Valsblaðið - 11.05.1961, Blaðsíða 128
126
VALSBLAÐIÐ
Valgeir Arsælsson
Tók fljótt ástfóstri við handknattleik
og knattsuyrnu í Val. Keppandi um
langt skeið í báðum, en þó virkari í
handknattleik. Raunsær og glöggur í
félagsmálum. Góður leiðbeinandi og
kennari. Á sæti í stjórn Vals og Hand-
knattleikssambands Islands.
Geir Hjartarson
Einn af beztu leikmönnum Vals í hand-
knattleik, en verið of hlédrægur. Hefur
leikið í úrvalsliðum. Kom Tékkum mjög
á óvart er Valur „sló út“ bæði A og
B-lið þeirra sl. haust.
Jón Kristjánsson
Ungur í starfi hjá Val, en hefur tekið
hressilega skemmtilega á þeim málum,
sem hann hefur látið sig varða, og með
góðum árangri. Nýtur mikilla og sí-
vaxandi vinsælda.
fundinn fjölritaðar skýrslur stjómarinnar og afhenda þær hverjum
þeim félaga, sem fundinn sótti. Hafa skýrslur stjórnarinnar síðan verið
lagðar fjölritaðar fyrir aðalfundina.
I skýrslu stjómarinnar þetta ár segir svo m. a.:
Ýmsar skiplagsbreytingar í störfum félagsins voru gerðar á árinu.
Svo sem stofnunar Unglingaráðs og Hlíðarendaráðs um leið og gamla
Hlíðarendanefndin var lögð niður, en þrem nefndum falin störf hennar:
Iþróttahússnefnd, Valla- og ræktunarnefnd og Félagsheimilisnefnd.
Þá þakkaði formaður sérstaklega íþróttahússnefndinni, en formaður
hennar hefir verið um árabil Úlfar Þórðarson, fyrir hin miklu og giftu-
drjúgu störf hennar, við að koma upp íþróttahúsinu. Mætti til sanns
vegar færa, sagði formaður „að aldrei hefðu svo fáir félagar gert svo
mikið á eins stuttum tíma, fyrir jafn marga, og þessir nefndarmenn
hefðu gert fyrir Val og Valsmenn."
Þá gat formaður um fulltrúaráðið og hina nýju reglugerð, sem því
var sett á árinu. Fulltrúaráðið er nú skipað um 30 eldri félögum.
Á árinu varð verndari félagsins, séra Friðrik Friðriksson 90 ára (25.
maí). Heiðraði félagið hann eftir föngum. Fór hópur Valsmanna fylktu
liði heim til hans. Þar flutti formaður honum kveðju Vals, en séra
Friðrik svaraði. Samþykkt var að reisa myndastyttu af séra Friðrik,
á félagssvæðinu. Valsblaðið, sem út kom um líkt leyti, var að mestu
helgað séra Friðrik.
Valsblaðið, sem legið hafði niðri um alllangan tíma, hóf göngu sína
að nýju á þessu ári, komu út af því 4 tölublöð, en jólablaðið er fyrir-
hugað sem fimmta blað á árinu. Útgáfan gekk vel og varð ekki félaginu
nein fjárhagsbyrði.
Félagið tók þátt í öllum knattspyrnumótum ársins. Þá unnust nokkur
mót í yngri flokkunum. Einnig tók félagið þátt í handknattleiksmótum,
bæði stúlkur og piltar, með góðum árangri. Aðalþjálfarar voru þeir
Einar Halldórsson í meistara- og 1. flokki en Árni Njálsson í II. og
III. fl. auk þess, sem hann þjálfaði handknattleiksflokkana.
Færeyjaför knattspyrnumanna.
I júlímánuði fór flokkur Valsmanna í heimsókn til Færeyja.
Aðalfararstjóri var Andreas Bergmann, sem ritar ítarlega grein
um förina í Jólablað Valsblaðsins 1958. Lætur Andreas mjög vel af
förinni og móttökum öllum í Færeyjum. Gestrisni og vinsemd óvið-
jafnanleg. Um tildrög fararinnar segir hann m. a.:
„Valsmenn léku fjóra leiki í förinni, unnu tvo þeirra, einn jafntefli,
en töpuðu einum, á Þvereyri á sama velli og B-landslið Islands beið
ósigur á sínum tíma. Þátttakendur í ferð þessari voru alls 23 og tók
förin alls 13 daga. Ferðalag þetta bar næsta bráðlega að, enda ekki
fyrirhugað í byrjun ársins. Vegna ófyrirsjáanlegra erfiðleika í sam-
bandi við aðra för, sem ráðin hafði verið, en ekkert gat orðið úr, að
sinni að minnsta kosti, má segja að þessi Færeyjaför væri einskonar
„flótti“ frá þeim félagslega vanda, sem skapast hafði. „Flótti“, sem
þó varð einstaklega skemmtilegur.
Á starfsárinu kom hingað enskt lið Bury F. C. Samvinna Vals og KR
um móttökur erlendra liða, svo sem verið hafði undan farin ár, tók
til þessarar heimsóknar, en KR átti rétt til heimboðsins. Sameiginleg
móttökunefnd félaganna sá um fyrirgreiðslu hins brezka flokks, sem
var m. a. gestur Vals í félagsheimilinu að Hlíðarenda.