Skírnir - 01.04.1917, Síða 19
rl28 Nýtizkuborgir. [Skirnir
-ágætt sjúkrahús. Kaupfélag hafa þorpsbúar stofnað og
kaupa þar allar nauðsynjavörur sínar. Sjálfur Sir Lever
stýrir allajafna umræðum á fundum og tekur þátt í þeim,
en ekki tekur hann neinum illa upp, þó hann segi hisp-
urslaust meiningu sína og mæli móti húsbóndanum. Sagt
er að Sir Lever sé ræðuskörungur, enda er hann þing-
maður á þingi Breta. Hann heíir lagt mikið í sölurnar
fyrir vinnufólk sitt og gefur því aukreitis hlutdeild í gróða
verksmiðjanna. Port Sunlight er viðbrugðið fyrir fegurð
og fyrirmyndar skipulag, en engir geta leikið slíka borg-
.arbygging eftir nema vellauðugir menn. Slíkar auðmanna-
stofnanir geta því ekki orðið allskostar til fyrirmyndar
fyrir almenning og ýkja margir eru þeir ekki, sem hafa
slíkan brennandi áhuga fyrir velgengni hjúa sinna, að þeir
leggi stórfé af mörkum úr sínum eigin vasa. Af Bourn-
ville og Port Sunlight mátti læra fagurt og hentugt skipu-
lag fyrir bæi og Cadbury hafði sýnt það í verkinu, að vel
mátti láta allt bera sig, án þess að gefa nokkrum neitt.
Með heilbrigði almennings hefir reynslan verið svipuð
í Port Sunlight og i Bournville. Börn taka þar og ótrú-
legum þroska. Verkamannabörnin í Port Sunligt þrífast
jafnvei betur en börn ensku auðmannanna. Er hér sýnd
meðalþyngd skólabarnanna (ensk pund).
Börn fátækl. i Liverpool. Börn rikra. Börn í Port Sunlight.
7 ára 43,0 49.3 50,5
11 — 55,5 70,0 79,5
14 — 71,1 94,5 108,0
Hæð barnanna svaraði til þyngdarinnar. Átakanleg-
ur er munurinn á böi'num verkafólksins i Liverpool og
börnunum í Port Sunlight, og má nærri geta hverja þýð-
ingu hann hefir fyrir alla framtíð uppvaxandi kynslóðar-
innar. Jafnvel heilbrigðisfræðingar, sem vita vel hver
áhrif góð húsakynni og heilbrigður lifnaðarháttur hafa,
myndu tæpast hafa búist við að hann yrði svo gífurlegur!
Það var ómótmælanlegt eftir þessari reynslu að dæma,
að bæjarlífið gat orðið gott og heilbrigt í flesta staði, ef
borgirnar voru vel úr garði gerðar, jafnvel engu lakara