Valsblaðið - 11.05.1961, Síða 131
VALSBLAÐIÐ
129
hvort tveggja í senn stórfróðleg mynd og bráðskemmtileg, auk þess
mikla heimildargildis, sem slíkar myndir hafa fyrir félagið. — Þá
átti aðalstjómin f. h. deildarinnar í bréfaviðskiptum við útlönd á ár-
inu með tilliti til heimsóknar erlendis frá næsta starfsári, afmælis-
árinu. Þar hefir verið rædd handknattleiksför til KFUM í Kaupmanna-
höfn, heimsókn færeyskra handknattleiksmanna og kvenna og síðast
en ekki sízt, heimsókn til deildarinnar frá Svíþjóð, IK Heim í Gauta-
borg.
I Norðurlandamótinu í handknattleik átti Valur tvo ágæta fulltrúa,
Val Benediktsson sem dæmdi þar leiki og Sigríði Sigurðardóttur, sem
lék í landsliði íslands. En Sigríður er nú í hópi færustu handknatt-
leikskvenna landsins.
Frá Skíðadeildinni er fátt að segja, á þessu fyrsta starfsári. Stjórn
deildarinnar, en formaður hennar er Guðmundur Ingimundarson, vann
að ýmsum endurbótum og lagfæringum á skálanum, en aðsókn að hon-
um var fremur dræm, þar sem aðalskilyrði til skíðaferða voru lítt fyrir
hendi, nefnilega snjórinn.
Störf deildanna, þetta fyrsta starfsár þeirra, hefir verið gott og gefur
fyrirheit um að með þeirri skipulagsbreytingu, sem gerð var innan
félagsins á sl. ári hafi verið stigið rétt spor í málefnum þess, með þeirri
dreifingu starfsins í heild, á fleiri hendur en áður var með skipun þess
í deildir með stjórn (fimm manna hver deild) með óskorað vald um
málefni deildanna, innan þess ramma, sem lög félagsins kveða á um.
Á aðalfundinum 1960 var samþykkt viðurkenningarkerfi fyrir fé-
lagið. Hafði nefnd undirbúið málið ítarlega. Kerfi þessu er skift í tvo
flokka, er annar þeirra þrjár gráður. Merkin eru úr gulli og silfri.
Auk þess eru sérstök viðukenningamerki fyrir unglinga. Er miðað
við það að viðurkenningar séu veittar eftir kerfi þessu á 50 ára afmæli
félagsins næsta ár.
Heimsókn Tékka.
I nóvembeiTnánuði komu hingað í heimsókn handknattleiksliðið Gott-
waldo frá Tékkóslóvakíu í boði Víkings og lék hér 5 leiki, auk þess sem
efnt var til hraðkeppnismóts með flestum félaganna í Reykjavík. Um
þátttöku Vals í þessu móti segir svo í Jólablaði Valsblaðsins 1960.
Tefldi Gottwaldo fram 2 liðum og léku þau sitt í hvorum riðli. Lenti
Valur í riðli með B-liði Tékka og kom það í hlut Vals að leika fyrsta
leik sinn við það. Satt að segja bjuggust fæstir við því að Valur
mundi komast áfram í þeim riðli því leikmenn Gottwaldo voru yfirleitt
góðir og skemmtilegir leikmenn. Það kom fljótt í ljós að vörn Vals
var óvenjulega sterk og þétt, og ennfremur að Geir og Jóhann voru
mjög vel fyrirkallaðir og að Sólmundur í markinu var hinn öruggi
maður.
Það fór þó svo að gestimir urðu að láta í minni pokann fyrir Val,
sem sigraði 6:5. Það var ekki laust við að maður teldi að hér hefði
verið um heppni að ræða, og að næsti leikur mundi gera út um frekari
þátttöku í mótinu. ÍR mundi sjá um það, með sínar góðu skyttur og oft
ágæta leik. Það kom ekki síður fram í þeim leik hvað vömin var sterk
hjá Val, og í hálfleik stóðu leikar 1:1! Leiknum lauk með því að Valur
vann 5:4 og enn hafði það heldur ótrúlega skeð.
í hinum riðlinum höfðu leikar farið þannig, að A-lið Tékkanna hafði
unnið þar, svo nú var ekki um að villast að Valur var í úrslitum við
hina ágætu gesti.
Listin sanna lœrist mönnum
ljúf og hrein í öllum greinum,
ef þeir haga öllu at5 lögum
υstu listar svo sem Kristur.
49.
Strax er bezt aíS byrja’, aíS kostir
beztan fái vöxt og nái
mestum þroska þegar í æsku,
þá er lundin bljúgust undir. . .
Oft svo kenndu oss á fundum
bentu* um leiÖ á beztu ráÖin:
eldri menn meíS reynslu tvenna;
Bæn í þörf og kapp í störfum“.
50.
Saman lengi sveinar ganga,
syrtir aÖ nótt, en blunda dróttir;
reika á vengi vegu langa,
varíS þeim rótt viíS samtals gnóttir.
Sól guðs lýsti sítSan Trausta,
svo meíS dáÖ bann strííSiíS bá'Öi,
og fyrir sanna sigurvinning
samleiksnauta virÖing blaut bann.
VI. ÞÁTTUR
Komið og skoðið dáðir Jahve!
Sálm. 46, 9.
Tign guðs þekur himininn og af
dýrð hans er jörðin full.
Habak. 3, 3.
51.
Ur nætur vegum Drottins dagur
dýr upp rann, og ungra manna
vakti gleði himin heiSur,
Heilög sól á veldis-stóli,
kyrrlátt veður, vegir góðir,
vellir grænir, morgunrænan.
Náttúran öll á unga kallar
upp í sveit og 'gleði heitir.
52.
Árla rísa’ úr rekkjum fúsir
röskir sveinar og stefna’ aíi einu
húsi’ og saman kátir koma,
kveða við raddir æsku gladdar.
Skipast greiðir í fylking fríða,
finna sér stöð { beinum röðum.
Pípa gellur, garpar snjallir
göngu þráSa hef ja’ á láði.