Valsblaðið - 11.05.1961, Blaðsíða 62
60
VALSBLAÐIÐ
sanna íþrótt hefu náð tökum á þeim,
listin í leiknum.
„Gamlir dagar“ eru rifjaðir upp, æf-
intýrin koma fram hvert eftir annað
ljóslifandi, seiðmögnuð eða æsandi.
Ómögulegt að segja, hvert er skemmti-
legast, hvert er örlagai'íkast, hvert er
séstæðast. Það eina, sem með öruggri
vissu má fullyrða og það er, að allt
þetta eiga þeir sinni hugþekku og djörfu
iþrótt, knattspyrnunni, að þakka. I
einlægni segja þeir hver við annan:
„Við stöndum í óendanlegri þakklætis-
skuld við þennan leik, fyrir það félags-
lega innsæi, er við höfum fengið, fyrir
þann ómetanlega vinahóp, sem knatt-
spyrnan hefur gefið okkur, fyrir þann
likamlega og andlega þroska, sem við
höfum hlotið vegna hans. Allt þetta
er eitt dýrmætasta veganestið, sem við
hiöfum fengið frá æskudögunum. Við
öll okkar störf í þágu þjóðfélagsins,
kemur þessi reynsla að góðu haldi. Það
var sameiginleg ósk þeirra, að allir
ungir drengir leiti þroska og félaga í
samstilltum leik um knöttinn. Að allir
ungir menn fyndu þá dásemd og ævin-
týri, sem þeir höfðu fundið á leið
knattspyrnunnar.
F. H. (Úr 40 ára afmælisritinu).
Skrúðganga vegna vígslu
Haukalandsvallar.
'jájás r fj
Raka'Sur og hreinsaður völlurinn viÖ Haukaland. ----- Frá v.: Magnús Bergsteins-
son, SigurÖur Olafsson, Björgúlfur Baldursson, og lengst til hœgri Frímann
Helgason.
að efna til æfinga fyrir 4. flokk, en það hafði ekki verið hægt til þessa,
vegna vallarleysis.
það leyndi sér ekki að áhugi var mikill meðal drengjanna. Það var
líka mikil heppni fyrir Val að Grímar Jónsson skyldi vinna með
þeirri elju að máli þessu, sem hann gerði, en hann var aðalmaður-
inn og stjórnandinn, þegar í byrjun og var þessu síðan haldið áfram.
Engin mót voru þá í þessum flokki en þá var horfið að því ráði sum
árin að efna til keppni innbyrðis og voru stundum 5—6 lið, sem léku
eitt við öll og öll við eitt, og fengu sigurvegararnir Valsmerki að
launum. Uppúr þessum akri spruttu síðar margir af beztu leikmönn-
um Vals.
Afmælisár.
Aðalverkefni ársins 1936 var undirbúningur að 25 ára aímælishátíða-
höldum félagsins, sem fóru fram kringum sjálfan afmælisdaginn 11.
maí.
f því sambandi voru mörg járn í eldinum, og til þess að leysa hin
margvíslegu verkefni voru skipaðar margar nefndir, sem sáu um þau.
Nokkru éftir áramótin 1935—36 var efnt til almenns fundar til að
ræða um afmælishátíðahöldin og starfsemina yfirleitt á komandi ári.
Eitt af verkefnunum var að koma út myndarlegu afmælisriti. En það
verk önnuðust: ólafur Sigurðsson, Einar Björnsson og Hrólfur Bene-
diktsson. í ársskýrslu segir m. a. um blaðið, sem kom út 11. maí: „Þá
kom út hið myndarlega afmælisrit, er það að allra dómi einhvert
prýðilegasta minningarrit, sem gefið hefur vei'ið út af íþróttafélagi
hér á landi. í því voru skráð helztu atriði úr starfi félagsins á liðnum
25 árum. Fjöldi mynda eru í blaðinu úr ferðum Vals, bæði utan lands
og innan.“