Valsblaðið - 11.05.1961, Blaðsíða 7
VALSBLAÐIÐ
o
svo til, að við ólafur vorum að taka til í prentsmiðjunni, en í þessu
herbergi var þá geymt skrifborð Jóns Sigurðssonar forseta. Þegar
við vorum að laga til í kringum borðið og undir því, kom allt í einu
fótknöttur veltandi undan borðinu. Átti Ólafur knöttinn, og var hann
að vísu allslitinn, en þó sæmilegur.
Falaði ég þegar af honum knöttinn, og varð það úr að Ólafur seldi
mér hann fyrir 2 krónur! Utan um þennan knött, sem valt upp í fangið
á mér undan skrifborði Jóns Sigurðssonar hópuðust svo fyrstu áhuga-
mennirnir í KFUM í knattspyrnu, og má rekja þangað vísinn til þess,
að Valur varð til.
Ekki er ósennilegt að hinum áhugasömu ungu mönnum hafi þótt
sem þetta væri bending til þeirra að hefjast handa um stofnun félags,
og vafalaust hefur Guðbjörn útskýrt þetta á sinn hátt.
Félagið stofnað.
Var nú vaknaður almennur áhugi meðal drengjanna urn að stofna
knattspyrnufélag innan KFUM. Portið var orðið of þröngur leikvangur,
til knattspyrnuiðkana, og eins hitt að það var kostnaðarsamt fyrir
piltana að þurfa að greiða hvað eftir annað úr léttri pyngju, fyrir
brotnar rúður! Það þurfti því að leita út fyrir portið, að nothæfum
bletti til að sparka á.
Það er því boðað til stofnfundar hinn 11. maí, og mun Guðbjörn
Guðmundsson hafa haft aðalforgöngu þar um, ásamt Guðmundi Guð-
jónssyni. Um þetta segir Guðbjörn í grein í 25 ára afmælisriti Vals
m. a.: ,,Ég minnist enn vel dagsins, þegar við, nokkrir drengir úr
U.D. í KFUM, komum saman á lestrarstofunni til að ræða um það,
hvort ekki væri hægt að stofna knattspyrnufélag innan KFUM, og þó
eru liðin 25 ár.
Úti var glampandi sólskin, logn og hiti — einn af þessum dásam-
lega fögru vordögum, þegar allt iðar af lífi og fjöri. — Ég hafði boðað
nokkra drengi úr U.D. á fundinn, þá sem mestan áhuga höfðu sýnt
í störfum um veturinn.
Ég man ekki fyrir víst hve margir voru boðaðir, en mig minnir að
þeir væru 12. Aðeins tveir þriðju hlutar komu, og af þeim, sem
mættu, var aðeins um helmingur sem vildu taka þátt í slíku félagi,
eða alls 6.“
Og þessir 6 voru: Filippus Guðmundsson síðar múrarameistari,
Guðbjörn Guðmundsson síðar prentari, Hallur Þorleifsson síðar bókari,
Jóliannes Sigurðsson síðar prentari, Páll Sigurðsson síðar prentari og
Stefán ólafsson síðar vatnsveitustjóri á Akureyri (andaðist 1927).
Á framhaldsstofnfundi, sem haldinn var 28. maí bættust þessir við:
Guðmundur Guðjónsson síðar verzlunarstjóri, Kristján Gíslason síðar
járnsmiður, (hefur verið sjúklingur í fjöldamörg ár.) Loftur Guðmunds-
son síðar kgl. hirðljósmyndari, Ottó Jónsson síðar múrari, Sveinn
Þorkelsson síðar kaupmaður og Björn Benediktsson síðar prentari,
Helgi Bjarnason og Einar Einarsson. Mátti þetta varla minna vera
eða eitt lið og þrír til vara!“
Fyrsta stjórn félagsins var þannig skipuð: Loftur Guðmundsson,
formaður, Hallur Þorleifsson gjaldkeri og Jóhannes Sigurðsson ritari.
Lofti var margt vel gefið, var fjörmaður mikill og áhugasamur.
Ilann var organleikari í KFUM, samdi tónsmíðar, liann gat brugðið
sér í gerfi sjónhverfingamannsins, og ekki mun það hafa skaðað fylgi
hans að hann var þeirra snjallastur að leika með knöttinn — leika á
næsta mann. — Um þetta leiti vann hann í Thomsensmagasin og var
þar nokkurskonar miðstöð drengjanna og þaðan stjórnaði hann flestu:
Guðbjöi'n Guðmundsson.
Guðmundur Kr. Guðjónsson.