Æskan - 01.02.1974, Blaðsíða 30
LJÓSBRJÓTUR
EITT OG ANNAÐ UM LJÓSMYNDUN
Umsjón: GUNNAR STEINN PÁLSSON
1. þáttur
Nú hefur verið ákveðið að hrinda af stað
nýjum þætti í blaðinu — Ijósmyndaþætti.
Slíkur þáttur var síðast í ÆSKUNNI fyrir
rúmu ári og gekk þá mjög vel. Þið voruð
dugleg að senda okkur myndir og er það
einmitt grundvöllurinn fyrir Ijósmyndaþátt-
um I blöðum eins og Æskunni. Því fleiri
myndir, sem þið sendið, því liflegri verður
þátturinn. Ekki væri lakara að fá stutt bréf
frá ykkur með myndunum, þar sem a. m. k.
kæmi fram, hvar þær væru teknar, hvenær
og á hvernig myndavélar.
En ykkur er velkomið að skrifa þættin-
um án þess að senda myndir, t. d. ef þið
viljið koma spurningum á framfæri, sem ég
gæti síðan reynt að finna svör við.
Ég vona að þið verðið fús til samstarfs
við mig um að gera þennan þátt sem bezt
úr garði og heiti á aðstoð ykkar og dugnað
við að senda myndir.
HVAÐ ER LJÓSMYNDUN?
I upphafi þessa þáttar vil ég leggja ríka
áherzlu á, að það er síður en svo nauð-
synlegt að eiga fullkomnar myndavélar til
að geta leikið sér að Ijósmynduninni. Þetta
er íþrótt eða dægradvöl fyrir alla, og hún
gerir ekki kröfur til mikils kostnaðar í upp-
hafi. Nauðsynlegt er að eiga einhverja
myndavél, sem ekki er svo gömul eða
skemmd, að myndirnar verði óskarpar eða
slæmar á annan hátt. ,
Ljósmyndun er að mínu viti skapandi
list fyrir hvern og einn, enginn á að hafa
meira gaman eða not af myndunum en sá,
sem tekur þær. Þess vegna eru engar regl-
ur til um það, hvernig eigi að taka Ijós-
myndir, slíku ræður hver og einn algjörlega
sjálfur.
Ég ætla því ekki að reyna að kenna ykk-
ur, hvernig á að staðsetja myndverkefnin
á myndina, ég ætla ekki að ákveða fyrir
ykkur, hvort fólk eigi að vera brosandi,
hlæjandi, grátandi, talandi eða hlaupandi,
þegar þið takið myndir af því. Þið eigið að
finna það alveg hjá sjálfum ykkur, hvernig
skemmtilegast er að haga myndatökunni.
En minnizt þess, að í hvert sinn sem
þið takið mynd, eruð þið að búa til verð-
mætan hlut, sem síðar getur orðið skemmti-
legt að draga fram í dagsljósið og skoða.
Þess vegna skuluð þið ávallt leggja mikla
rækt við hverja mynd, ekki flýta ykkur of
mikið, heldur gefa ykkur góðan tima til að
hugsa um og ákveða hvernig skemmtilegast
sé að fara að hlutunum.
MYNDAVÉLIN
Eins og áður er sagt, er alls ekki nauð-
synlegt að eiga dýrar og fullkomnar mynda-
vélar til að geta tekið skemmtilegar myndir,
sem bæði eru fallegar og vel teknar í alla
staði. Nú á þessum tímum tæknifullkomn-
unar eru ekki framleiddar aðrar myndavélar
en þær, sem geta flokkazt undir góðar vél-
ar miðað við sinn verðflokk, og allar vél-
ar, sama hve ódýrar þær eru, geta full-
nægt þörf eiganda síns að mjög miklu
leyti.
Góður Ijósmyndari þarf ekki að eiga
góð tæki og dýr, góður Ijósmyndari er sá,
sem vinnur markvisst að Ijósmy'nduninni
og nýtir til fulls þá möguleika, sem hann
sjálfur og myndavélin gefa honum.
Ódýrustu myndavélarnar sem fást í dag
eru kassamyndavélarnar, sem nú kallast
„Instamatic". Slíkar vélar eru framleiddar
af fjölmörgum fyrirtækjum víða um heim,
en til þessa hafa vélarnar frá Kodak verið
vinsælastar. Margir, sem ekki hafa ef til vill
nema takmarkað vit á Ijósmyndun, halda,
að þessar instamatic myndavélar séu mjög
lélegar og sumir jafnvel skammast sín fyrir
að láta sjá sig með þær. En þeir, sem
kynnzt hafa Ijósmyndun, vita, að með ein-
faldri instamatic myndavél má gera fjöl-
marga mjög skemmtilega hluti og taka
glæsilegar Ijósmyndir, sem standast sarn-
anburð við verk hvaða atvinnuljósmyndara
sem er.
Ég veit til dæmis um sænskan Ijósmynd-
ara, sem hafði unnið við Ijósmyndun (
mörg ár, þegar hann einn góðan veðurdag
fékk leið á að rogast með margar ferða-
töskur fullar af Ijósmyndatækjum með sér.
Hann setti auglýsingu í blöðin, seldi alh
dótið sitt og keypti sér instamatic mynda-
vél. Vinir mannsins urðu eðlilega mjög
hissa.á þessu háttalagi, og ljósmyndaiar
í Svíþjóð grétu fögrum tárum yfir þvf,
nú væri horfinn úr hópi þeirra einn a*
beztu Ijósmyndurum Svía.
En viti menn, tveimur árum eftir þessi
umskipti á Ijósmyndaferli Svíans, hélt hann
glæsilega Ijósmyndasýningu, og voru aNar
myndirnar á henni teknar á litlu myndavél-
ina hans.
Það eina sem þarf til að gerast góður
Ijósmyndari er því, eins og sjá má, vand-
virkni og skemmtilegt og vökult auga fyr,r
myndverkefnum.
MYNDATAKAN
Við myndatökuna verður ávallt að hugsa
vel um uppstillingu myndverkefnisins og
hvar á myndinni er skemmtilegast að hafa
aðalatriðin. Þegar ég tala um uppstillingu.
á ég ekki endilega við uppstillingu á svip"
brigðum og öðru þess háttar, heldur fyrst
og fremst um ákvörðun myndbyggingar-
innar.
Hér í þættinu höfum við dæmi um, hva
mikilvægt það getur verið að staðsetja
aðalatriðið rétt á myndinni. Þessar myndir
af stúlkunni eru allar teknar frá sama
sjónarhorni en með mismunandi uppbygP'
ingu. Þið skuluð athuga myndirnar gaum-
gæfilega og reyna að finna síðan út, hvernig
byggja má upp skemmtilegar myndir af
ýmsum öðrum verkefnum.
28