Valsblaðið - 11.05.1961, Blaðsíða 52
50
VALSBLAÐIÐ
meistarar hafa kannski á þessari
skemmtiferð sinni séð þetta loftfar.
Og svo líður tíminn. Það er komið
fram í ágúst. Komnir eru að utan sér-
fræðingar til að setja upp tæki í kvik-
myndahúsunum svo hafizt geti sýning-
ar talmynda.
Reykjavíkurmótið hófst að þessu
sinni 24. ágúst. Það er frekar lítið
skrifað um það mót, aðeins lauslega
sagt frá úrslitum. Valur hefur unnið
Víking og Fram með sama hætti, 1:0.
Urslitaleikurinn fer fram 31. ágúst
og þann leik vinnur K.R. 2:1. Urslitin
frá í sumar höfðu snúizt við. Þennan
dag sýnir Nýja Bíó í fyrsta sinn tal-
myndina „Sonny Boy“ með Al. John-
son í aðalhlutverki. Við skulum nú að-
eins sjá glefsur úr umsögn um þennan
úrslitaleik Vals og K. R.
„Var samleikur þeirra oft ágætur og
mikið fjör í leik þeirra“ (þ. e. Vals).“
Og nú hefur hent „þá görnlu", sem
hendir enn í dag, en þeir eiga erfitt með
að fyrirgefa og skilja: Þeir brenna af
vítaspyrnu. Hefði óneitanlega verið
skemmtilegra að hún hefði farið rétta
leið. Og umsögnin heldur áfram“. Þeg-
ar liður á leikinn (þ. e. seinni hálfleik
og leikar standa 2:0 f. K.R.) gerir
Agnar Breiðfjörð í Val ágætt upphlaup
og þeytir knettinum rétt fyrir framan
mak K.R. og Valur skorar úr því“.
Og þannig lauk þessu tímamóta ári
okkar Valsmanna. Valur fékk Islands-
bikarinn, en K. R. vann Reykjavíkur-
mótið. Og þannig kom það stundum
fyrir á næstu ái*um. Sá, sem vann Is-
landsmótið tapaði Reykjavíkurmótinu.
En stundum kom það líka fyrir að bæði
mótin unnust. Og þá hefur verið gam-
an að lifa.
Legsteinn á leiði Jóns Kristbjörnssonar.
Fæddur 19. des. 1911,
dáinn 17. júní 1933.
Formaður Vals, Sveinn Zoega, leggur blómsveig á leiði Jóns Kristbjörnssonar,
áður en gengið er til leiks í Islandsmótið, en ,sú venja hefur skapast síðan 1933
að hann lézt. Myndin er frá 25. ártíð Jóns Kristbjörnssonar.
markvörður og- hafði verið meðal þeirra sem haldið höfðu hvað lengst
hópinn og leikið í aðalliðinu undanfarin ár, og í yngri flokkunum.
Þegar slysið vildi til stóðu leikar þannig, að jafntefli var 2:2, en er
Jón féll á völlinn náði framherji KR knettinum og sendi hann í mann-
laust markið. 3:2 fyrir KR. Varamarkvörðurinn, Hermann Hemianns-
son, er tekinn í markið. En við þetta áfall, að markvörðurinn verður
að hætta, þjappast liðið svo saman, að sjaldan hefði betur til tekizt,
og á næstu 40 mín. skorar Valur 4 mörk, og vann leikinn 6:3.
Valur sá um útför Jóns heitins og var hún hin virðulegasta.
Minnsivarði afhjúpaður,
Um nokkurt skeið hafði verið í undirbúningi, að reisa legstein á
leiði Jóns Kristbjörnssonar. Var listamaður fenginn til þess að gera
stórt Valsmerki, sem höggvið var í steininn ásamt áletrun.
Athöfn þessi fór fram 19. des. 1934 í viðurvist margra Valsmanna
og gesta. Séra Bjarni Jónsson framkvæmdi athöfnina og minntist
hins látna ágæta félaga, sem ætíð hafði verið félagi sínu stoð og stytta
og varið heiður þess til síðustu stundar. Fyrir hönd foreldra Jóns
heitins þakkaði Þorvaldur Árnason Valsmönnum fyrir þá hluttekn-
ingu, sem þeir hefðu sýnt þeim og síðast með því að reisa þennan
minnisvarða. Bar hann fram þá ósk fyrir þeirra hönd að Valur mætti
verða giftudrjúgur og blómgvast á komandi árum.
Við þetta tækifæri barst formanni Vals skeyti frá séra Friðrik, sem
var staddur á Akranesi.
í úrslitum í öllum flokkum.
Aðalviðburður sumarsins 1934 var heimsókn HÍK frá Danmörku.
Léku Danir hér 5 leiki, en liðið var í boði knattspyrnufélaganna í
Reykjavík.
í úrvali Reykjavíkur átti Valur 3 menn, þá Agnar Breiðfjörð, Jóhann-