Skírnir

Árgangur

Skírnir - 01.04.1917, Síða 38

Skírnir - 01.04.1917, Síða 38
■‘Skdrnir] ís'land og Norðurlönd. 145 rsænska nýlendan, sem varð kjarninn í rússneska heims- ríkinu, og heldur ekki hin voldugu ríki Dana og Norð- manna á Bretlandseyjum og Frakklandi, en það er norska mýlendan á íslandi, lítilsmegandi gagnvart öðrum þjóðum ær á völdin og máttinn er litið, en það er nú samt einasta norræna nýlendan þar sem sjálfstæð norræn menning hefir :getað haldist, og okkar litla þjóð hefir gert hvað í hennar valdi stóð til að endurgjalda okkar gamla móðurlandi, ’Noregi, með því að vernda hina fornu sameiginlegu tungu 'vora, og minningar fornrar frægðar, og þá um leið margt -og mikið um hinar bræðraþjóðirnar. A þennan hátt er Island orðið eitt af þeim böndum, sem tengir norrænu þjóðirnar hvað mest saman; það er gamalt orðtæki að allar leiðir liggi til Rómaborgar — en í sögu Norðurlanda iiggja allar leiðir til Islands. Mig langar nú samt ekki til þess að fara að útmála hér fyrir okkur ágæti forfeðra vorra. Við Islendingar á tuttugustu öldinni stundum auðvitað vandlega fornmál okkar, bókmentir og menning, en það gerum við auðvitað fyrst og fremst sjálfra okkar vegna og ekki vegna bræðra- þjóðanna, enda þótt það geti komið fyrir að þær geti haft gagn af því, og líka af andlegu lífi okkar nú á dög- um. Miklu fremur vildi eg minnast á það livað við Is- lendingar eigum að þakka hinum norrænu þjóðunum. Fyrst vil eg þá byrja á þeirri þjóð, sem við erum gestir hjá þessa daga. Hvað á ísland Noregi að þakka! Já, hvað á barnið móður sinni að þakka? Við eigum Noregi að þakka það að við erum til, fjöldinn allur af forfeðrum vorum er þaðan kominn, enn mælum við á hina fornu tungu Norðmanna, það sem þeim er heilagt úr minningu liðins tíma er um leið heilagt fyrir okkur. Þegar við íslendingar komum til Vestur-Noregs, i Sogn og í Harðangur, þau héruð, sem flestir forfeður vorir eru komnir frá, þá er það sem einskonar pilagrímsferð fyrir okkur, og okkur vii'ðist fólkið vera svo líkt að útliti og líkamsburðum löndum okkar heima, og eg býst við því, að ef grenslast væri vandlega eftir þvi, myndi það sýna 10
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119

x

Skírnir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skírnir
https://timarit.is/publication/59

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.