti þessara undarlegu hænsna.
Hafa haugarnir reynzt mjög misstórir og
Qerðir úr ýmsu efni eftir' ástæðum. Við
sjó eru þeir oft úr sandi, skeljum og
hálfrotnu þangi, en sum6 staðar úr laufi
°- fl. jurtakyns, sem hænsnin hafa dreg-
'ð saman. Stærstu haugarnir hafa mælzt
3—5 m á hæð og 20—50 m að um-
méli, þ. e. eins og væn hús! Enda
verpa fuglarnir í sama haugi ár eftir ár
°9 bæta í hann efnivið árlega. Fuglarn-
lr gæta þess vandlega að hafa alltaf
Sv° mikið jurtakyns í haugunum, að
ffam komi gerjunarhiti svo mikill, að
n®gi til að unga út eggjunum.
Varpið byrjar í október, en það er ,
vormánuður þar suður frá. Hænan gerir
^olur í topp haugsins og verpir þar í
smám saman allt að 9 eggjum, sem
hún skorðar upp á endann — með þann
mi°a niður — hlið við hlið og fyllir
siðan holurnar aftur. Eggjunum kemur
hænan fyrir misdjúpt — í 20 cm til 1 m
dýpi. Verpir hún einu eggi fjórða hvern
dag, en hún er 3—4- vikur að verpa.
Haninn heldur sig í grenndinni og lagar
hauginn, ef þurfa þykir. Eggin eru
breytileg að lit og svipuð efni haugsins.
Ungarnir koma úr eggi inni í haugnum
og brjótast síðan upp.
Önnur Tallegalla-tegund gerir sér
haug undir barrtré. Grefur hún fyrst dá-
litla grydju og fyllir hana af laufi, berki
og greinum, svo að kúfur myndast upp
af. i kúfinn gerir hún eggjahólf, eys sið-
an um 8 cm þykku lagi af sandi yfir
allan hauginn og bíður nú eftir regni.
Þegar regn hefur gegnbleytt allan
hauginn, byrjar í honum gerjun og hitn-
ar í jurtahlutunum. Þá er „útungunar-
vólin“ tilbúin, og hænan fer að verpa.
Fuglarnir byggja venjulega hauginn í
júll—ágúst, en verpa ekki fyrr en í
septemberlok. Ef ekki rignir á vana-
tíma, bíða hænurnar bara með varpið!
NAGDÝR
Nagdýr eru ekki algeng heimilisdýr
hér á landi, þótt þau séu það i öðrum
löndum, því að ræktun þeirra er mjög
fjölbreytt og skemmtileg.
Búr með hvítum músum er mikið
augnayndi. Þær eru ávallt síkvikar og
fjörugar og hafa mikla ánægju af ýmiss
konar leiktækjum, svo sem rennibraut-
um og hringekjum. Fæða þeirra er korn,
brauð og haframjöl og svo auðvitað
hreint vatn hvern dag. Afar nauðsyn-
legt er að gæta fyllsta hreinlætis við
hirðingu músanna, því annars kemur
mjög vond lykt af búrinu.
Bæði kynin hjálpast að við haugbygg-
inguna og nota bæði fætur og vængi
við verkið. Fuglarnir slótta sandinn fag-
urlega með vængjunum. Eggin liggja
stundum á „þremur hæðum“, og er
gerjunarhitinn í eggjahólfunum um 35
stig á C.
Tekizt hefur að láta Tallegatla-hænsni
unga út í dýragörðum. Þykir mönnum
mjög gaman að horfa á þau að starfi.
Er haninn sérlega duglegur við haug-
gerðina, dregur saman lauf, hleður,
gengur athugandi ■ kring og lagar hér
og þar, en skeytir Jítt um hænuna á
meðan. Síðar sækist hann þó mjög eft-
ir henni. Hænan hirðir lítt um egg eða
unga; það kemur meir í hlut karlfugls-
ins. Hann rífur ofan af haugnum, ef of
heitt verður, en ber á hann lauf í köldu
veðri. Það er nóg að gera, þótt ekki
liggi Tallegalla-hænsnin á eggjum sín-
um.
Naggrísir, oft nefndir marsvin, eru
rólynd, gæf dýr, sem auðvelt er að
hafa á heimili. Þau verða ca. 25—30
cm löng og geta verið mjög fjölbreyti-
leg á lit. Þau drekka lítið, en þurfa samt
að fá hreint vatn á hverjum degi. Fæðan
er kornmatur ýmiss konar, t. d. hænsna-
korn, eða fóðurkögglar, hert heilhveiti-
brauð eða rúgbrauð. Einnig ýmiss kon-
ar grænmeti, þó ekki blaðsalat. Gras,
fíflablöð og hey er mjög gott fæði fyrir
naggrísina.
Hamsturinn er einnig mjög þægilegur
við að eiga. Þeir vilja hafa hey í búrinu
sínu til hreiðurgerðar, en að öðru leyti
eru þeir fóðraðir eins og naggrísirnir.