Æskan - 01.07.1978, Síða 35
N'ck Nolte hefur sést
Sv° oft með sjónvarps-
stiörnunni Kate Jackson
allir búast við fréttum af
,rúlofun eða hjónabandi.
SerT1 leikari er Nolte á
^öttunum eftir annarri
s,úlku til að leika á móti sér
Katherine Hepburn.
^ean Martin er alls
en9in fyiiibytta eins og
alda mætti eftir mörgum
^yndum hans og sjón-
VarPsþáttum. Dino, sonur
ans' segir, að þetta sé
aúeins auglýsingabrella.
^inkona Gary Grants,
aureen Donaldsson
e,ur svikið hann og segir
Verjum sem heyra vill, að
an ætli sér Warren
eatty. En þar er vfst
P'öröð fyriri
s Susan Dey, fyrrum fyrir-
s^*a’ fasr fyrsta hlutverk
11 sem kvikmyndaleikari í
s yrs,a ástin", sem er um
Sri1band ungrar stúlku við
^ a,dra mann. Annars er
n 9ift umboðsmanni
^num, Leonard Hirshan,
^ er fimmtugur og
> gist fjnna fyrjr
v Ursmuninurn. Við
eröum víst að trúa því.
SPÖRFUGLINN
OG SVÖLURNAR
Ég stóð einu sinni í garðinum mínum og virti fyrir mér
svöluhreiður undir þakskeggi hússins. Báðar svölurnar
flugu út á meðan ég var þarna staddur, og hreiðrið var
tómt.
Á meðan svölurnar voru að heiman flögraði spörfugl
ofan af þakinu, tyllti sér á hreiðurbarminn, leit vandlega í
kringum sig, veifaði síðan vængjunum aftur og hoppaði
inn í hreiðrið. Þegar hann var búinn að koma sér vel fyrir,
stakk hann höfðinu í gættina og fór að syngja hátt.
Brátt kom önnur svalan heim aftur, en þegar hún
ætlaði að fara inn í hreiðrið sitt og varð vör við hinn
óboðna gest, kvakaöi hún hátt og ákaft, baksaði hratt
vængjunum og hringaði nokkra stund fyrir utan hreiðrið,
en flaug svo í burtu.
Spörfuglinn sat hinn rólegasti í hreiðrinu og söng við
raust.
Skömmu seinna kom heill hópur af svölum fljúgandi að
hreiðrinu eins og þær væru komnar til þess að skoða
hinn óboðna gest, en flugu svo aftur í burtu.
Allt þetta umstang virtist ekki hafa nein áhrif á spör-
fuglinn. Hann hallaði aðeins höfðinu sitt á hvað og hélt
áfram að syngja.
Svölurnar komu fljúgandi aftur í hóp og virtust nú gera
eitthvað við hreiðrið og flugu svo í burtu.
En það kom í Ijós að svölurnar voru að vinna skipulega
með ferðalagi sínu fram og aftur, hver þeirra kom með
smáklessu af leir í nefbroddinum, og allar saman voru
þær smátt og smátt að loka opinu að hreiðrinu.
Þær flugu fram og til baka og huldu hreiðrið meira og
meira svo inngangurinn minnkaði stöðugt.
Fyrst í stað sást á hálsinn á spörfuglinum, síðan
höfuðið, þar næst aðeins á nefið á honum og loks hvarf
hann alveg; svölurnar höfðu múrað hann inni og flugu
síðan með hvellandi kvaki ótal hringi umhverfis húsið, en
flugu svo allar saman í burtu.
Vanessa Redgrave gekk
aldrei að eiga Franco
Nero, en hún er hreykin af
syni þeirra, Carlo, sem lék
í myndinni „Bugsy
Malone".
Snowdon lávarður hefur
hafnað 200 milljóna boði
um að skrifa bók um
hjónaband sitt og
Margrétar prinsessu.
Kannski skiptir hann um
skoðun, þegar drottningar-
móðirin deyr.
Ginger Rogers er orðin
66 ára, en hún var fræg
kvikmyndaleikkona á
árunum frá 1940—60,
hún hefur ekki mikið álit á
nútíma kvikmyndum. „Það
er enginn stíll yfir þeim,"
finnst henni.
Katherine Hepburn
lætur ekkert á sig fá, þó að
hún sé 67 ára. I nýjustu
mynd hennar er henni lyft
upp í 100 metra hæð
hangandi í loftbelg — en
hún harðneitaði að fá
staðgengil.