Æskan - 01.07.1988, Blaðsíða 48
Vísindaþáttur llj V 1 i ^ .
Umsjón: ÞórJakobsson I n m 1§§ |Ft
veðurfræðingur j M J jf CC V ^
í eðlisfræði, sérstaklega í undirgrein
hennar sem kallast aflfræði er hreyfmg
hluta rannsökuð í smáatriðum. Reynt er
að útskýra samspil krafta sem verka á
hlutina og valda breytingum á staðsetn-
ingu þeirra - eða með öðrum orðum
áhrif krafta sem valda því að hlutur
hreyfíst.
í kennslubókum fyrir byrjendur á
þessu sviði eru einföld dæmi svo sem um
hreyfingu kubbs sem rennur niður halla
eða bratta. En dæmin verða smám saman
erfíðari. Hringhreyfing kemur til sög-
unnar í sumum dæmanna, tregða sem
steitist gegn breytingum á hreyfingunni
og margt fleira.
Aflfræðinni er beitt á mörgum sviðum
náttúruvísinda, t.d. verkfræði og jarðeðl-
isfræði. Hreyfing vökva og lofttegunda
er mjög mikilvægt verkefni í hafeðlis-
fræði og veðurfræði og oft mjög erfitt því
að ýmiss konar áhrif flækja dæmið. Á ég
þá við áhrif sem valda breytingum á
ástandi efnisins, hita, raka o. fl.
Það sem nú hefur verið sagt kemur
ykkur sjálfsagt ekki spánskt fyrir sjónir
(= finnst ykkur ekki skrítið). En senni-
lega kemur ykkur á óvart að aflfræði
skuli vera notuð við rannsóknir á dansi!
Er þá hægt að nota eðlisfræði og
stærðfræðilíkingar til að útskýra dans-
in
hreyfingar? Jú, það er reyndar til dálítið
sem nefnt er „eðlisfræði dansins“. Fyrir
nokkrum árum kom út bók um þetta
efni eftir bandarískan prófessor í eðlis-
fræði, Kenneth Laws að nafni. Grein eft-
ir hann birtist einnig í tímariti banda-
ríska eðlisfræðingafélagsins „Physics
today“ (Eðlisfræði á okkar tíð). Þaðan
eru myndirnar sem fylgja vísindaþætti
Æskunnar að þessu sinni.
Prófessorinn greinir frá rannsóknum á
jafnvægi og hreyfingum balletdansara
þegar þeir leika listir sínar. Hreyfingarn-
ar eru greindar sundur í tegundir og
krafta, sveiflur og breytingar á þyngdar-
punkti dansarans eru ákvarðaðar.
Laws prófessor heldur því fram að
mikið gagn geti verið að þekkingu á hreyf-
ingunum. Enginn skyldi þó ætla að hann
svífi algerlega í loftinu og hafi aldrei
kynnst ballet af eigin raun því að hann
leggur einmitt sjálfur stund á listina.
En hvað sem því líður er þessi list-
grein nú þegar gömul í hettunni og
margir snjallir dansarar og mikilhæfir
kennarar hafa lagt stund á dans án þess
að grípa til margföldunartöflunnar hvað
þá meir. Það er því von að sumir efist
um þörf á aflfræðilegum útskýringum á
snúningshraða og svifstökkum ballett-
dansara. En Laws og skoðanasystkini
hans benda á kostina við aukinn skil^
á sjálfum hreyfingunum í allri sinni H
breyttu mynd þótt takmarkið sé fa&uf