Alþýðublað Hafnarfjarðar - 18.12.1964, Side 7
ALÞÝÐUBLAÐ HAFNARFJARÐAR
7
Vigdís Kl. Stefánsdóttir:
Kjartan Hjálmarsson:
&
Jólasnjór
Þegar veturinn gengur í garð, fer maður að eiga von á snjón-
um. Fyrst sjáum við hæstu fjallahnjúkana setja upp hvítar fanna-
hettur, svo fjöll og dali skrýðast hvítum kyrtlum.
Mörgum leiðist fyrsti snjórinn. Hann vekur hjá þeim óhug og
kvíða fyrir vetrinum, sem er að byrja, minnir þá á kulda og
dauða. En flest óskurn við þó eftir jólasnjó. I mínum augum er
náttúran yndisfögur, þegar tárhrein, nýfallin mjöll þekur jörð-
ina, svo hvergi sér á dökkan díl. Það er eins og maður sjái í
henni óskráðar minningar um sumarið sem leið. Maður sér í
anda bjarta júnídaga auðuga af blómailm og fuglasöng, hljóð-
lát rökkurljúf síðsumarkvöld, þegar máninn speglaðist í blá-
dimmum vötnum. Og maður sér meira.
Snjórinn er eins og hjúpur yfir öllu því fagra, sem vaknar af
dvala næsta vor, öllum yndislegu blómunum, sem þá munu
gleðja augað, og einnig þeim, sem aldrei munu spretta.
Margt af því fegursta ,sem mennirnir hugsa, er aldrei skráð.
það liggur hulið í sálunni, eins og fræin, sem verða að blómum
næsta vor, eru hjúpuð vetrarmjöllinni.
Allt það fegursta og háleitasta, sem mennina dreymir um, er
fíngert, ósnotið og tárhreint eins og nýfallinn snjór — jólasnjór.
Hafnfirzk jól
Ég sé yfir bæinn og veit að breijtingin verður
á viðmóti hans í kvöld.
llraunatöglin sem teygja sig milli granna
tíguleg, hörð og köld
slaka álút á ijgglibrúnum,
átthagans didarrúnum
og bfóða jólunum skfól og skininu völd.
Og Hamarinn gneypur hlustar á klukknaslögin,
háttbundið álfalag.
Og hlýfar af vinsemd hendur erfiðismanna,
sem hraðfrystu aflann í dag,
strfúka af álútum ygglibrúnum,
átthagans dularrúnum
lwersdagsins ok í glampa og gleðibrag.
Höfnin og Lækurinn endurspegla undrið.
upplýsta kvöldsins skin.
Granna á milli greni-ilmurinn teygir
grun um friðsaman vin,
sem lyfti í gleði bænarbrúnum,
bæfarins dularrúnum
til Ijósanna himins við barnsins blikandi skin.
Alþýðublað
Haínaríjarðar
óskar lesendum
sínum
gleðilegra jóla
oq góðs
komandi árs.
* 'X
V.K.F. FRAMTÍÐIN, Hafnarfirði, óskar öllum meðlimum sínum Gleðileg jól!
gleðilegra jóla Gott og farsælt komandi ár.
góðs og farsæls komandi árs.
VERKAKVENNAFÉLAGIÐ FRAMTÍÐIN STARFSMANNAFÉLAG HAFNARFJARÐAR
Hafnarfirði