Skírnir - 01.04.1917, Qupperneq 37
144
ísland og Norðurlönd.
[Skírnir
kynferðissjúkdóma og drykkjuskap. Ef menn hagnýta sér
„auðæfi þau er ísland heflr l'rá náttúrunnar hendi er eng-
inn vafi á þvi, að það á sér glæsilega framtíð hvað efna-
haginn snertir. Eg á hér einkum við búnaðinn og fiski-
veiðarnar, og iðnaðargreinir þær, er standa í sambandi
við þessa atvinnuvegi og fá verkefni þaðan. Margs má
vona en alt er í bernsku enn.
Eg ber nú það traust til íslenzku þjóðarinnar, að við
getum sjálfir smíðað gæfu sjálfra vor, sjálfir leitt okkur
sjálfa í þessu öllu saman, en þar sem við erum fáir og
fátækir er lildegt að framfarirnar verði nokkuð hægfara,
og vist er það, að hægt er að fiýta fyrir þeim ef bræðra-
þjóðir okkar vilja skerast í leikinn með okkur. Eyrst og
fremst þarf fólksfjöldinri að aukast, og þá verður manni
á að spyrja, hvort enginn vegur sé til þess að beinakvisl
af útflutningastrauminum frá hinum norrænu löndunum
upp til íslands. Þetta er mál sem hefir verið rætt tals-
vert á íslandi, líka á alþingi, og mönnum er fullljóst að
slíkt væri í alla staði ákjósanlegt, en'hingað til hefir ekk-
ert verið gert að kalla má til að brýna þetta fyrir alþýðu
manna i hinum löndunum. Auðvitaðjer’skynsamlegast að
beina útflutningi úr hvaða landi sem er fyrst og fremst
til þeirra liéraða í landinu sjálfu þar sem fólksekla er, eg
á t. d. við Norrland í .Svíþjóð, en þar næst á eftir finst
mér bróðurlöndin koma. Og eg vildi leyfa mér að benda
á ísland sem framtíðarland, að því er þetta snertir. Lífs-
kjör manna eru í rauninni ekki mjög ólík því sem gerist
á stórum svæðum á vesturströnd Noregs, einkum norðan
til, og reynslan sýnir að Eorðmönnumjgetur liðið ágæt-
lega á Islandi. Og að minsta kosti verða þá niðjar út-
flutta fólksins norrænir, en í Ameríku og Astralíu hverfa
þeir eftir fáeinar kynslóðir alveg upp í útlendu þjóðirnar.
Norrænu þjóðirnar hafa gagnað heiminum talsvert með
því að taka sjálfum sér blóð við og við, með því að flytja
að heiman hópum saman i önnur lönd. En viljið þið
segja mér hvaða nýlenda Aorðurlandaþjóða hefir orðið
Norðurlöndum til mests gagns ogjgleði? Sannarlega ekki