Valsblaðið - 11.05.1961, Blaðsíða 122
120
VALSBLAÐIÐ
Marta Ingimarsdóttir
Hún var lífið og sálin í kvennadeildinni
meðan hún starfaði, nokkurskonar
„Valkyrja". Hélt flokknum saman í
leik og félagslegum efnum. Lék stund-
um í úrvalsliðum. Er nú búsett erlendis.
Frá Skíðaskálalítinu
Þannig var það þegar fötin voru
skömmtuð, og formaðurinn mikill á
velli (Þorkell), lánaði stúlkunum bux-
urnar sínar, þegar með þurfti!
VAIÍjb
Sigríður Sigurðardóttir
Hefur með krafti sínum og dugnaði
verið góð fyrirmynd ungum Valsstúlk-
um. Sigríður hefur leikið í landsliði ís-
lands í handknattleik. Hún býr yfir
leikni og kunnáttu, hefur gott og heppi-
legt keppnisskap.
liðsoddar íþróttahreyfingarinnar í bænum auk margra félagsmanna,
kvenna og karla. íþróttamót eru haldin, skíðamót við skálann, hand-
knattleiksmót að Hálogalandi. Aðalíþróttaviðburðurinn er samt kapp-
ieikur við Akurnesinga, sem sýndu Val þá vinsemd að keppa við hann
á Melavellinum að viðstöddu miklu fjölmenni. Þá fóru fram leikir í öllum
hinum flokkunum við félögin í Reykjavík og Hafnarfirði. Sameigin-
legur afmælisfundur var haldinn að Hlíðarenda með yngri flokkunum
og kom þar séra Friðrik og flutti skemmtilega og snjalla ræðu til hinna
ungu félaga.
Myndarlegt afmælisrit kom út, fimm manna nefnd sá um útgáfuna,
formaður var Einar Bjömsson, en aðrir nefndarmenn: Hrólfur Bene-
diktsson, Friðjón Guðbjörnsson, Valgeir Ársælsson og Guðmundur
Sigurðsson.
Tvennt er það, sem hæst ber í félagsstarfinu á stjórnartímabili Gunn-
ars Vagnssonar. Það fyrra, að árið 1953 er ákveðið að hefja undirbún-
ing að byggingu íþróttahúss að Hlíðarenda. Er nauðsynlegar athuganir
höfðu farið fram á þessu mikla máli, voru framkvæmdir hafnar í apríl-
mánuði árið 1954, eins og nánar segir um í sögu þessari annars staðar
í blaðinu. Hið síðara var sigurinn í íslandsmótinu árið 1956 á 45 ára af-
mælinu. Var það kærkominn sigur.
En þó þetta séu stærstu atriðin í sögu þessa tímabils, er þó margs
annars að minnast frá þessum tíma. Ýmsra góðra sigra, ánægjulegra
heimsókna, skemmtilegra ferðalaga og félagslegra framkvæmda.
Sumarið 1953 kemur Reidar Sörensen hingað til lands, sem þjálfari
fyrir Val, eins og áður er um getið og árið eftir eða sumarið 1954
dvelur hér brezkur atvinnumaður að nafni Ernst Shephard á vegum
Vals sem þjálfari, um 10 vikna skeið.
Heimsóknir og utanfarir.
Meðal heimsókna þessa tímabils skal minnt á írska liðið Waterford,
sem hingað kom í boði Vals og KR vorið 1953. það lék fyrsta leik sinn
við Val og tapaði 2:1.
Árið eftir kom svo úrvalslilið frá Neðra-Saxlandi í gagnkvæmu boði
Vals. Fyrsti leikur liðsins var við Val. Sigruðu gestirnir eftir fjörug-
an leik með 3:2. í liði Vals lék að þessu sinni, Albert Guðmundsson,
sá víðfrægi knattspyrnukappi. Skoraði hann bæði mörk Vals með ó-
gleymanlegum glæsibrag. Valsmenn endurguldu heimboð þetta í ágúst-
mánuði 1956. Ekki voru fengnir liðsmenn annarsstaðar frá að láni,
til styrktar liðinu, svo það var eingöngu skipað Valsmönnum. „Full-
yrða má“, segir Björgvin Torfason, einn af stjórnarmeðlimum Vals, um
þessar mundir og í fararstjórninni, í ágætri frásögn, sem hann ritar um
förina, „að þessi ráðstöfun varð mjög til að styrkja samheldni allra
þátttakenda og sýnir árangurinn það bezt.“ Þátttakendur í þessari
för, sem hófst hinn 25. ágúst og farið var með flugvél frá Loftleiðum,
voru þessir: Gísli Sigurbjömsson aðalfararstjóri, Sigurður Ólafsson,
Magnús Bergsteinsson, Hermann Hermannsson og Björgvin Torfason
fararstjórar. Leikmenn: Albert Guðmundsson, Árni Njálsson, Björg-
vin Daníelsson, Björgvin Hermannsson, Einar Halldórsson, Gunnar
Gunnarsson, Halldór Halldórsson, Hilmar Magnússon, Hörður Felixson,
Magnús Snæbjörnsson, Páll Aronsson, Sigurður Sigurðsson, Sigurhans
Hjartarson, Stefán Hallgrímsson, Valur Benediktsson, Þorkell Gíslason