Æskan

Volume

Æskan - 01.02.1974, Page 61

Æskan - 01.02.1974, Page 61
Lesendaþjónusta BarnablaSið Æskan hefur nýlega flutt alla starfsemi sína í ný og rúmgóð húsakynni að Laugavegi 56. Með tilkomu stærra húsrýmis hafa möguleikarnir á meiri þjónustu við kaupendur blaðsins aukizt. Við höfum því ákveðið að bjóða kaupendum Æskunnar þá sjálfsögðu þjónustu að senda þeim, sem Það vilja, vörur þær og bækur, sem Bókabúð Æskunnar og bókaútgáfa hafa á boðstólum, hvert á ,ar>d sem er, gegn póstkröfu. Vöruúrvalið hjá Bókabúð Æskunnar hefur aukizt mjög mikið með tilkomu stærri og betri húsa- kynna. Þar má t. d. nefna alls konar ritföng, penna og pappírsvörur, skólabækur og töskur, allar gerðir af sPilum, margvísleg leikföng, svo sem bíla, skipa- og flugvélamódel, bangsa, brúður og brúðuhúsgögn, lísubækur og litabækur og alls kyns gjafavörur, gjafakort og pappír, dönsk og norsk vikublöð og jieira og fieira. Að sjálfsögðu eru einnig til allar nýjustu útgáfubækurnar frá öllum útgefendum lands- 'ns ásamt þeim eldri bókum, sem á markaðnum eru hverju sinni. Kaupendur Æskunnar geta skrifað eða hringt til okkar, og við munum senda gegn póstkröfu vörur sem um er beðið. Sé varan, sem óskað er eftir, ekki til hjá okkur, munum við útvega hana, sé þess nokkur kostur. Komið, hringið eða skrifið, og við munum gera okkar bezta til að liðsinna ykkur á allan hátt. Við vonum, að áskrifendur blaðsins notfæri sér þá auknu þjónustu, sem við bjóðum upp á. Okkur væru einnig kærkomnar allar ábendingar um aukið vöruval, ekki hvað sízt frá þeim kaup- endum blaðsins, sem í dreifbýlinu búa. 1 framtíðinni er ætlunin að kynna öðru hverju í Æskunni þær vörur, sem Bókabúð Æskunnar hef- Ur á boðstólum hverju sinni, ásamt verði, til hægðarauka þeim, sem vilja gera pöntun. Lesendaþjónusta Æskunnar er miðuð við alla mánuði ársins, ekki eingöngu síðustu mánuðina fyrir hver jól. Látið okkur heyra frá ykkur sem fyrst. ^okabúð Æskunnar LAUGAVEGI 56 pÓSTHÓLF 14, RVÍK - SÍMI 14235 59

x

Æskan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.