Æskan - 01.02.1974, Qupperneq 46
Fóstra
skólum, t. d. verzlunarskóla, lýðhá-
skóla eða húsmæðraskóla.
2. Heimilt er að veita urnsækjendum
skólavist, þótt þeir fullnægi ekki
menntunarkröfum 1. töluliðar, með
hliðsjón af hæfniprófum eða öðrum til-
tækum matsaðferðum og að nokkru
með tilliti til starfsreynslu á þeim
stofnunum, sem skólinn menntar
starfslið til.
3. Nemandi skal eigi vera yngri en 18
ára.
4. Nemandi skal eigi vera haldinn nein-
um andlegum eða líkamlegum kvilla
eða annmarka, er hamli honum í námi
eða starfi að dómi skólanefndar.
Nokkur bréf hafa borizt með spurningum
um fóstrunám. Þá er þess fyrst að geta, að
Fóstruskóli Sumargjafar, sem starfað hefur
síðan 1946, er nú ekki lengur til, en við
hefur tekið Fósturskóli íslands, rekinn af
rikinu. Nafnbreytingin mun einkum höfða
til þess, að nú er þessi skóli ætlaður bæði
piltum og stúlkum. Skólinn starfar þó enn
á sama stað — Lækjargötu 14B — og með
sama starfsliði. Hann er sá eini sinnar teg-
undar hér á landi. Síminn þar er 21688.
Inntökuskilyrði f Fósturskólann eru
þessi:
1. Stúdentspróf, kennarapróf frá Kenn-
araskóla íslands eða gagnfræðapróf
að viðbættu tveggja ára námi í fram-
haldsdeild gagnfræðaskóla eða að
viðbættu tveggja ára námi f öðrum
Námsgreinar
eru þessar: Uppeldis- og sálarfræði, lík'
ams- og heilsufræði, meðferð ungbarna.
átthagafræði, næringarefnafræði, félags-
fræði, íslenzka, hljómlist, rythmik, fram-
sögn, föndur, teikning, smíðar, leikfanga'
gerð, barnabókmenntir.
44