Valsblaðið - 11.05.1961, Síða 124

Valsblaðið - 11.05.1961, Síða 124
122 VALSBLAÐIÐ Ægir Ferdinantsson Formaður knattspyrnudeildar. Laginn félagsmaður, heldur vel og þétt við á- form sín, þægilegur í framkomu og vinnur með ötulleik að framgangi deild- arinnar. Keppandi í meistaraflokki. Guðmundur Ingimundarson Formaður skíðadeiidar Vals. Framúr- skarandi ábyggilegur félagi, ötull í starfi og á gott með að fá menn til að starfa með sér. ÞórSur Þorkelsson Byrjaði snemma að iðka knattspyrnu og handknattleik. Hallaðist meira að handknattleik og varð Islandsmeistari og forustumaður í þeirri íþrótt. Fylg- inn sér, samvizkusamur og traustur fé- lagsmaður. Er nú formaður handknatt- leiksdeildarinnar. ritar um ferðina og á vart nógu sterk orð til að lýsa hinum ógleym- anlegu móttökum og þeirri gestrisni, sem flokkurinn á að mæta hvar- vetna. Hann segir frá siglingu um Hamborgarhöfn, sem er hvorki meira né minna en 20 km. á lengd. í Blankenes átti fyrsti leikurinn að fara fram. „Er þangað kom“, segir Friðjón, „var þar fjölmenni mikið samankomið á bryggjunni, til að taka á móti okkur. Var þar lúðrasveit í fararbroddi í hvítum einkennisbúningum. Lék hún okkur til heiðurs. Okkur þótti samt mest koma til að yfir landganginn hafði verið strengt laufskreytt skilti, með orðunum: „Velkomin íslenzk æska“. Sumarið 1955 komu svo í boði Vals úrvalslið 2. fl. pilta frá Hamborg, til endurgjalds förinni árið áður. Þýzku piltarnir léku hér 4 leiki og höfðu sigur í öllum. Um heimsókn þessa segir Frímann Helgason, sem var fararstjóri Valspiltanna utan og í móttökunefnd þýzku piltanna hingað, svo í grein í afmælisritinu 1956: „Um það hafði verið samið í byrjun, að samskiptin við Hamborgara yrðu gagnkvæm, þeir kæmu til Reykjavíkur 16. júní, og það stóð. Farið var með hópinn í Félagsheimili Vals og bjuggu leikmenn þar allan tímann, en borðuðu hjá Valsmönnum hér og þar um bæinn. Far- arstjórn bjó á Garði. Fyrstu tvo dagana héldu gestirnir kyrru fyrir, skoðuðu borg og bæ, og 17. júní voru þeir gestir Reykjavíkurbæjar á íþróttavellinum og tóku að öðru leyti þátt í hátíðahöldunum og nutu þess vel. Fyrsti leikur þeirra var við Val 18. júní, og lauk honum svo að Þjóðverjar unnu með 4:1. Eftir leikinn var brugðið út af venju varðandi ferðir útlendinga. Nú var haldið í tveggja daga ferð um Suðurland með viðkomu í Múla- koti, skoðað Bleiksárgljúfur, sem hreif Þjóðverjana mjög. Farið var að heitu lauginni við Seljavelli undir Eyjafjöllum. þótti Þjóðverjum skrýtið að sjá sjóðheitt vatn koma út úr berginu rétt neðan við jökul- röndina, og auðvitað urðu þeir að reyna vatn og laug. Það vakti líka fádæma hrifningu að komast á skriðjökul þann, er Jökulsá kemur úr. Þetta var nokkuð annað en hið láglenda, grösuga Norður-Þýzkaland. Um nóttina var gist í Skógaskóla. Veður hafði verið gott, góð f jalla- sýn, en sólarlaust. Næsta morgun var haldið til Víkur í Mýrdal. Þótti þeim mikið til koma að sjá úfið brimið, himingnæfandi hamra og — svartan sand. — Síðan var lagt af stað til Reykjavíkur. Rignt hafði mikið, en stytti upp, er á leið dag. Segja má, að ferð þessari, sem var hin skemmtileg- asta, hafi lokið með veizlu í Hveragerði, sem Gísli Sigurbjörnsson og Helga frú hans héldu gestum. En Gísli hafði manna mest unnið að þessu mikla samstarfi. Næsti leikur Þjóðverja var 21. júní við Fram. Var það góður leilc- ur, sem Þjóðverjar unnu með 2:0. Þriðji leikurinn var svo við Val 24. júní á grasvellinum að Hlíðarenda. Var það fyrsti leikurinn, sem leik- jnn hefur verið á þeim velli. Þjóðverjar kunnu vel við sig á grasinu og unnu 4:0. Síðasti leikur þessa þýzka liðs var við úrval úr Fram og Val og unnu þýzkir hann líka, 3:1. Farið var með gestina í ýmsar ferðiP, s. s. Krýsuvík, Kjalarnes, Hitaveitu að Reykjum, Þingvöll, Gullfoss og Geysir. Sögðu þeir síðar, að öll þessi för væri eitt samfellt ævintýri, sem þeir mundu aldrei gleyma. þessir ungu Þjóðverjar léku mjög góða knattspyrnu. Þeir voru einn-
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132
Síða 133
Síða 134
Síða 135
Síða 136
Síða 137
Síða 138
Síða 139
Síða 140
Síða 141
Síða 142
Síða 143
Síða 144
Síða 145
Síða 146
Síða 147
Síða 148
Síða 149
Síða 150
Síða 151
Síða 152
Síða 153
Síða 154
Síða 155
Síða 156
Síða 157
Síða 158
Síða 159
Síða 160
Síða 161
Síða 162
Síða 163
Síða 164
Síða 165
Síða 166
Síða 167
Síða 168
Síða 169
Síða 170
Síða 171
Síða 172

x

Valsblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Valsblaðið
https://timarit.is/publication/399

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.