Valsblaðið - 11.05.1961, Blaðsíða 44
42
VALSBLAÐIÐ
félagið sitt fyrsta mót, Sslandsmót
II. fl.
Hvað er svo helzt að gerast hér 1919?
íslendingar eignast sína fyrstu flug-
vél og mönnum finnst mikið til hennar
koma. Vélin flýgur hér um í nágrenninu
í fimm mínútna flug og kostar farið kr.
25. Bók Gunnars Gunnarssonar, Saga
Borgarættarinnar er kvikmynduð. Mik-
il snjóflóð eru á Siglufirði og láta átján
manns lífið í þeim hörmulegum slysum.
Og í heimi bókmenntanna hefja tveir
rithöfundar feril sinn: Davíð Stefáns-
son gefur út Svartar fjaðrir og Halldór
Guðjónsson frá Laxnesi gefur út Barn
náttúrunnar. Erlendir togaramenn
skjóta á íslenzka sjómenn. Svo var það
strákur í Vesturbænum, sem kom sér
undan fermingu með nokkuð nýstárleg-
um hætti. Ekki var þess getið, hvort
stráksi var í K. R.
Ég sagði áðan að þetta ár hafi Valur
unnið sitt fyrsta mót. Mér lék því nokk-
ur forvitni á að vita hvort ekki væri um
það mót eitthvað skrifað, en svo reynd-
ist ekki, því miður. Lítið sem ekkert er
skrifað um knattspyrnu þetta ár, nema
þá í sambandi við komu hinna erlendu
gesta. Æfingatilkynningar eru að vísu
en nokkuð dræmar og það er eins og
einhver deyfð yfir þessu. Þann 15. júlí
kemur þessi tilkynning í Morgunblað-
inu: „Allir yngri deildar meðlimir Fót-
boltafélagsins Valur mæti á fund í
kvöld kl. 9 (í húsi KFUM). Þeir sem
ekki mæta verða ekki álitnir meðlimir
lengur.“ Og mig minnir, að það hafi
verið stuttu seinna, sem auglýst var að
íslandsmót 3. fl. hæfist. Það var það
eina, sem ég fann um það mót ski'ifað.
Það sem aðallega setti svip sinn á
þetta sumar var koma hinna erlendu
gesta. Það var í byrjun maí, sem sagt
var að ákveðið væri að hingað kæmi
flokkur erlendra knattspyrnumanna.
Væri það danska liðið Akademisk Bold-
klub, sem um þessar mundir væri sterk-
ast liða í Danmörk. Var íslenzkum
knattspyrnumönnum ráðlagt að æfa sig
því ekki mundi af veita, danskir góðir
i þessari íþrótt og liðið væntanlegt í
byrjun ágúst.
A.B. kemur svo hingað með e. s. Gull-
fossi í byrjun ágúst með sama skipi og
þeir, sem komnir voru til að vinna að
kvikmyndun ,,Borgarættarinnar“.
Fyrsti leikur A. B. er við úrval úr
Val og Víking og þann leik unnu þeir
með yfirburðum 7:0. Ekkert er um
frammistöðu einstakra leikmanna skrif-
að, en sagt að gestirnir hafi „leikið eins
og englar“.
Næsti leikur er við K.R. og hann
vinna þeir dönsku með 11 :2. Kvartað
er um of fáa áhorfendur að þessum leik,
í Kaupmannahöfn og annarsstaðar sem við fórum um. Var allt gert
til þess að gjöra oss ferðina sem ánægjulegasta og gagnlegasta.
í Kaupmannahöfn urðu Valsmenn þess sérstaka heiðurs aðnjót-
andi að vera boðnir sem gestir borgarinnar í ráðhúsið.
I móttökuræðu, sem hr. Jessen borgarráðsmaður flutti, gat hann
þess að Valur væri fyrsti knattspyrnuflokkurinn, sem borgarstjóri
Kaupmannahafnar hefði boðið í ráðhúsið og hefði þó mikill fjöldi
erlendra knattspyrnuflokka gist Kaupmannahöfn.
Séra Friðrik Friðriksson svaraði fyrir okkar hönd og þakkaði hið
virðulega boð.
Fyrsta kappleik sinn í Danmörku lék Valur í Kaupmannahöfn 24.
júlí við KFUM Boldklub og sigruðu Danir með 8:1. Rétt er að geta
þess að þetta var í fyrsta sinn sem Valsmenn kepptu á grasvelli og
munu þau viðbrigði, að koma á grasvöll af malarvelli, ekki hvað sízt
hafa átt sinn drýgsta þátt í ósigrinum.
Þess ber að minnast að áður en flokkurinn fór frá Kaupmannahöfn
var honum boðið í sumarbústað Jóns Sveinbjörnssonar konungsritara,
var okkur fagnað þar framúskarandi vel, af ómældri íslenzkri gestrisni.
Næsta dag var svo lagt af stað til Odense, en það var næsti ákvörð-
unarstaðurinn. þar voru sömu hlýju móttökurnar. Var keppt 27. júlí
og lauk leiknum með sigri Vals 6:1. Ennfremur sigraði Valur í Kolding
29. júlí með 5:2 og í Fredricia daginn eftir 6:2, en tapaði í Silkeborg,
í síðasta kappleiknum, með 2:1, en þar var keppt við styrkt lið.
Alls kepptu Valsmenn 6 kappleiki í Danmörku, sigruðu 4 og töpuðu 2,
skoruðu 22 mörk gegn 10.
Kappleikirnir voru yfirleitt prúðir og drengilegir. Blaðaummæli lof-
samleg og hlýleg. Hinn 1. ágúst lögðu svo Valsmenn af stað heim-
leiðis frá Kaupmannahöfn með 2 daga viðdvöl í Edinborg, og komu
til Reykjavíkur 8. ágúst.
Alls hafði þá þessi ánægjulega ferð staðið yfir í 24 daga. —“
Blaðaummæli:
Kaupmannahöfn: — „Eftir að hafa séð leikinn í kvöld er ég ekki í
neinum vafa um, að knattspyrnan er mun betri en þegar fyrsta danska
liðið kom til Reykjavíkur fyrir 12 árum. Þá sóttu íslendingar sig í
síðari hálfleik, er þeir vöndust grasinu, en því voru þeir óvanir, þannig,
að í síðari hálfleik voru þeir oft ráðandi úti á vellinum, og með svolítilli
heppni hefði leikurinn getað endað með jafntefli, og það hefði verið
það réttlátasta.
Odense: — Úrslit leiksins voru þau að gestirnir frá Sögueyjunni unnu
öruggan sigur með 6:1, sem var fullkomlega réttlátt og í raun og veru
gat Odenseliðið lært af þeim, nefnilega hraða og viljakraft. —
Þátttakendur í förinni voru þessir: Agnar Breiðfjörð, Bjarni Guð-
björnsson, Björn Sigurðsson, Frímann Ilelgason, Einar Björnsson, Geir
Ólafsson, Ilalldór Ániason, Hólmeeir Jónsson, Hrólfur Benediktsson,
Jóhannes Bergsteinsson, Jón Eiríksson, Jón Kristbjörnsson, Ólafur Sig-
urðsson, Pétur Kristinsson og Snoiri Jónasson.
Aðalfararstjóri var séra Friðrik Friðriksson og auk hans var í
fararstjórninni Jón Sigurðsson formaður félagsins.
Fram að þessum tíma hafði ekki farið mikið fyrir afmælishátíðahöld-
um hjá félaginu. Á 5 ára afmælinu komu félagamir saman í KFUM
til kaffidi’ykkju, þar sem séra Bjarni Jónsson var heiðursgestur, voru
þar fluttar ræður og sungið og á eftir farið í leiki og stóð þetta til
nær kl. 3 um nóttina, sátu samsætið 28 manns. Ekki verður séð af skráð-