Alþýðublað Hafnarfjarðar - 18.12.1964, Page 6
6
ALÞÝÐUBLAÐ HAFNARFJARÐAR
Gólfið hafði verið þvegið, og
svo var borinn inn meis með vel
hristu útheyi og því stráð yfir allt
gólfið. Þá var matur inn borinn
og hverjum skammtað út af fyrir
sig. Fólkið tók við matarílátunum,
og sátu sumir með þau á hnjánum,
þar á meðal ég. Aðrir settu þau í
rúmshornið. Máltíðarinnar var
neytt í þögn og lotningu.
Þegar fólkið var búið að borða,
stóð hver og einn upp og sagði:
„Guðlaun fyrir matinn“. Svo gekk
það fram með matarílátin. Hús-
bændurnir svöruðu: „Guð blessi
ykkur matinn“. Svo fór húsmóðir-
in fram, kom að vörmu spori aft-
ur inn og hafði meðferðis tólgar-
kerti, sitt kertið handa hverjum.
Kerti þessi voru heimagerð. Þá
skiptist fólkið á jólagjöfum, og þó
gjöfin væri ekki stór, var hún þeg-
in með innilegri þakklátsemi og
hlýhug. Pabbi var í nýju sokkun-
um sínum og með nýja sauðskinns-
skó með rósaleppum í, jólagjöf
frá mömmu. Sjálf var hún með
nýja skó og sagði þá vera jólagjöf
okkar til sín. Og þar með var
allur ótti horfinn við jólaköttinn,
þetta klólanga dýr, enda leit ég
sigri hrósandi til Gínu„ þar sem
hún sat með kertið sitt og höfuð-
klútinn hvíta, sem amma hennar
hafði gefið henni.
Þá var húslestrarbókin tekin
fram og sálmabækurnar. Lestur að-
fangakvöldsins var svo lesinn og
sunginn jólasálmur á undan og eft-
ir. Allir þökkuðu fyrir lesturinn,
og síðan óskaði hver öðrum gleði-
legra jóla í guðs nafni.
Snemma var gengið til svefns,
því að nú varð að rísa árla úr
rekkju, jólamorguninn, til gegn-
inga, þar sem einhverjir mundu
fara til kirkju á jóladag. Það var
látið loga á lampanum, og setti
það mikinn hátíðasvip á baðstof-
una, aðeins var dregið niður í hon-
um. Og heilög jólin færðu frið og
blessun um alla jörð.
Gleðileg jól!
Gott og jarsælt nijtt ár.
Munið dijrin á jólunum.
Dýraverndarfélag Hafnarfjarðar
Gleðileg jól!
Gott og farsælt
komandi ár
Þökkum vi&skiptin
á li&na árinu
Sundhöll Hafnarfjarðar
Óskum öllu starfs-
fólki voru og
■
viöskiptavinum
gleðilegra jóla
gó&s komandi ársr
og þökkum ánægjulega samvinnu á árinu^
sem er að líða.
Skipasmíðastöðin Dröfn h.f. - Byggingarfélagið Þór h.f.