Valsblaðið - 11.05.1961, Síða 134

Valsblaðið - 11.05.1961, Síða 134
132 VALSBLAÐIÐ 53. Hljómfall eitt frá röSum réttum, rösklega’ er fætur Ijósta stræti, heyrist greitt á steindum stéttum, sem stormhviSa lætur 'œsku kæti; frá húsum glymja endurómar, opnast ljórar á hliSum stórir; hörn atS streyma, stór vex glaumur, Stara lýSir á götum ví8a. 54. Upp úr bænum ysi vanir út á þjóSarvegu gó8a komast drengir, kátir ganga, keppa leiíS á vegum breiíium. Hefst þá söngur, svo aí langar sýnast ekki lægíSir og brekkur; undrast fuglar, allar reglur eru’ í firríS þá sveitakyrrSar. 55. Fleira’ ei mun af fertSum greina, fyr en náSS er marki þráSu, Hamrafelli’, er af víSum völlum víSa sést, er þar útsjón bezta; hátt þaS yfir hauSur gnæfir hrikalegt, þangaS sveinar ganga, Dranga’ um efri drengir klifra drýpur sviti á kalda þvita. 56. Eftir göngu’ um klettaklungur kemur bunga, ^þar sem ungir sveinar móSir meiga’ í náSum mosabreiSur nota heiSar; teygja’ úr limum, tala saman, titrar oft af hlátri loftiS, fá úr hreina fjallablænum fúsir teigaS himinveigar. 57. Ómar látS af kátum kliSi: kvaka lóur, vella spóar, glaSir spörvar flögra aS þörfum. rjúpur klaka, gneggja gaukar, Blóma-angan allt er þrungiS, ilmur grasa fyllir nasir, litkuSum krónum blóm í blænum blíSIega veifa’ aS gestum reifum. 58. Fyrir sjónum sjá má skína sumarskraut um víSar brautir: faSmar Iand meS feikna tindum f jallahringur allt í kringum; Var þetta frammistaða sem okkur æstum Valsáhangendum fannst þegar alveg ágæt. En þessi sigurganga átti eftir að halda áfram. Vals- menn sýndu enga minnimáttarkennd og þéttu sem bezt vöm sína og með Geir sem hinn hættulega skotmann, sem smaug gegnum vörn Tékka eins og áll hvað eftir annað og skoraði. Er ekki að orðlengja að endanleg úrslit leiksins urðu 10:7 Val í vil, og mun flestum hafa þótt það óvænt úrslit, en eins og leikurinn gekk fyrir sig var það engin tilviljun. Valsmennirnir sköpuðu sér fleiri tækifæri og notuðu þau. Valur varð þannig til þess að „slá út“ bæði A og B-lið Gottwaldo og mundi ýmsum hafa þótt það allgóð fjöður í hattinn! Þá sigraði 3. fl. A og B-lið mjög glæsilega í Reykjavíkurmótinu. Við kjör aðalstjórnar fyrir tímabilið 1960/61 baðst Baldur Stein- grímsson, sem átt hefur sæti í stjórn Vals samfleytt frá árinu 1940, sem gjaldkeri félagsins, eindregið undan endurkosningu. Fonnaðurinn ávarpaði Baldur og þakkaði honum heillaríkt starf fyrir félagið um tveggja áratuga skeið og færði honum fagran silfurbikar með áletrun og merki félagsins, sem lítinn viðurkenningarvott frá félaginu, um leið og hann þakkaði honum ágætt samstarf í stjórninni undanfarin ár. Að loknu ávarpi formanns hylltu fundarmenn Baldur, en hann þakkaði með nokkrum orðum, þá vinsemd og virðingu, sem sér hefði verið sýnd. I stjórn fyrir næsta kjörtímabil, þ. e. 50. starfsár félagsins, voru þessir kosnir: Sveinn Zoega formaður, í einu hljóði, Gunnar Vagnsson, Páll Guðnason, Valgeir Ársælsson og Einar Björnsson. Að stjórnarkosningu lokinni flutti formaður stutt ávarp, þar sem hann þakkaði traustið við sig með hinu einróma endurkjöri, jafnframt endurtók hann þakklæti sitt til Baldurs Steingrímssonar fyrir sam- starfið, bauð hina nýkjörnu stjórnarmiðlimi velkomna til starfs og hét á alla Valsmenn að duga sem bezt í leik og störfum fyrir félagið á 50. ári þess, svo að þeirra merku tímamóta yrði minnst með sem mestum glæsibrag. „Nú eru þetta allt eiginlega drengirnir okkar“. Það er varla hægt að ljúka svo sögu Vals, að ekki sé getið þeirra hjóna, Helgu Sigurbjörnsdóttur og Valdimars Kristjánssonar, sem um langan tíma hafa að vissu marki, verið hálfgerðir uppeldisforeldrar Valsdrengja, þvegið íþróttafötin þeirra, ræstað og haldið heimilinu þeirra vistlegu og hreinu og agað þá svolítið eins og góðir foreldrar gera. Þau komu að Hlíðarenda á afmælisdag Vals 11. maí 1940, og ætluðu að vera þar aðeins eitt sumar, draga sig út úr bæjarlífinu og njóta meira næðis þarna afsíðis, með drengina sína 2ja, 3ja og 5 ára. Síðan eru liðin 21 ár. Þegar farið var að breyta húsum á Hlíðarenda, tók Valdimar þátt í því, og þegar heimilið var tilbúið réðist það svo, að þau hjónin tóku að sér að annast um ræstingu á því. það kom líka í þeirra hlut, að annast um þvott á íþróttabúningum félagsins og þannig hefur það haldizt síðan. Þau hafa verið samhent í því, að hugsa vel um húsið og sjálfsagt hefur Valdimar stundum orðið að vera svolítið harður í hom að taka, hvað snerti umgengni og er það ekki nema eðlilegt, og er vissulega einn þátturinn í félagsuppeldinu. Heimilið ber það líka með sér, að vel hefur verið um allt gengið. Sama er að segja um umgengni í íþróttahúsinu. Þar voru settar strangar reglur, sem ekki var spáð góðu fyrir, en með festu og stöðugu aðhaldi hafa ungu mennirnir skilið, að þannig átti „þeirra hús“ að vera, fínt og vel um gengið. Þetta skilja allir nú.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132
Síða 133
Síða 134
Síða 135
Síða 136
Síða 137
Síða 138
Síða 139
Síða 140
Síða 141
Síða 142
Síða 143
Síða 144
Síða 145
Síða 146
Síða 147
Síða 148
Síða 149
Síða 150
Síða 151
Síða 152
Síða 153
Síða 154
Síða 155
Síða 156
Síða 157
Síða 158
Síða 159
Síða 160
Síða 161
Síða 162
Síða 163
Síða 164
Síða 165
Síða 166
Síða 167
Síða 168
Síða 169
Síða 170
Síða 171
Síða 172

x

Valsblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Valsblaðið
https://timarit.is/publication/399

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.