Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1902, Síða 84
64
frá söfnuðunum á árinu,og voru það samtals $202.00 í
peningum, 29 búshel af hveiti, 9 búshel af höfrum og
23 dagsverk. Af því höföu 54 dollarar, 9 búshel hveit-
is og 6 búshel hafra goldist frá Parksöfnuði, 95 dolh,
8 búshel hveitis, 3 búshel hafra og 22 dagsverk, frá
Víkur-söfnuði, en frá Tungár-söfnuði 53 dollarar,
11 búshel hveitis og eitt dagsverk. Mest af lof-
orðum safnaöarmanna, er gjörð voru árinu áður,
höfðu goldist. Samt var af þeim ógoldinn
frá Tungársöfnuði. 300 dollara styrk segist hann hafa
þegið frá norsku sýnódunni, þetta ár, sv'o laun hans
hafa verið kringum 500 dollara síðasta árið, er hann
lifði. þegar á leið veturinn, elnaði veikin, og mun
hann sjálfur hafa skilið, að endirinn mundi nærri. Síö-
ustu mánuðina, er hann lifði, leitaðist hann af alefli
við að fá því til leiðar komið, að söfnuðirnir sendu
Hansi Thorgrimsen, er þá átti að útskrifast á næsta
vori frá prestaskólanum í St. Louis, köllunarbréf,
upp á það, að hann tækist á hendur prestsþjónustu
í nýlendunni.annaðhvort sem aðstoðarmaður síra Páls,
ef hann lifði, eða að öðrum kosti tæki þessa ]?rjá söfn-
uöi algjörlega að sér.
En svo kom að síðustu, að hann fekk ekki lengur
hugsað um mál nýlendunnar og veitt þeim forstöðu.
Síra Páll þorláksson andaðist á heimili sínu 12. marz,
vorið 1882 og var jarðsettur 2. apríl. Veturinn 1882
var einhver hinn nresti snjóavetur, er menn muna.
Seinni part vetrarins rak niður feikna fönn, svo ekkert
varð komist nema á skíðum og mörg hjartdýr elt uppi
í snjónum og drepin með lurkum, því þau komust ekk-
ert fyrir ófærðinni. þrátt fyrir þessa örðugleika var
norskur prestur fenginn, Kristján Flatcn að nafni, til
að vera við jaröarför síra Páls heitins. Hélt hann lík-
ræðu á norsku fyrir fjölda fólks, sem við var statt,
þrátt fyrir þá ógurlegu ófærð, sem á jörðunni var.
Bróðir hans, Níels Steingrímur þorláksso'n, hélt einnig
ræðu á íslenzku til safnaðarmanna síra Páls, sem nú