Valsblaðið - 11.05.1961, Qupperneq 64
62
VALSBLAÐIÐ
eldri gagnvart hinum yngri, sem eiga
að bera hita og þunga félagslífsins í
framtíðinni, og vaknar þá oft spurning
í huga mér. Hvað gefa hinir eldri þeim
yngri í nesti, til þess að bæta, þroska
og fegra félagslífið í heild á komandi
árum?
Flestir hugsa og segja, að órannsök-
uðu máli, við sjálfa sig: ég geri þeim
hvorki illt né gott. En ef menn íhuga
málið betur, finna flestir til sektar yfir
því, hve þeir hafa vanrækt hina yngri
og ekki komið rétt fram við þá, og þar
með brugðizt sínu eigin félagi í því, að
byggja upp góða, prúða, nýta og félags-
lega þroskaða félagsmenn, sem eiga að
vera arftakar þeirra eldri.
Máli þessu til stuðnings, kasta ég
fram nokkrum spurningum og athuga-
semdum, sem ég bið þig, góði félagi,
að velta dálítið fyrir þér. Þú skalt
sjálfur reyna að finna þau svör, sem
þér finnast rétt. Ég kem með mín.
Gerir þú mikið til að kynnast yngstu
félögunum? Hefir þú gert þér í hugar-
lund, hve mikið þú getur sært hinar
viðkvæmu tilfinningar þeirra, er þeir
í allri sinni hrifningu á þér (vegna
þess, að þú ert einn af beztu leikmönn-
um Vals eða á annan hátt mikils virtur
félagi) annað hvort ávarpar þig eða
spyrja þig einhvers, sem þú svo kannske
þykist ekki heyra, eðaþá kastar að þeim
einhverju köpuryrði?
Nennir þú ekki, eða finnst þér
minnkun að því, að leika knetti með
ungum nýliða? Kærir þú þig nokkuð
um að hafa nokkurn ungan félaga ná-
lægt þér á vellinum, þegar þú ert að
æfa, nema þegar þú getur notað hann
til að sækja knöttinn, þegar þú „brenn-
ir“ freklega af, eða þá þú missir hann
langt út fyrir leikvanginn?
Getur þú fyllilega viðurkennt knatt-
spyrnuhæfni ungs leikmanns, sem sett-
ur er inn í lið fyrir þig? Finnur þú ekki
til þykkju gagnvart honum yfir því, að
hann er kominn lengra í iþrótt sinni
en þú, og læturðu ekki bæði hann og
aðra finna það?
Lætur þú ekki oft mörg orð og hróp
út úr þér, þegar yngri flokkar eru að
leik, sem þig hefði sviðið undan, þegar
þú stóðst í hita leiksins, á þeirra aldri,
mættur fyrir hönd séra Friðriks Friðrikssonar, sem var uppi á Akra-
nesi um þessar mundir. Magnús las síðan upp vígsluræðuna, sem var
eftir Fr, Fr.
þá fór fram kappleikur milli 8. fl. Hauka úr Hafnarfirði og 3. fl.
Vals, sem lauk með fyrsta sigri Vals á nýja vellinum.
Þess má geta að fánar voru blaktandi meðfram vellinum og eins við
markstengur. Á að giska 3—400 manns voru þama saman komnir og
hefðu eflaust orðið fleiri, ef veður hefði ekki verið leiðinlegt, þegar
lagt var af stað úr bænum, en það var samt eins og veðurguðinn vildi
gera sitt til að stuðla að því að þessi fyrsti dagur hátíðahaldanna yrði
sem ánægjulegastur, því þegar komið var suður á völlinn, gerði glamp-
andi sólskin, sem hélzt allt til kvölds“.
— Þó hér væri um bráðabirgðavöll að ræða, var þetta stór áfangi
á þróunarbraut félagsins og kærkomið að vígja hann á þessum merkis-
tímamótum.
Daginn eftir, sem var sjálfur afmælisdagurinn, var afmælisins
minnst með samsæti í Oddfellowhúsinu og fluttu þar ræður, m. a. séra
Bjami Jónsson, Guðmundur Ásbjörnsson forseti bæjarstjómar, sem
mælti fyrir minni félagsins. Ben. G. Waage, forseti ISÍ, Erlendur Pét-
ursson formaður KR og margir fleiri fluttu ávörp. Við það tækifæri
voru þeir Jón Sigurðsson læknir og Ael Gunnarsson kaupmaður, gerð-
ir að heiðursfélögum. Bárust félaginu gjafir og kveðjur víða að.
Afmælisleikur: Valur—KR 2:2.
Þriðjudaginn 12. maí átti svo aðalknattspyrnuleikur afmælishátíða-
haldanna að fara fram, og þá við það félag sem á þeim árum var aðal-
keppinautur Vals, sem sé KR. Til þess að gera þetta sem hátíðlegast,
hóf Lúðrasveit Reykjavíkur að leika á Austurvelli kl. 8 um kvöldið.
Var síðan haldið „suður á Völl“ með lúðrasveitina í broddi fylkingar
og fylgdi henni fjöldi fólks. Áður en leikur hófst afhenti fyrirliði Vals,
KR Valsfána á silfurstöng. Leikurinn var í alla staði skemmtilegur
og vel leikinn og lauk honum með jafntefli, 2:2. I leikhléi léku 4. flokkur
Vals og KR, og vakti það mikla hrifningu áhorfenda, að sjá þessa
ungu keppendur og mun það í fyrsta sinn, sem slík „kynning“ ungra
pilta hefur farið fram í sambandi við leiki, í elzta flokki. Áhorfendur
voru um 2000 á leiknum.
Um kvöldið var hóf á Hótel Borg og kappliðum félaganna boðið
þangað. Ávarpaði formaður gesti og félaga og mæltist til að félögiri
tækju upp betri samvinnu á komandi árum, en verið hefði undanfarið.
Erlendur Pétursson formaður KR tók undir þau ummæli.
Um nokkur undanfarin ár, hafði verið heldur grunnt á því góða, á
milli KR og Vals, og ef til vill hefur ástæðan verið sú, að Valur hafði
á þeim tíma blandað sér allmikið inn í það forustuhlutverk, sem KR
hafði haft í knattspyrnunni, og þeir ekki fyllilega áttað sig á því. Þess-
vegna var það, að eftir samsæti þetta var sagt manna á milli í bænum,
að keppnisdagurinn 12. maí hefði verið ,,trúlofunardagur“ Vals og KR!
Hinn 13. maí kepptu svo Valur og Víkingur í 2. flokki, og 14. s. m.
keppti svo B-lið Vals við Fram og vann Valur báða leikina. þannig
höfðu hátíðahöld þessi staðið í 5 daga.
I ársskýrslu félagsins þetta ár segir m. a.: „— Þessi afmælisfagnaður
Vals heppnaðist með fádæmum vel, í alla staði og verður áreiðanlega
minnst sem þeirra glæsilegustu hátíðahalda, sem eitt félag hefur haldið
hér á landi til þessa.“