Æskan - 01.05.1986, Page 17
teiknisamkeppni æskunnar og ábyrgðar hf
Mjög góð þátttaka var í teiknisamkeppninni. Hátt á
sJötta hundrað mynda bárust. Dómnefndinni var
Sannarlega vandi á höndum. Hún hefur þó komist að
niðurstöðu:
Myndirnar tvær, sem nú birtast, þóttu túlka best í
hverju jákvæður lífsmáti og heilbrigðar lífsvenjur
felast. Þær uppfylltu líka þær kröfur sem gerðar voru
bl myndrænnar byggingar á hverju aldursskeiði.
Aðalverðlaunin, Electron tölvu, hlýtur Gísli Har-
aldsson 10 ára, Sævangi 48, Hafnarfirði. Aukaverð-
laun falla í hlut Sigrúnar Steinþórsdóttur 15 ára,
Hraunbæ 88, Reykjavík.
í næsta blaði verður sagt frá öðrum verðlauna-
höfum — 10 í hverjum flokki (7-10,11-13 og 14-16
ára) Allir þátttakendur fá viðurkenningarskjöl sín
send í þessum mánuði.
Dómnefndina skipuðu: „
Jóhann E. Björnsson forstjóri, Guðni Björnsson ,
erindreki og Jens Kr. Guðmundsson auglýsinga-
teiknari.