Valsblaðið - 11.05.1961, Blaðsíða 30

Valsblaðið - 11.05.1961, Blaðsíða 30
28 VALSBLAÐIÐ Valsung’um og sjá þeim fyrir fríu uppihaldi. Var förin síðan ákveðin, en æfingasókn varð með ágætum. . . .“ Það voru kátir og glaðir Valsmenn 18 í hóp, sem stigu um borð í g/s Island hins Sameinaða gufuskipafélags þann 14. júní 1927 að kvöldi. Alls voru þeir 14 kapparnir, sem þreyta skyldu baráttuna við Norðlendinga, en fararstjóri var formaður félagsins Axel Gunnarsson og þjálfari flokksins Guðmundur H. Pétursson prentari, auk þeirra voru svo 2 ungir félagar, sem kosið höfðu að eyða sumarfríi sínu með flokkn- um, í þessari miklu för. Ferðin norður gekk ágætlega. Komið var við á Þingeyri og þar dvalið um stund. Þar fengu Valsmenn tækifæri til að æfa sig á hinum ágætasta grasvelli. Síðan var haldið til ísafjarðar og komið þar síðari hluta dags. Þar var einnig notað tækifærið, þó dvöl- in væri skömm, og æft um stund. Ýmsir áhugamenn um knattspyrnu höfðu tal af Valsmönnum og föluðu þá til leiks, er þeir héldu aftur heim. Þá var næsti viðkomustaður Sauðárkrókur og svo nokkru síðar var komið til Siglufjarðar, þar hittu Valsmenn enga knattspymumenn að máli, enda útvarpið ekki til að gera boð á undan þeim. Æfing var heldur engin vegna óhagstæðs veðurs. Á ákvörðunarstað var svo loks komið 16. júní. Múgur og margmenni hafði safnast saman á hafnar- bakkann til að taka á móti hinum sunnlenzku köppum, og létu Akur- eyringar óspart í ljós ánægju sína með komu þeirra. Steindór Hjalta- lín, formaður Þórs á Akureyri, hafði verið samskipa norður og kynnti hann nú komumenn fyrir hinum norðlenzku knattspju-nugörpum. Mót- tökur önnuðust bæði knattspyrnufélögin á Akureyri, Ungmennafé- lagið og Þór, en Valsmenn gistu á heimilum hjá félagsmönnum eða velunnurum þeirra. Valsmenn tóku þátt í hátíðarhöldunum 17. júní og var þess óskað að þeir tækju þátt í frjálsum íþróttum sem þar fóru fram af tilefni dagsins. Varð þátttaka Valsmanna þeim til hins mesta sóma, sem þó mátti þakka hvað mest hinum þjóðkunna íþróttasnillingi, Friðrik Jessyni frá Vestmannaeyjum, en hann var miðherji í liði Vals. Alls lék Valur þrjá leiki á Akureyri, tvívegis við Ungmennafélag- ið og varð jafntefli í bæði skiftin 4:4, en sigraði Þór með 4:0. ,,Dvöl okkar á Akureyri“, segir Ólafur ennfremur í hinni ágætu ferða- sögu sinni, „var hreinasta „Paradísartilvera“. Allir Akureyringar keppt- ust við að gera okkur lífið sem þægilegast og skemmtilegast. Ungmenna- félagið bauð okkur fram að Grund og að Kristneshæli, en Þór hélt okkur skilnaðardansleik, en þess á milli nutum við hinnar einstöku veðurblíðu, fórum í hina nýju sundlaug, gengum um hinn glæsilega skemmtigarð, skoðuðum gróðrastöðina, eða við sigldum fram og aftur um lognkyrran og spegilsléttan pollinn. Þó mun hin daglega umhyggja og vinátta, er við nutum hver á sínu heimili lengst geymast.... Heimleiðis var haldið 22. júní með Novu. Daginn sem lagt var af stað buðu Valsmenn formönnum knattspyrnufélaganna og öðrum for- vígismönnum íþróttahreyfingarinnar á Akureyri til kaffidrykkju á Hótel Gullfossi og afhentu þeim silfurbikar stóran að gjöf, sem lítinn þakklætisvott fyrir hinar ágætu viðtökur, og mæltu svo fyrir að keppt skyldi um hann í Norðlendingafjórðungi, eftir nánari reglugerð, er þeir sjálfir settu. Á heimleiðinni var víða komið við, en viðstaða stutt á hverjum stað. Varð hún m. a. svo stutt á ísafirði að eigi fékkst lokið kappleik er leikinn var við úrval ísfirskra knattspyrnumanna, sem rætt hafði verið um og lofað, er þar var komið við á leiðinni norður. Við komum fjórum dögum á eftir áætlun heim. þá var Knattspyrnu- mót íslands byrjað. Við urðum að keppa þegar að kvöldi sama dags og svo stórt að það verður aldrei metið eins og vert er. En okkur er ætlað annað starf. Okkur er ætlað að taka við og ljúka og sækja lengra fram og búa í haginn fyrir þá, sem taka við Val úr okkar höndum. Og ef okkur tekst það, gefum við Val þá beztu afmælisgjöf, sem honum verður gefin. Þeir eldri segja svo oft: Ef við hefð- um nú haft svona aðstöðu þegar við vorum að þessu. Hvort við hefðum ekki staðið okkur betur. En ég veit ekki hvort þessir heiðursmenn hafa hugsað út í það að þeir hafa einmitt náð þessum árangri vegna þess að þeir höfðu ekki þessa aðstöðu. Menn þurfa alltaf að hafa eitthvað til að berjast fyrir. Þeir eldri eru oft sárir yfir frammi- stöðu okkar á mótum. Og það er á vissan hátt skiljanlegt og við getum ekkert fullyrt um það, að þeir væru ekki á toppinum, ef þeir væru ungir. En þeir mega ekki vera of sárir. Það er ekki alltaf hægt að vera á toppinum og kannski ekki alltaf æskilegt. Þegar þeir sjá okkur tapa leik, eiga þeir ekki að segja okkur frá því hvernig þeir gerðu í gamla daga. Við vitum hvað þeir gerðu í gamla daga, við erum bún- ir að heyra það svo oft. Þeir eiga að segja okkur hvað þeir hefðu gert, ef þeir hefðu verið í okkar sporum. Það er hið rétta. En þeir mega ekki búast við að við förum algjörlega eftir þvi, við verðum líka að fara okkar eigin leiðir. taka við Val úr höndum „hinna gömlu“. Eg sagði áðan að við værum að taka við Val úr höndum „hinna gömlu“. Það gerum við að sjálfsögðu ekki al- gjörlega. Þeir mega ekki hverfa, en við getum tekið hita dagsins á okkar herðar með þeirra aðstoð. Þeir eru eldri og reyndari. Það má enginn Vals- maður hverfa, enginn hlaupa undan merkjum. Hver Valsmaður verður allt- af að vera ValsmatSur að starfi. Kæri Valur. í dag ert þú fimmtugur. Það sjást engin ellimörk á þér. Þú ert ungur sem fyrrum. Og meðan æskan kemur til þín og hlátur hennar og galsi ómar á félagssvæði þínu, þá er þér borg- ið. Þú þarft ekkert að óttast. Lifðu heill. Einn af þeim, er viS tekur.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132
Blaðsíða 133
Blaðsíða 134
Blaðsíða 135
Blaðsíða 136
Blaðsíða 137
Blaðsíða 138
Blaðsíða 139
Blaðsíða 140
Blaðsíða 141
Blaðsíða 142
Blaðsíða 143
Blaðsíða 144
Blaðsíða 145
Blaðsíða 146
Blaðsíða 147
Blaðsíða 148
Blaðsíða 149
Blaðsíða 150
Blaðsíða 151
Blaðsíða 152
Blaðsíða 153
Blaðsíða 154
Blaðsíða 155
Blaðsíða 156
Blaðsíða 157
Blaðsíða 158
Blaðsíða 159
Blaðsíða 160
Blaðsíða 161
Blaðsíða 162
Blaðsíða 163
Blaðsíða 164
Blaðsíða 165
Blaðsíða 166
Blaðsíða 167
Blaðsíða 168
Blaðsíða 169
Blaðsíða 170
Blaðsíða 171
Blaðsíða 172

x

Valsblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Valsblaðið
https://timarit.is/publication/399

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.