Æskan - 01.07.1988, Page 38
Ungt afreksfólk_
AlltaJ er ótalmargt að gerast á
íþróttasviðinu. Þúsundir Jólks á öllum
aldri mætast í keppni í einstaklings- og
hópíþróttum - djarjri en drengilegri
eins og vera ber. íþróttaiðkun er holl
tómstundaiðja og margur býr alla ævi
að því að þroskast aj henni. EJ æjingar
eru stundaðar vel og dgggilega og
keppni háð í sönnum íþrótta-anda
uppsker Jólk ríkulega: Heilbrigða sál í
hraustum líkama. '
Nú á dögum gerir fólk sér grein fyrir
hve mikilvæg hæfileg hreyfing er fyrir
heilsu þess. Æ fleiri rækta því líkama
sinn á einhvern hátt: í sundi, á skokki, á
skíðum - og ýmsan annan máta. Kapp er
best með forsjá í þessu sem öðru - þeir
sem taka að stunda íþróttir eftir langt hlé
- eða hafa aldrei æft að heitið getur -
verða að fara varlega af stað og hyggja að
leiðbeiningum sem víða má fá; til að
mynda hafa dagblöð birt þær ítrekað
undanfarið.
Heita má að öll börn og unglingar æfi
íþróttir í einhverri mynd enda er af nógu
að taka - tilsögn er veitt í fjölmörgum
greinum í skólum, íþróttafélögum og á
mörgum öðrum vettvangi. Hollusta, sem
hafa má af því að iðka íþróttir, er að
sjálfsögu alls ekki bundin við að taka
þátt í keppni - vel má láta sér nægja að
etja kappi við sjálfan sig - æfa sig svo vel
og leggja það mikið á sig að styrki fólk
og stæli.
Keppni heldur þó mörgum við efnið
og með henni er alltaf eitthvað unnið:
Það er ánægjulegt að sigra - og það er
hollt að tapa ef því er tekið með réttu
hugarfari.
Á íslandi er margt afreksfólk - svo
margt að það verður seint upp talið. Með
því á ég við að allir þeir sem hefja
íþróttaæfingar eftir langa kyrrsetu vinni
afrek, - að alhr þeir sem bæta árangur
sinn dag frá degi á einhvern hátt afreki
nokkuð.
Afrek er líka erfitt að meta, hvert sé
mest: Árangur manns sem sigrar í al-
þjóðlegri keppni - eða dugur fatlaðs
manns sem tekur að stunda íþróttir af
kostgæfni.
í þetta sinn segjum við frá nokkrum
ungum afreksmönnum er getið hafa sér
orð í knattleikjum og frjálsum íþróttum.
Knattspyrnufélagið Týr og Tomma-
hamborgarar efndu til Tommamóts 1
Vestmannaeyjum fyrstu helgina í fih 1
sumar - í fimmta sinn. í því kepPa
knattspyrnumenn í 6. flokki, 10 ára og
yngri. Yfir 500 drengir og stúlkur úr
hðum háðu þar mikla og skemmtile§a
keppni. Færri komust að en vildu, sjö 11
voru á biðlista.
í úrslitaleik A-liða bar Fylkir úr Ar
bæjarhverfi sigurorð af ÍR úr Breiðholts
hverfi í Reykjavík. Um 3. og 4. sseti léhu
FH (Fimleikafélag Hafnarfjarðar)
Valur úr Reykjavík. Lið FH varð hlut
skarpara.
Til úrslita í flokki B-liða léku FH °°
Völsungur frá Húsavík. Hafnfirðingar
sigruðu. Stjarnan í Garðabæ hlaut 3.sseU
- hafði betur í viðureign við Fylki eftú
vítaspyrnukeppni en leiknum sjálfurn
lauk með jafntefli, einu marki gegn einU!
Margir snjallir leikmenn vöktu athýg
á mótinu. Valið var fyrsta landsliðið i '
aldursflokki og lék það vináttuleik V1
Eiður Smári Guðjohnsen, markahæsti leikmaður
Tommamótsins, er sonur vinsæls og velþekkts
knattspyrnumanns. . . Þið getið ykkur til um
hann, - landsliðsmanninn, Belgíumeistarann . . .
Eiður Smári skoraði 27 mörk!
Arnar Þór Viðarsson úr FH var kosinn besti
leikmaður mótsins.
„Þetta er að sjálfsögðu stórkostleg stund. . .
En ég átti ekki von á að fá þessa
viðurkenningu. Það voru svo margir sem komu
til greina, “ sagði hann eftir
verðlaunafhendinguna.
Arnar á ekki langt að sækja
knattspyrnuhæfileikana. Hann er sonur Viðars
Halldórssonar sem lengi lék með íslenska
landsliðinu.
Hörður Gylfason, 10 ára KR-ingur, var ki6rin?,a
besti markvörður keppninnar. Hann vakti m'k
athygli og sýndi oft á tíðum glæsilega
markvörslu.
„Ég hef leikið í marki frá því að ég byrjaði
fyrst að æfa. Afi minn, Hörður Helgason, var.
markvörður á ísafirði og þess vegna ákvað 09
vera í þeirri stöðu, “ sagði Hörður.
fSSKt*