Æskan - 01.07.1988, Síða 6
Fatahönnun
Sæl, kæra Æska!
Mig langar mikið til að verða fata-
hönnuður. í hvaða skólum eða á
hvaða námskeiðum er fatahönnun
kennd?
M.J.
Svar:
Fatahönnun verður að lcera er-
lendis. Flestir hafa farið til Dan-
merkur en nokkrir til Frakklands og
Bandaríkjanna. Kennt er bœði á
menntaskóla- og háskólastigi. Þeir
sem tekið hafa stúdentspróf hér og
setjast síðan í nám á menntaskóla-
stigi ytra munu geta fengið nám sitt
metið að því leyti sem saman fer og
sloppið við stcerðfrceðinám til að
mynda. Hérlendis hefur verið efnt
til námskeiða í fatahönnun og hug-
myndir eru um að setja á fót skóla.
Námið tekur tvö til fjögur ár.
í Iðnskólanum í Reykjavík er
kennd fatatcekni. Það er þriggja ára
nám.
Kveðskapur og kveðjur
Hæ, kæra Æska!
Þökk fyrir skemmtileg blöð.
Hvernig líst ykkur á að birta fyrri-
part vísu og lesendur botni?
Má senda kveðjur til krakka?
Ætlið þið að halda áfram með
mynd mánaðarins?
Getið þið birt fleiri ljóð eftir Mar-
gréti Jónsdóttur? Hún yrkir svo
falleg og skemmtileg ljóð.
Kristín Jóhannesdóttir,
Mýrarseli 6, Reykjavík.
Svar:
Ágcet hugmynd virðist vera
að vísu botnið þið. . .
En. . .
Vísu botna vel og snjallt
vandi reynast kann.
Því hefur verið beint til okkar
áður að birta fyrriparta sem lesend-
ur geti glímt við að botna. Við höf-
um hikað af því að okkur hefur
fundist að við yrðum jafnframt að
leiðbeina þeim vel og vandlega sem
vildu reyna að fullgera vísu eftir
réttum bragreglum. Um það hafa
verið skrifaðar bcekur og má nefna
Bragfrceði eftir Sveinbjöm Sigur-
jónsson. Hér verðum við að láta
ticegja að nefna nokkrar meginregl-
ur - en frá þeim eru ýmsar undan-
tekningar:
Endaorðin eiga að ríma - að
minnsta kosti í annarri og fjórðu
línu ferskeytlu. (Ferskeytla: Vísa
sem er fjórar línur)
Stundum eru 1. og 2. lína látnar
ríma saman, sú 3. og 4. -jafhvel I.
og 4. og 2. og 3. -
Við vera ríma til að mynda gera,
bera, skera. Þetta tekst flestum, sem
senda okkur stökur, bœrilega.
Jafnmörg atkvœði eiga að vera í
1. og 3. línu - og x 2. og 4. línu.
Vísan á að vera stuðluð - með
tveim stuðlum í fyrri línu en einum
höfuðstaf í þeirri síðari. Með því er
átt við að samhljóði skuli koma
tvisvar fyrir í fyrri línu (- a.m.k.
annar þeirra í áhersluatkvœði) en
einu sinni í fýrsta áhersluatkvœði
síðari línu. Hér að framan er v sá
samhljóði sem stuðlar. í eftirfar-
andi vísu em sérhljóðar notaðir til
að stuðla fyrripartinn -en nota má
hvaða sérhljóða sem er á móti öðr-
um:
Allt fram streymir endalaust
ár og dagar líða
nú er komið hrímkalt haust
horfin sumarblíða.
Þetta em aðeins örfá atriði til
leiðbeiningar. Við vitum að þið get-
ið ekki tileinkað ykkur réttar að-
ferðir við vísnagerð í skyndi - en
megum ekki láta vera að segja frá
aðalreglunum fýrst við freistuðumst
til þess að verða við beiðni um að
birta fyrripart.
Að lokum: Vísa á að vera um
ákveðið efni - ekki má freistast til
þess að bulla svo að orðin rimi. . .
Við bönnum engum að senda
kveðjur en við munum ekki taka
upp sérstakan kveðjuþátt og raunar
er ekki líklegt að við birtum kveðj-
ur. Okkur berst slíkur fjöldi af þeim
að birting tœki alltof mikið rými.
Hins vegar stœkkum við Æsk-
upóstinn annað veifið til að geta
birt sem flest skemmtileg bréf um
áhugaverð efni. . .
Þátturinn Mynd mánaðarins
verður ekki í blaðinu á neestuM11
en við birtum verðlaunamyndit
samkeppninni Æskumyndir.
Við munum birta Ijóð eftir Mar'
gréti og mörg önnur góð skáld.
-Myndiraf dáðu fólKi^
Kæra Æska!
Ég þakka einstaklega vel "
veggmyndina af Whitney Houstoin
Ég er mikill aðdáandi hennar 0
hljómsveitarinnar Bros. Ég yrð* a ^
ánægð ef þið birtuð veggmynd
henni og fróðleiksmola um strákana^
Mig langar að biðja ykkur u®
birta myndir af hljómlistarfólkt
einni blaðsíðu og auglýsingar eða 01
hvað sh'kt á hinni hliðinni svo *
hægt sé að klippa út myndirnar
þess að skemma annað efni úr Æs
unni um leið.
Auður.
Svar: ^
Við tókum þetta til greina - a-rr>'
að þessu sinni.
-Eru þeir kvæntir. . •?'
Halló, frábæra Æska!
Viltu birta veggspjöld eða ®yn .
af Lou Diamond Phillips (R*tc *
Valens í myndinni La Bamba) ^0
Patrick Swayze - og heimilisf011®
dáendaklúbba þeirra? u
Eru þeir kvæntir? Hve gamlir e
þeir?
Þökk fyrir mjög gott blað.
Tinna.
Svar:
Við sögðum frá Patreki t 1
Við vitum fátt um Lou en Past*a'g
fundum við og litmynd er á bU■
L.D.Ph.l La Bamba Informatt° ’
8335 West Sunset Street Blvd ’
Los Angeles CA90069 - U.S-