Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1907, Blaðsíða 69
ALMANAK I907.
41
en byrjað var á framlengfing brautarinna'r. En með ötulum
tilstyrk Sigtryggs var sá maður, er S'. J. 'Jackson heitir,
til þess korinn að skipa hið auða rúm áþingmanna-bekkn*
um. En nú vill félagið breyta samningum og leggja
brautina sex mílur fyrir vestan Gimli-þorp.
Varð út úr þessu þjark mikið, eins og geta má
nærri. En í samlögum við Jackson köm Sigtryggur því
til leiðar, að félagið lofaði að leggja brautina frá Winnipeg
Beach og alla leið til Gimli, og aðra braut frá Teulon
norður að íslendingafljóti.
Eins og kunnugt er, er brautin til Gimli nú fullgjör,
en hin frá Teulon komin svo langt á veg,að allar líkur eru
til að hún verði kominn norður að íslendingafljóti að ári
liðnu. Auk þess lofaði félagið þeim Sigtryggi og Jackson
að tengja síðar Gimli brautina við íslendingafljóts braut-
ina, ef það fengi sama styrk til þess á mílu hverja og það
fær á hina brautarkaflana.
Enginn, sem til þekkir, getur neitað því, að Sig-
tryggur hefir áhrif haft, bæði mikil og góð, á heppileg úr-
slit þessa mikla velferðarmáls fyrir Nýja Island. Hvort
honum verður þakkað starf sitt í sambandi við þessi járn-
brautarmál eins og vert er, verður framtíðin að sýna.
Þegar Sigtryggur lagði ritstjórn Lögbergs niður,fekk
hannembætti eitt hjá Kanadastjórn,sem eríþví itinifalið að
hafaumsjón og eftirlit með heimilisréttar-löndum stjórnar-
innar (Homestead InspectorJ. Það embætti hafði hann á
hendi þangað til í júní 1903. Þá sagði hann því af sérog
hafði í huga að gefa kost á sér til þings. Þá starfaði
hatin í þarfir flokks síns að því að koma skipulagi á
mál hans (Political Organizer) þangað til 1904.
Tók hann þá aftur við fyrra embætti sínu fyrir Kanada-
stjórn og gengdi því þangað til seint í maí síðastliðið vor.
Á því embætti mun hann hafa verið orðinn þreyttur, þar