Æskan - 01.05.1986, Page 10
„Þú?“ segja hinir efins.
„Já, þaö er satt, ég er ekkert aö
fíflast."
„Við förum þangað örugglega í sum-
ar. Líklega verðum við að halda
hljómleika í íþróttahöllinni, bíóið
verður sjálfsagt of lítið.“
„Höfum hug á að reyna
við plötu“
— Já, hvað er annars framundan?
„Við leikum í Laugardalshöll á
Listahátíð, 16. - 17. júní; á Arnarhóli
á afmælisdegi Reykjavíkur, 18. ágúst;
á Bindindismótinu í Galtalæk og víða
á sveitaböllum.“
— Má búast við hljómplötu?
„Við eigum fimm lög á kynningar-
bandi. Við höfum hug á að reyna við
fjögurra laga plötu.“
— Eigin lög?
„Já, við leikum ekki annað - að
heitið geti. Þau verða oftast til í sam-
vinnu Vidda og Bjössa en allir koma
eitthvað við sögu.“
— Hvernig tónlist?
„Létt popprokk - við spilum „inn á
fólkið“, erum mest með einfaldar lag-
línur — en þetta á eftir að þróast. . .“
— Eftirlætistónlist — og flytjendur?
„Við höfum mjög „breiðan" tónlist-
arsmekk.“
Þeir nefna í belg og biðu of mörg
nöfn of hratt til að ég hafi við að
hraðrita.
„Spandau Ballett, Dire Strait —
Bubbi. . .“
„Stuðmenn, þeir eru okkar
menn. . .“
Bjössi: „Kona, platan hans Bubba
er mjög góð, það er góð kona. . .
Bubbi og Utangarðsmenn hafa opnað
okkur nýjan heim“.
Felix: „Þeir hafa gert góða
hluti. . .“
Viddi:,,. . . en okkur þykir enn
meira gaman að Stuðmönnum. . .“
Felix: „. . . og Spilverkið var snilld-
ar„grúppa“.“
Bjössi: „Fyrst við erum að ræða um
hljómsveitir vil ég nefna Eden og
Zkjálwandi frá Húsavík. Við höfum
trú á þeim. Þeir þurfa að fá tækifæri.“
„Það er nóg a< sólskini hjá okkur. ..!“
- Jón Ingi, Bjössi, Viddi, Gunnar og Felix.
(Spyrjanda verður hugsað til norsku
strákanna í Aha - sem komið hafa
hljómsveitinni Fra Lippo Lippi á vin-
sældalista með að nefna hana í við-
tölum!)
- Og eftir Sérstaka meðferð (= Speci-
al Treatment) eruð þið orðnir Greifar.
Af hverju skiptuð þið um nafn?
„Við syngjum íslenska texta, það er
sjálfsagt að hafa íslenskt nafn. . .“
„Við erum nú líka íslenskir - að
mestu a. m. k. . . .“
„Draumar um velgengni erlendis
hafa verið lagðir til hliðar — í bili- • •
„Annars er alltaf erfitt að velja
nafn. Tillögurnar voru
orðnar hundrað. Viddi
úr sér á æfingu og við gripum það a
lofti. - Hann var raunar mótfallin0
því í fyrstu.“
- Eitthvað spaklegt að lokum?
Þeir velta vöngum.
„Aðalatriðið í lífinu er að
brosa. . .“
„Ha? . . .“
„Það er nóg af sólskini hjá
okkur. . .“ „
„Nei, þetta er of væmið svona. • •
„Fólk á að gera það sem það lang‘ir
til án þess að skaða aðra og reyna að
láta drauma sína rætast. . .“
„Já, það er rétt. . . Þetta er ágært
svona. . .“
Ég kveð og geng út úr Túnsberg1 "7
1925 —. Einu þeirra húsa sem hafaSÍ1
Vel á minnst, hvað sögðu strákarnit
aftur um sál?
„Við leggjum sál okkar í hljóm- u
sveitina. Við ætlum að ná langt. •
örugglega
missti nafnið u
AÐ REVNAAÐ
LÁTA DRAIIMA SÍIVA RÆTAST
Texti: Karl Helgason • Myndir: Heimir Óskarsson
10