Æskan - 01.01.1984, Blaðsíða 52
Ef Bíbí segist ætla að fara á fætur
klukkan sex, þá fer hún á fætur klukkan
sex. Hún er ein af þeim, sem eru þann-
ig gerðir, að það er eins og inni í þeim
sé klukka, sem aldrei geti skeikað í
rásinni. Finnst ykkur þess háttar úr ekki
skrítin? Margir menn geta vaknað
stundvíslega, hvenær sem þeim sýnist,
og þegar þeir vakna, vita þeir ósjálfrátt,
hvað tímanum líður, án þess að þeir líti
á klukkuna. En margir menn hafa aldrei
hugmynd um hvað klukkan er. Bíbí fór
á fætur klukkan sex og læddist eins og
köttur út úr húsinu án þess að drekka
morgunkaffi með blessuðum heiðurs-
kerlingunum, sem hún bjó hjá. Hún þýt-
ur út í kirkjugarð og æðir um garðinn.
En allt í einu kemur henni það í hug, að
hún hefur gleymt blómunum. Ekki getur
hún þó farið til að óska henni mömmu
sinni til hamingju á afmælisdaginn án
þess að færa henni blóm eða einhverja
gjöf? Það getur hún ekki. Hún snýr við
og hleypur eins og fætur toga til torgs-
ins til þess að kaupa blóm. En þá man
hún eftir því, að hún á ekki grænan eyri!
Nú verður hún að flýta sér allt hvað af
tekur að vinna sér inn peninga. Henni
tekst ekki að finna eina einustu flagg-
stöng í neinum garði, né þvottastag í
porti. Hún vill síst af öllu þreyta íþróttina
miklu, því að nú, þegar hún er nýbúin
að eignast litastokkinn, iðar hún öll í
skinninu af áhuga fyrir því að teikna og
mála, svo að um muni. Og ef hún sær-
ist á fingurgómunum eru henni allar
bjargir bannaðar í þeim efnum
En allt í einu dettur henni snjallræði í
hug. - Skyldi nokkur maður geta látið
sér detta í hug, hvað hún tekur sér fyrir
hendur? í dag er torgdagur. Á öllu
torginu úir og grúir af bændum. Bíbí
sest á hækjur á steintröppu og byrjar
að teikna alla þá menn, sem henni
finnast skrítnir. Blýanturinn þýtur eftir
pappírnum. Bíbí rennir huganum til
hennar mömmu sinnar, sem á afmæli í
dag og liggur þarna út frá og bíður eftir
hamingjuóskum, blómum og gjöfum.
Blýanturinn skeiðar eftir blaðinu. Ýmist
dregur Bíbí upp þrekvaxinn bónda, sem
er þannig ásýndum, að vel mætti ætla,
að hann ætti alla Danmörku og auk
þess nokkuð af Noregi, eða hún teiknar
konu, sem heldur á búri með hvítum
dúfum í. Þarna kemur kona með eggja-
körfu á höfðinu, og þarna situr góðleg,
gömul kona með heila hersingu af kál-
höfðum, rauðrófum og baunum um-
hverfis sig. Þarna er ein af glæsilegustu
frúnum í borginni á gangi á torginu, og
skammt á eftir henni kemur vinnukona
hennar og heldur á torgkörfunni. Frúin
er auðvitað allt of fín til þess að bera
körfuna sjálf!
Bíbí teiknar í sífellu. Tungan iðar í
Bíbí situr og fiýtir sér aö teikna skrítnu
karlana sína.
munninum á henni, rétt eins og hún
væri að teikna þar, sjálfri sér til ánægju.
Bíbí hefur heyrt getið um mann, sem
hafði misst handleggina; hann gat
teiknað með fótunum. Bíbí hugsar með
sjálfri sér, að þetta skuli hún annars
reyna. Tærnar iða innan í skónum. Hún
finnur það glöggt, að hún getur líka
teiknað með tánum. Loks hefur hún
dregið upp tólf myndir í mesta flýti.
Tvær af þeim eru heildarmyndir af
torginu ásamt kirkjunni með flata kirkju-
turninum. Hún hleypur inn til kaup-
mannsins, vinar síns, og fær léða hjá
honum peninga fyrir fjórar tylftir af
teiknibólum. Síðan þýtur hún út að
kirkjudyrum og festir þar upp með
teiknibólum myndirnar tólf, allar með
tölu en sjálf stendur hún hjá þeim. Fólk
er varla svo skyni skroppið, að það
skilji ekki, til hvers leikurinn er gerður.
Og það líður heldur ekki á löngu, þar
til fólk tekur að þyrpast að, heil kös af
fólki. Það er naumast það hlær og gefur
hvert öðru olnbogaskot. Og heyrið þið
hve mikið það hrósar henni Bíbí! Hvað
skyldi svona mynd kosta? Bíbí er svo
stórtæk, að hún er dauðhrædd um, að
sér svelgist á, er hún nefnir
upphæðina:
- Fimmtíu aura hver mynd, segir
hún; því að í dag þarf hún sannarlega á
peningum að halda.
Hvað haldið þið, að gerist? Áður en
fimm mínútur eru liðnar, hefur hún selt
allar myndirnar! Þarna stendur Bíbí
með sex krónur í silfri og kopar. Sigri
hrósandi skundar hún inn til vinar síns
og endurgreiðir honum andvirði
teiknibólanna, en að því búnu þýtur hún
aftur út á torgið, þangað sem fallegustu
blómin eru seld. Henni finnst hún aldrei
vera búin að kaupa nægilegt. í einum
staðnum kaupir hún einn blómvönd, í
öðrum staðnum tvo. Hvílíkar rósir og
skrautblóm!
ÆSKAN
52